Harmoníkan - 01.02.2000, Qupperneq 11
ini, John Molinari og Carl Jularbo. Það
heyrist best hjá þessum mönnum hvers
harmonikan er megnug. Arnstein Johan-
sen og Sverre Komelius Lund kann ég að
meta. Ég var svo lánsamur að hitta þá á
tónleikum hér fyrir tveimur árum.
Annars varð ég svo frægur að taka í
hönd Toralf Tollefsen sem ungur maður.
Ég flæktist eitthvert kvöldið inn í gesta-
móttöku eða hótel og veitingaaðstöðu hér
í bænum (Ólafsfirði), sem kunningi minn
rak. Ætli ég hafi ekki verið að kaupa sí-
garettur, eða eitthvað annað að erinda
þarna uppeftir. Þá heyri ég að verið er að
rjála mikið við hurðina á snyrtingu sem
þarna var. Það er hrist og ég tek í húninn
og finn að það er lokað. Ég fór fram og
sagði að áreiðanlega væri einhver lokað-
ur inni á snyrtingunni. Svavar Gests og
Toralf sátu frammi í kaffisal þegar ég
sagði þetta. Svo fór ég með þeim þarna
inn og segi Svavari nánar frá þessu. I ljós
kom að það var kona Tollefsen sem var
lokuð inni, eitthvað fór úrskeiðis, hurðin
var í baklás. Svo dokaði maður við til að
aðstoða og það tókst að opna. Konan
hafði fengið hálfgerða innilokunarkennd
þarna inni. Það endaði með því að Tollef-
sen kom til mín og þakkaði mér fyrir
með handabandi.
Tónleikar meistarans voru svo um
kvöldið. Manni fannst hann vera ótrúleg-
ur snillingur í leik sínum og alveg
ógeymalegur atburður.
Verðlaun
Maður hefur spilað hér fyrir öll félög
og samtök, Slysavarnarfélagið, Kvenfé-
lagið og mörg fleiri. Ég hefi tekið að mér
að æfa upp sönghópa fyrir skemmtanir,
gert mikið af því og þá með píanói, leik-
ið undir gamanvísnasöng og við öll
möguleg önnur tækifæri. Menningar-
málanefnd Ólafsfjarðar veitti mér viður-
kenningu fyrir tónlistarframlag mitt.
Þetta gerðist á því ári sem ég náði 69 ára
aldri. Ekki átti ég nú von á þessu en allt
var gert mjög myndarlega og fallega af
góðum hug.
Lagahöfundurinn Jón frá Syðri-A
Aðspurður segist Jón hafa samið
nokkur lög, aðeins eitt sé til á nótum,
önnur á snældum og eitthvað í höfðinu á
honum. Að ekki sé fleira til á nótum, sé
trassaskap um að kenna. Lagið sem til er
á nótum, var Jón beðinn um að semja við
texta, sem notaður var við jarðarför. Flest
annara laga hans eru danslög, eða lög
samin við texta eftir hann sjálfan, en af
textum á hann efni í heila bók. Þetta eru
ýmsar stemmingar, upplifanir og sitthvað
innrammað í kringum módel hugarflugs-
ins. Hann hefur reynt að safna þessu
saman undanfarið. „Inn á eina plötu hef
ég leikið er heitir „Kleifaball", sem Pálmi
I Tívolí í Kaupmannahöfn, ferðafélagarnir
frá Olafsfirði héldu Jóni veislu þar, í tilefni
70 ára afmœlisins. Hér spilar Jón fyrir
japanskan kvennakór.
Guðmundsson á Akureyri (Studio
Bimbó) gaf út. A henni er blönduð dans-
tónlist, þar á meðal lögin, Aflakóngurinn
og Dansað í Holti sem eru eftir mig".
Auk þeirra samdi Jón lag sem er félags-
söngur Slysavarnardeildar kvenna í
Ólafsfirði, og sungið er á hverri árshátíð,
með texta eftir konu Jóns, Ingibjörgu
Guðmundsdóttur.
