Harmoníkan - 01.02.1999, Blaðsíða 10
Kravtzow-kerfið nýtt harmonikuhljómborð
Spennandi þróun á harmonikuhljóm-
borðinu.
Maður hefði talið að búið væri að
finna upp allt sem mögulegt er í útfærsl-
um harmonikuhljómborðs, en svo einfalt
er það ekki. Hinn rússneski tónlistarpró-
fessor Nikolaj Krawtzow hefur þróað
nýtt kerfi fyrir harmonikuhljómborð eins
og kynnt var í 2. tbl. 1997-98 af Harm-
onikunni. Er sú grein þýdd úr harmon-
ikutímaritinu Nygammalt. Fleiri blöð
hafa sýnt þessu mikinn áhuga og nú síð-
ast Trekkspillsnytt þar sem Svenn Eng-
elund skrifar og lýsir hrifningu sinni af
kerfinu. Norðmaðurinn Per-Ola Sverre,
sem er þarlendur umboðsmaður fyrir
þessar nýju harmonikur, hefur góðfúslega
gefið mér leyfi til að birta það sem skrif-
að er og hefur sent mér greinar til þýð-
ingar. „Það er draumur framtíðar að geta
fengið alla harmonikuleikara til að sam-
einast um þetta kerfi, og þar með útiloka
öll fyrri kerfa vandamál," segir í skrifum
um kerfið á einum stað. Hvað sem því
líður er hér á ferðinni ný uppfinning seni
áhugavert væri að kynnast. Per-Ola
Sverre hefur boðað mig ásamt fjölþjóð-
legum aðilum til Saint Petersburg 2.-9.
apríl í vor til sérstakrar kynningar og
kennsluráðstefnu. Eg verð að segja það
strax, að því miður get ég ekki lagt upp í
slíkan leiðangur, þó spennandi sé. Heldur
álít ég að verkefnið passi frekar aðilum
sem þegar flytja inn harmonikur. Eg hef
allar nánari upplýsingar (s: 565-6385) Til
viðbótar við fyrri upplýsingar í Harmon-
ikkunni læt ég nú fylgja með skýringar-
mynd af hluta hljómborðsins auk eftirtal-
inna skýringa:
• Borðið er slétt.
• Það er aðallega ætlað fyrir þá sem
spila þegar á píanóharmoniku og byrj-
endur.
• Passar vel fyrir barnahendur.
• Nánast sama fingrasetning í öllum
tóntegundum.
• Auðvelt að byggja kerfið inn í eldri
harmonikur eða kaupa nýtt borð.
• Hægt er að læra á kerfið beint eða á
bilinu 5-6 mánuðum frá píanóborði.
H.H.
Til hcegrí: Rússneska sjónvarpsstjaman Alla
að kynna liluta úr Kravtzow kerfinu.
Til vinstri: Hér sést vel uppbygging
nótnaborðsins á þessum parti af
hljómborðinu.
Professor Kravtzow kynnir hér hið nýja kerfi með nemanda sínum í St. Petersburg.
wg.5g.\