Harmoníkan - 01.02.1999, Qupperneq 15
borðs og snæddur dýrindis málsverður.
Við borðhaldið lék Jón Árni Sigfússon af
sinni alkunnu snilld. Formaður félagsins
Sigurður Friðriksson bauð gesti vel-
komna og kynnti veislustjórann Stefán
Þórisson. Stefán boðaði á senu einleikar-
ann á hátíðinni, Aðalstein ísfjörð, sem
lék létt og fimlega nokkur lög. Formenn
ýmissa félaga færðu gjafir og sögðu vel
valin orð. Þeir voru tiltölega fáir því veð-
urútlit hefur vafalaust dregið kjark úr
mönnum. Fram komu Geir Guðlaugsson
H.U.V., Jóhannes Jónsson F.H.U.E, Ólaf-
ur Þ. Kristjánsson H.R., Sigurður Ind-
riðason f. hönd S.Í.H.U. og Hilmar Hjart-
arson f. hönd F.H.S.N. og Harmonikunn-
ar. Frá Reykjavfk komu þeir Guðmundur
Samúelsson og Hreinn Vilhjálmsson er
léku nokkra dúetta við þetta tilefni. Þing-
eyskir hagyrðingar léku listir sínar,
lystisemdir orðsins sem kitlaði hlátur-
taugar sem frumur, hjarta og huga dyggi-
lega. Góður undirbúningur fyrir dansinn
er hátíðin endaði á og var mikið fjör fram
eftir nóttu við undirleik fjölmargra
hljómsveita. Fyrir mína hönd og konu
minnar vil ég þakka H.F.Þ. Megi það lifa
og dafna um framtíð alla. Til hamingju
með merk tímamót.
H.H.
Hæfileikakeppni
ungra
harmonikuleikara
Félag harmonikuunenda í
Reykjavík gengst fyrir keppni í
harmonikuleik í vetur. Er það í fyrsta
skipti síðan 1936, að slík keppni fer
fram. Sigurvegari í þeirri keppni var
tólf ára gamall Reykvíkingur, Bragi
Hlíðberg. Keppt verður í þremur ald-
ursflokkum:, flokki 10 ára og yngri,
11 til 15 ára og 16 til 25 ára. Keppn-
in fer fram laugardaginn 17. apríl og
meta fimm dómarar hæfni keppend-
anna. Fyrstu verðlaun í hverjum
flokki verða kr. 35.000,- kennslu-
styrkur. Keppnin er á landsvísu,
þannig að ekki er skilyrði fyrir þátt-
töku, að vera félagi í F.H.U.R. Það
er von stjórnar Félags harmoniku-
unneda í Reykjavík, að þetta geti
bæði orðið til að auka metnað ungra
harmonikuleikara og ekki síður
þeirra, sem kenna á hljóðfærið.
Friðjón Hallgrimsson
fonnaður F.H.U.R.
Heimur harmonikunnar
á öldum Ijósvakans á ný
Góðar fréttir fyrir hlustendur Ríkisút-
varpsins. Þátturinn Heimur harmon-
ikunnar í umsjá Reynis Jónassonar hefur
á ný göngu sína eftir langt hlé með smá
undantekningum þó. Tónlistastjóri
R.Ú.V., Óskar Ingólfsson hafði samband
við Reyni og vildi fá þáttinn í dagskrána,
jafnvel út þetta ár. Fyrsti þátturinn fór í
loftið laugardaginn 22. janúarkl 16.20 og
stóð í heilar 40 mínútur. Ekki er annað
vitað en þessi tími eigi að gilda áfram.
Tímasetningin er með því besta sem ég
ímynda mér þar sem ekki er um hefð-
bundinn vinnudag að ræða. I þættinum
22. janúar kynnti Reynir m.a. Tatu
Kantomaa og fór svo á skemmtilegt flakk
með góðri kynningu um Brasilíu og þar-
lendan harmoníkuleikara. Munið, á laug-
ardögum kl. 16.20, Heimur harmonikunn-
ar, þátturinn sem beðið var eftir.
H.H.
ÁRSHÁTÍÐ
Félags harmonikuunenda í Reykjavík og
Þjóðdansafélags Reykjavíkur í Hreyfilshúsinu
vib Grensdsveg 13. mars 1999.
1. Húsib opnctð kl. 19.00
2. Hótíöin sett kl. 20.00
3. Matast við undirleik Wilmu Young
og Arnhildar Valgarðsdóttur.
4. Gestir skemmta sér d kostnað hvers annars. - Danssýning
5. Hljómsveit undir stjórn Sigurgeirs Björgvinssonar ósamt
söngkonunni Hjördísi Geirs tekur völdin um kl. 23.30 og
heldur þeim ab mestu fram til kl. 03.00
Mibaverb kr.2.500.- (aðeins), en kr. 1.200,- eftir kl. 23.00
Miðapantanir hjá skemmtinefnd.
Einar Olafsson
Ingvar Hólmgeirsson
Elsa Kristjánsdóttir
Guöný Siguröardóttir
Elisabet Einarsdottir
sími 554 2749
554 1115
553 8093
568 6422
587 3179
Þessir frábæru diskar eru nú til sölu,
auk spólu með framúrskarandi góðri
gömludansatónlist, sem vakti óskipta
athygli þátttakenda á harmoniku-
mótunum í sumar.
Verð á diskum kr. 1.500,-
Verðáspólum kr. 1.200,-
Sendingakostnaður innifalinn.
Pantið í síma 568 6422.
Friðjón Hallgrímsson.
15