Unga fólkið! Ég dáist að þessu unga
fólki sem er að koma inn núna í harmon-
ikuleik. Þetta er tiltölulega nýtt og ég vil
nefna það hreint stökk. Það sem það spil-
ar, gerir það ótrúlega vel. Margir hafa
líka stutt þetta unga fólk, og kennt því
vel, eins og Messíana frá Isafirði og
Fanney á Akranesi, ásamt mörgum fleiri
sem miklar þakkir eiga skyldar fyrir elju
og óeigingjarnt starf. Ég trúi ekki öðru en
hæfir einstaklingar eigi eftir að ná langt
á þessu sviði, Oddný Björgvinsdóttir frá
Akranesi dvelur hér oft á sumrin í sum-
arbústað með foreldrum sínum, við tök-
um stundum lagið saman. Fjölmiðlar
mættu sína öllu þessu meiri áhuga.
Harmonikuþátturinn „Heimur harmon-
ikunnar1'. undir stjórn Reynis Jónasson-
ar, bjargar samt miklu, aðalatriðið er að
hafa þáttinn fjölbreyttan.
Kunningi minn píanóleikari sagði einu
sinni við mig að þó píanó sé klassískt er
það sálarlausasta hljóðfæri sem þú getur
fundið! Harmonikan hefur þann stóra
kost að hægt er að gefa henni sína tilfinn-
ingu og láta það koma fram. Þá vil ég
taka fram að blaðið Harmonikan er eitt af
nauðsynlegum þáttuin þessa starfs, og
fyrir utan fróðlegar og upplýsandi greinar
um ýmis málefni er blaðið sameiningar-
tákn og það vil ég ekki missa. Gagnrýni
er líka góð, ef hún er studd rökum, en
stóryrði og dylgjur eru dauðasök. Öll
umræða og skoðanaskipti eru af hinu
góða, friðsamlega fram borin. Gagnrýni
getur oft. komið af stað umræðu, sem
endar með góðri niðurstöðu.
Að lokum?
Mér er efst í huga þakklæti til allra
samstarfsmanna gegnum tíðina, alls
þessa góða fólks sem maður hefur kynnst
á landsmótum. Ég hef nú verið á öllum
nema því fyrsta í Reykjavík. Samstaðan
meðal þessa fólks er einstök, allir eru
jafnir, það einkennir beinlínis þessar
samkomur. Félagsandinn er sannur og
maður þekkir tolk orðið úr öllum lands-
hornum, alveg ómetanlegt.
H.H.
Útgefnir geisladiskar
Íjúlímánuði 1999 gafHartmann
Guðmannsson út sinn fyrsta geisla-
disk „Sól við fjörðinn“. A disknum
eru eingöngu frumsamin lög Hart-
manns og er hann jafnframt flytjandi
tónlistar. Diskurinn hefur fengið góð-
ar viðtökur enda hefur hann að
geyma gott sýnishorn af því sem
Hartmann er að fást við sem lagahöf-
undur, alls 13 lög. Nokkur laganna
eru útsett af Karli Adolfssyni.
Harmonikufélag Rangæinga gaf
út geisladisk á síðasta ári. Óhætt er
að fullyrða að hann sé ákaflega vel
heppnaður og gott yfirlit um hvers
megnugir spilarar félagsins eru.
Stjórnandi er Grétar Geirsson, en
hann hefur sinnt því embætti allar
götur frá stofnun félagsins, ásamt
spilamennskunni. Á disknum eru
bæði innlend og erlend lög, mörg eft-
ir meðlimi og spilara félagsins. Lagið
„Trimmað á góunni", tileinkaði fyrsti
formaður félagsins Valdimar Auð-
unsson félaginu. Alls eru á disknuni
16 lög, sem leikin eru bæði af hljóm-
sveit félagsins og ýmsum spilurum
yngri sem eldri. Upptökur fóru fram í
stúdió Glóru í Hraungerðishreppi.
Strákabandið er geisladiskur sem
einnig kom út 1999 með líflegum
spilurum frá Húsavík. Því miður
tókst mér ekki að afla nægra upplýs-
inga fyrir útkomu blaðsins nú.
11