Harmoníkan - 01.02.2000, Síða 8
Hið árlega og sívinsæla
.VORBALL
?V verður í Básnum, Ölfusi,
Iaugardagskvöldið13. maí n.k.
og hefst kl. 22 (eftir mjaltir)
Félag harmonikuunnenda á Selfossi
Harmonika til sölu
Brandoni King Line (kassotto)
píanóharmonika til sölu, 120 bassa,
4 kóra, svört að lit með giltum
áletrunum. Um er að ræða mjög
vandað og gott hljóðfæri.
Upplýsingar í síma
8670821 og 5540445
Ómar Skarphéðinsson
Ómar Skarphéðinsson sem að þessu
sinni er lagahöi'undur blaðsins er fæddur
í Kópavogi 20. ágúst 1949. Hann flutti til
Neskaupsstaðar 1970 og hefur búið þar,
allt til hann lluttist síðastliðið haust á ný
til bernskustöðvanna í Kópavogi.
Hann hefur leikið á harmoniku frá ell-
efu ára aldri með mislöngum hléum.
Hann gerðist félagi í Harmonikufélagi
Norðfjarðar og var formaður þess á árun-
um 1993 til 1999, eða þar til hann flutti
eins og áður sagði. Lagasmíði hefur
Ómar ekki stundað að nokkru ráði. Hann
sótti sér þekkingu í tónfræði til að læra
nótur og nótnaskrift. Upp úr því varð lag-
ið Tangó í G moll til og er jafnframt eina
lag Ómars sem til er á nótum, önnur eru
geymd í huganum. Lagið var sent til
lagakeppni Harmonikufélags Héraðsbúa
og komst þar í úrslit. Tangó í G moll hef-
ur verið leikið inn á tvo hljómdiska
Harmonikufélags Héraðsbúa. „A Taug-
inni" leikið af Tatu Kantomaa og „I skýj-
unum", þar sem öll úrslitalög í laga-
keppni H.F.H. má finna, lagakeppni sem
haldin var á landsvísu. Ómar er starfs-
maður Í.T.R. á skíðasvæðum í Hamragili
og Sleggjubeinsskarði. Ómar er kvæntur
Maren Ármannsdóttur frá Neskaupsstað
og eiga þau fimm börn.
H.H.
Tangó í G moll
Höfundur: Ómar Skarphéðinsson
Tangó í Gm
Ómar Skarphéðinsson
Qna
,h ^ ^ ir? Fine 1
Girt D7 Gm D7 Gm D7
Tölvuseö í febrúar 2000 Grétar Sivertsen
8