Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 9

Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 9
Arið 1993 var liinn dáði dans og dœgurlagahöfundur Agúst Pétursson kynntur á skemmtifundi F.H. U. íReykjavík. Flytjendur vorufrá vinstri: Símon Ivarsson gítar, Sigurður Alfonsson harmonika og dóttir tónskáldsins Agústa Sigrún Agústsdóttir söngkona. Gústi hóf ungur að leika á harmoniku og þegar hann flutti til Vestmannaeyja, 18 ára gamall, var hann farinn að leika fyrir dansi. Þar bjó hann sig undir lífs- starfið og nam húsgagnasmíði, en lék jafnframt á dansleikjum. Þar hófst sam- starf hans við Jenna Jóns, sem einnig átti eftir að verða þjóðkunnur laga- og texta- smiður. Agúst Pétursson flutti til Reykjavíkur árið 1945 og fljótlega hóf hann að leika á dansleikjum og þá í samvinnu við Jenna og Jóhann Eymundsson, en um árabil léku þeir félagar saman í Skáta- heimilinu við Snorrabraut. Það mun hafa verið fyrir norðan að Gústi fór að setja saman lög, en þegar danslagakeppni S.K.T. hófst upp úr 1950 varð hann þjóð- kunnur. Brilljantín- greiddir töffarar styttu tangó- sporin og raul- uðu Æsku- minningu í eyrað á kærust- unni og það var að minnsta kosti einn Þórð- ur sjóari um borð í hverjum síldabát, en þeir voru á þriðja hundraðið. Ágúst Pét- ursson fékk margar viður- kenningar fyrir lög sín. Meðal annars var Æskuminning valin næst besta dægurlag- ið árið 1953, í skoðanakönnun tímarits- ins Hljómplötunýjungar. Jenni Jóns fékk samskonar viðurkenningu fyrir textann. Lagið var gefið út á hljómplötu sama ár. Alfreð Clausen söng með Hljómsveit Carls Billich. Harmonikuleikari í hljóm- sveitinni var einn af félögum okkar í F.H.U.R., nefnilega Bragi Hlíðberg. Þá fékk Æskuminningin sérstaka viðurkenn- ingu frá félagi dægurlagahöfunda. En mesta viðurkenningin er þó sú, að þessi lög eru orðin sígild. Enginn hefur orðið leiður á þeim og verður ekki. Ágúst Pétursson var einn af stofnend- um Félags harmonikuunnenda í Reykja- vík og var alltaf tilbúinn að leggja félaginu lið þegar á þurfti að halda. Frá byrjun lék hann með hljómsveitum félagsins og við minnumst hans sem góðs félaga, sem aðeins lagði gott til mál- anna, þegar eitthvað þurfti úrlausnar við. Fljótlega eftir stofnun fé- lagsins færði hann því að gjöf fallegan mars, sem hann hafði samið. Við erum ákaflega stolt af því að eiga þennan glæsilega mars. Gústi var Kópavogsbúi frá árinu 1951. Þar átti hann sitt heimili alla tíð ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Kristjánsdóttur og þremur börnum, þeim Hörpu, Omari og Ágústu. Guðrún kona Pólstjarnan Ennþá man ég það frá bemsku, hve þú brostir hlýtt til mín, milli bæja, þegar var ég einn í för. Og mér fannst þú augað vera, sem vaktir yfir mér, eini vinurinn, sem gafst við spuming svör. En ég hlaut að kveðja æskubyggð og heimþrá mín er sár, og þó harðni skap, í byl og frjósi tár. Þegar myrkur byrgir landsýn, er lögð á þóftu ár, og ég leita þín, með bænarorð á vör. En þú vakir allar nætur, í vegalausum geim, besti vinur þess, er gengur myrkvað land. Og þú vísar mér til átta, um úfinn vetrarsæ, þegar öldur litlu fleyi, boða grand. Og þó dimmi fyrir sjónum og daprist von og trú, hátt á draumahimni bláum, sindrar þú. Og þú tengir milli heimþrár og hafnar gullna brú, meðan haftð kyssir lágan fjörasand. Kristján frá Djúpalœk hans átti reyndar talsverðan þátt í því að Æskuminning komst á framfæri, því þeg- ar höfundurinn hikaði, tók hún af skarið og eggjaði hann til að senda lagið í danslagakeppnina. Annars væri það jafn- vel ennþá aðeins taktlaus strik á blaði. Lög Ágústar Péturssonar urðu fjöl- mörg og má þar nefna Pólstjörnuna, Harpan ómar og mörg fleiri. Síðsta lagið varð til í tengslum við æfingar á vegum F.H.U.R. Einn félaginn, Eyþór Guð- mundsson, bjó í Selbrekkunni í nágrenni við Gústa. Þar varð Selbrekkumarsúrkinn til, sem líklega er saminn árið 1984. Ágúst Pétursson lést sumarið 1986 langt um aldur fram. Hans verður ávallt minnst sem góðs félaga og eins af bestu lagasmiðum F.H.U.R. Verðlaunakeppni áskrifenda Rétt fyrir útkomu blaðsins var dreg- ið úr nöfnum þeirra er greitt höfðu áskriftargjaldið fyrir febrúarlok. Úr- drátturinn fór þannig fram að hringt var í einn áskrifanda í hverjum lands- fjórðungi og hann beðinn að nefna ein- hverja tölu frá einum til þess fjölda er lokið höfðu greiðslu. Hringt var í eftirtalda aðila! Norð- urland. Stefán Leifsson valdi nr. 52 sem er Elín Gerður Jóhannesdóttir í áskrifendalistanum Hólavegi 6, Skaga- firði. Austurland. Halldís Hrafnkels- dóttir valdi nr. 103, þar er Guðmundur Guðmundsson Torfufelli 4, Reykjavík vinningshafi. Vesturland. Sigrún Hall- dórsdóttir valdi nr. 16, þá kom upp Bergsveinn Jóhann Gíslason frá Mýr- um, Isafjarðarbæ. Suðurland. Gísli Geirsson valdi nr. 150, sem er Helgi Sigurjónsson, Glerárgötu 18, Akureyri. Verðlaunin úrvals harmonikugeisla- plötur verða sendar í pósti til viðkom- andi með fyrstu ferð. Blaðið óskar vinningshöfunum til hamingju og þakkar góð skil. ÁSKRIFTAVERÐLAUN í vorblaðinu (maí 1999) verður svo tilkynnt um nafn og verðlaun þess er útvegað hefur blaðinu flesta áskrifend- ur á áskriftarárinu. Sendið áskriftarum- sókn með undirritun eða hringið í síma 5656385 eða 8965440. 9

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.