Harmoníkan - 01.02.1999, Qupperneq 14
og viðtala ásamt yfirliti um starf félags-
ins öll þessi ar. Einnig er latinna félaga
minnst.
Fram kemur í blaðinu að á stofnfund-
inum fyrir 20 árum var félaginu gefið
nafnið „Félag áhugamanna um harmon-
ikuleik í Suður-Þingeyjarsýslu“ og að
stofnfélagar hafi verið 55. Nafnið þótti
allt of langt og óþjált, og var því fljótlega
breytt í „Harmonikufélag Þingeyinga".
Haustið 1980 var sett saman félagshljóm-
sveit, Stórsveitin, og ráðinn stjórnandi.
Ennfremur kemur fram að félagið hefur
tekið þátt í öllum landsmótum S.Í.H.U.
frá upphafi, staðið fyrir samskipta- og
skemmtiferðum milli félaga, utanlands-
ferðum, og hafi m.a. tekið þátt í Noregs-
meistaramóti í harmonikuleik árið 1989.
Gefnar voru tvær harmonikur, önnur til
Hafralækjarskóla, en hin til Stórutjarnar-
skóla. I júlímánuði ár hvert vinnur H.F.Þ.
að harmonikumóti að Breiðamýri með
F.H.U.E. Þá stendur félagið fyrir dans-
leikjahaldi ásamt því að stuðla að út-
breiðslu harmonikutónlistar í sinni fjöl-
breyttustu mynd. í tilefni afmælisins gaf
félagið út geisladisk með ýmsu efni frá
liðinni tíð og var hann tilbúinn fyrir af-
mælishátíðina. Benedikt Helgason sá um
að safna efninu saman, yfirfara það, og
hreinsa með nútíma tækni.
Afmælishátíðin
Sjálf afmælishátíðin var haldin laug-
ardaginn 7. nóvember á veitingastaðnum
Bakkanum á Hótel Húsavík. Veðrið skaut
þó hátíðargestum skelk í bringu því
stormur gekk yfir landið á laugardegin-
um. Við ókum áleiðis norður síðla á
föstudeginum í fögru veðri, tunglskin og
norðurljós með stöku stjörnuhrapi er
skrýddi himininn. Það var nánast albjart
sem á degi og við sáum hesta á beit
krafsa í snjónum. Ætlunin var að gista á
Blönduósi en við fengum upphringingu á
leiðinni um hið slæma veðurútlit frá ekki
færri en þremur mönnum, þeim Sigurði
Indriðasyni, Stefáni Þórissyni og Stefáni
Leifssyni. Þeir töldu útlitið of áhættusamt
til að gista á miðri leið, þar að auki bauð
Sigurður okkur að gista. Við hlýddum og
þáðum gistinguna. Um nóttina skall á
með roki og skafrenning svo að Víkur-
skarð lokaðist og við máttum bíða þar til
vegagerðin opnaði upp úr kl.18 á laugar-
dag, með það að komast frá Akureyri til
Húsavíkur. Eftir það gekk allt vel, en
H.F.Þ. varð að fresta setningu hátíðarinn-
ar (í 30 mín.) þar til við komum og fleiri
er höfðu teppst á Akureyri. Afmælisveisl-
an hófst með fordrykk, síðan var sest til
Aðalsteinn Isfjörð var einleikari hátíðarinnar!
Hagyrðingarhópurinn. Frá v. Þorgrímur Björnsson, Sigríður Ivarsdóttir, Hólmfríður
Bjartmarsdóttir og Sigvaldi Jónsson.
‘tSffiSS'*
Brœðumirfrá Rauðá I miðju lagi. Frá vinstri Grímur Vdhjálmsson syngur og spilar, Hreinn
leikur á gítarinn, liann er einnig góður harmonikuleikari.
14