Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 6

Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 6
hóf nám í hárskurði hjá Árna Matthí- assyni og byrjaði aftur að spila á dans- leikjum. ísfirðingar eru dansglatt fólk. Ekki leið svo vika að ekki væri einn eða fleiri dansleikir. Við Erich tókum nú upp þráðinn og fengum til liðs við okkur Finnbjörn Finnbjörnsson á píanó og Hauk Sigurðsson á trompet. Eg spilaði á harmoniku og saxófón. Eg var farinn að gera tilraunir með útsetningar og við farnir að æfa, en það var nokkuð sem mátti teljast nýjung. Rétt fyrir jólin 1950 fórum ég og núverandi konan mín, þá- verandi kærastan mín, Guðný Magnús- dóttir, að búa. Fyrsta barnið okkar fædd- ist 9. febrúar 1951 og kom sér nú vel að hafa tekjur af músfkinni því lærlingslaun- in voru lág. Ég hélt svo áfram að spila á dansleikjum allt til ársins 1964. Þá um vorið tók ég lærling á rakarastofuna og ætlaði að láta mér nægja að vinna á stof- unni og stjórna Lúðrasveit Isafjarðar, sem ég tók við af Harrý Herlufsen árið 1959. En ég komst ekki upp með það. Bítlatískan skall á og vinnan á rakarastof- unni dróst það ntikið saman að ég var ekki lengur matvinnungur. Félagar mínir sem höfðu spilað með mér í sextettinum V.V. og Barði stofnuðu nýjan sextett sem þeir gáfu nafnið Sexmenn. Saxófónleik- arinn þeirra, Ólafur Karvel Pálson, fór suður til að læra til fiskifræðings, sem hann er í dag. Nú fannst þeim sem eftir voru að sándið væri þunnt. Því var það að þeir báðu mig að koma í sextettinn. Það gerði ég og hélt áfram músrkstand- inu til ársins 1982, byrjaði svo aftur með danshljómsveit 1985 og spilaði þá í eitt ár. Síðan hef ég lítið spilað á dansleikj- um. Það er helst að ég spili á dansleikj- um Harmonikufélags Vestfjarða. Undan- farin ár hef ég spilað dinnermúsík á Hót- el ísafirði, af og til á píanó og einnig höf- um við, fimm og stundum sex félagar á góðum aldri, spilað djass á hótelinu um páskana. Geysilegt Bjarnaball „Það var í ágúst að áliðnum slætti og nærri aldimmt á kvöldunum þeim“, gæti vel átt við ef hörfað er nokkra mánuði til baka, til fagurs sumarkvölds við Geysi í Haukadal. Svokallað Bjarnaball var hald- ið á Hótel Geysi 22. ágúst í sumar sem var, en það gerðist fyrir tilstilli Bjarna Sigurðssonar frá Geysi. Hann er frændi hins fræga harmonikuleikara og laga- smiðs Eiríks Bjarnasonar frá Bóli og var jafnframt nemandi hans. Eiríkur samdi fjölda danslaga á harmoniku en einungis örfá þeirra eru til skrifuð. Hið þekktasta er vafalaust „Ég minnist þín“ (Ljósbrá). Bjarni Sigurðsson hefur lagt sig fram um að bjarga þeim lögum Eiríks sem varð- veist hafa og gefið þau út á geisladisk, ásamt sínum eigin lögum til að fylla diskinn. Á þessu skemmlilega Bjarna- Bjarni Sigurðsson balli var geisladiskurinn kynntur á til- komumikinn hátt. Það lá sveitarómantík í loftinu, margt manna var þar og var dans- að með tilþrifum svo að vangar strukust og pilsfaldar lyftust, enda voru hljóð- færaleikararnir landsþekktir. Þeir hinir sömu og leika á diskinum héldu uppi fjörinu þetta dans- og kynningarkvöld á Geysi. Fyrstan skal nefna Gretti Björns- son harmonikuleikara, Þuríði Sigurðar- dóttur söngkonu, Jón Kr. Ólafsson söngvara, Ragnar Pál hljómborðsleikara og Grétar Guðmundsson söngvara og hljómborðsleikara auk Bjarna sjálfs, sem spilaði á harmoniku. Þá komu flytjendur einnig við sögu útsetninga á diski þess- um. Karl Billich átti þar einnig hlut að máli svo og textahöfundarnir Ágúst Böðvarsson. Jón Sigurðsson og Helgi Seljan. Bjarni Sigurðsson er ekki óþekktur í danstónlistinni, en hann byrjaði leik sinn á böllum upp úr fermingu og hélt sína eigin hljómsveit (Tríó 72) um 20 ára skeið, til ársins 1972. Ballið hafði mikið aðdráttarafl, á milli 30-40 harmonikuunnendur slógu upp Grettir Björnsson ífögru umhverfi við Strokk. tjöldum við Geysissvæðið og áttu þar eft- irminnilega helgi við söng og spil, með Bjarnaballið sem rós í hnappagatið. H.H. Til sölu: MELODIOSA piano-harmonika f. ungling. Stærð 38,5x 16,5cm. Fullt tónsvið 41/120, 3/2 skiftingar. Gömul en vönduð og lítið notuð. Einnig: EXCELSIOR piano harmonika, model 900. 13/3 skiftingar, með pick-up. Ný uppgerð. Bragi Hlíðberg, sími 565 7705 6

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.