Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 11

Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 11
Með Frosinitónlist í eyrum NYR MOGULEIKI Hilmar Hjartarson Við harmonikuunnendur höfum ekki leitað mikið eftir að ganga til liðs við er- lend eða alþjóðleg tónlistarbandalög. Eft- ir að hafa sótt bæði fundi og ráðstefnur erlendis undanfarin ár, nú síðast alþjóð- lega Frosini ráðstefnu, keppni og tónleika á sviði Frosinitónlistar í Stokkhólmi 21 nóvember í vetur, er ég æ sannfærðari um að við eigum að vera með á nótunum meðal annarra þjóða. Sá tími mun koma, að ungir og efnilegir nemendur í harmon- ikuleik komi fram á sviðið hér, nemendur sem gætu tekið þátt í erlendum keppnum. Enginn möguleiki hefur enn fundist hér heima á keppnissviðinu. Þó það yrði, er líka gott að hafa aðra möguleika. Langt er síðan Lars Ek hafði á orði við mig að hér á Islandi þyrfti að stofna Fros- ini félagsskap, sem ætlaður væri til þess að ýta undir meiri metnað í harmoniku- leik. Jafnframt er þetta tónlistarform talið heppilegt til aukinnar þekkingar í námi, fullt af gleði og léttleika, ásamt því að vera viðurkennd sem klassísk tónlist. LARS EK BOÐAR FUND Lars sendi mér bréf ásamt gögnum um að til stæði að stofna alþjóðlegt Frosini- bandalag í Stokkhólmi 21 nóveinber 1998, með þeirri fyrirspurn hvort ég gæti mætt sem fulltrúi íslands. Boðið þótti mér það spennandi að ég sló til og flaug utan 20 nóvember í vetur. Þess ber að geta að Lars stofnaði fyrsta Frosinifélagið árið 1985 í Svíþjóð. Alla tíð síðan hefur hann unnið ötullega að því að útbreiða og upplýsa um tónlist Frosinis, bæði á tónleikum, fundum og með útgáfu tímarits um efnið. (Frosini Nytt). Keppni var síðan kom- ið á í Frosinitónlist árið 1987 af Norð- manninum John Mandelid í samvinnu við Sigmund Dehli og Titanofestivalen í Noregi. Aherslan hefur allar götur síðan verið lögð á að ungt fólk gengi fyrir í keppninni. (Frosini Grand Prix). Ahugi í nágrannalöndunum hefur jafnt og þétt aukist á þessu áhugamáli, og árið 1993 létu samtök í Noregi, Danmörku og Finnlandi skrá sig með vilja fyrir frekari samvinnu. Nú má segja að Island sé komið í sam- spilið með því að mæta á stofnfund IFS (Internationella Frosinisellskapet), þ.e. Harmonikusnillingurinn Pietro Frosini, var afkastamikill tónsmiður. Hér standa fundarmenn við ráðstefnuborðið eftir hina formlegu stofnun Alþjóðlega Frosini- félagsins. Frá v. Jens P. Nielsen Danmörku, Kristján H. Rusbjerg Danmörku, Lars Ek Svíþjóð, Robert Rolston Skotkmd, Jolm Mandelid Noregi, Oleg Sharov Rússlandi, Seppo Lankinen Finnlandi og Hilmar Hjartarson Island. Frá vinstri Evrópumeistarinn í Frosisi tónlist 1998 Henrik Sandos frá Finnlandi, Kristian H. Rjusberg Danmörku, Helena Hallelánd Noregi, Magnús Jónsson Svíþjóð, David Nisbet Skotland (kepptif. hönd Stóra Bretlands) og Alexander Matrosov Rússlandi, hampa hér verðlaununum. 11

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.