Harmoníkan - 01.02.2000, Page 12
Evrópumeistarakeppnin
í Frosinitónlist 1999
Eflaust er best fyrir mig sem unnið
hefur að því síðastliðið ár að útvega
styrktaraðila og afla tjár fyrir keppanda
frá íslandi til þátttöku í umræddri Evr-
ópumeistarakeppni ásamt öðru því fylgj-
andi að fara sparlega með lýsingarorðin.
Ekki get ég samt látið ónefnda ánægju
mína, þakklæti og gleði á þeim mönnum
sem lögðu skilning og fjárframlög til
þessa verkefnis, sem var að koma í fyrsta
skipti í Islandssögunni, manni til keppni í
harmonikuleik meðal erlendra þjóða. Eg
bjóst aldrei við að nóg yrði að rétta fram
biðjandi höndina þegar brjóta þyrfti hefð-
ina eða breyta út frá vananum í áhuga-
mennskuframtaki hér á landi, þvert á
móti. Strax kom í ljós að ég átti mér
marga stuðningsmenn og þá ekki færri
úrtölúmenn. Hvað sem því Iíður var
kviknaður neisti sem ekki var auðslökkt-
ur og það tókst að viðhalda honum. Hann
tók síðan að loga glatt þegar styrktarféð
tók að berast frá fyrrnefndum stuðnings-
mönnum og frá öðrum sem fengu beiðni
frá mér um aðstoð.
Kynni mín af keppandanum Matthíasi
Kormákssyni komu mér ekki á óvart. Ró-
lyndi, og jákvæðni frá fyrsta viðtali. Nú
sat þessi efnilegi 18 ára harmonikuleik-
ari við hlið mér um borð í einni af vélum
Flugleiða „Valdísi" tilbúinn að takast á
við erlenda keppendur strax daginn eftir
brottför, þann 20. nóvember, austur í
Helsinki ! Hinn mikli málmfugl geystist
til lofts með afli sem erfitt er að lýsa.
Listaverkið við Leifstöð „Þotuegg“
minnir mjög á líkingu þessara loftfara
nútímans við fugla, enda þróunin beinlín-
is sprottin út frá stolti mannsins og undr-
un á hinum fiðruðu flugkúnstnerum í ríki
náttúrunar.
Eftir ljúft morgunflug með nærveru-
góðum ferðafélaga sem gluggaði í náms-
bækur sínar milli spjallkafla á leiðinni til
Stokkhólms lukum við fyrsta áfanga
ferðarinnar. Þar tók á móti okkur sjálfur
formaður Alþjóðlega Frosinifélagsins
Lars Ek með sínu gefandi brosi og nota-
legheitum. Hann bauð okkur heim til sín,
en hann býr rétt utan við Stokkhólm á
fallegum stað í jaðri þjóðgarðs er þangað
teygir sig. Eftir að hafa matast á heimili
hans og konu hans Ann Marie, fylgdi
einkakonsert Lars í kjölfarið, meðan beð-
ið var eftir leigubíl til að renna með okk-
ur öll að ferjunni til Helsinki. Þar bættust
í hópinn á annan tug samferðamanna
okkar í sömu erindagjörðum. Um borð í
ferjunni Silja Sinfoni vom 2100 farþeg-
ar auk 600 - 800 manna áhafnar, full
ferja. Þessi risaskip virka sem stórborg,
allstaðar veitinga og verslunarstaðir með
göngugötum og tilheyrandi ys. Tilhlökk-
unin tók nú að magnast. Við Matthías
kynntumst þarna góðum ferðafélögum
sem margir voru áhangendur Frosinifé-
lagssins á leið til keppninar og nú var
tekið í nikkurnar og það leið ekki á löngu
þar til Matthías blandaðist í hópinn með
sitt hljóðfæri.
Um kvöldið, eftir fínan málsverð rölt-
um við um skipið og enduðum á stórum
skemmtistað þar sem dansaður var
„River Dans“ af fjölda írskra dansara.
Frábær gleðistund fyrir svefninn. Við
bjuggum á öðru dekki niðri í skipinu
(mig minnir að hæðirnar hafi verið 14).
Á sömu hæð voru írsku dansararnir
einnig til húsa og tóku vel á móti norræn-
um nikkurum, sem bættust í hóp þeirra
að danssýningu lokinni. Um kl. 9 um
morguninn, eftir 16 tíma siglingu blasti
Helskinki við í morgunskímunni. Seppo
Lankinen hinn finnski fulltrúi keppninnar
tók á inóti okkur og ók farangrinum til
Hótel Grand Marina. Aðrir gengu til hót-
elsins enda skammt að fara.
Framundan var stíf dagskrá. Strax eft-
ir að frágangi fylgihluta ferðarinnar á
hótelinu lauk, hófst ráðstefna Frosinifél-
agsins á neðstu hæð hótelsins. Því miður
féllu tvær þjóðir frá þátttöku, Skotland
vegna fjárhagsvandræða og Danmörk af
óljósum orsökum. Þá mætti fulltrúi Fros-
inifélagsins í Noregi ekki, en þaðan kom
engu að síður keppandi, sem einnig sat
fundinn í stað John Mandelid. Fundinn
sátu formaður IFS, Lars Ek frá Svíþjóð,
Stefan Eriksson ritari, Seppo Lankinen
frá Finnlandi, Emil Johansson frá Noregi,
Oleg Sharov var fulltrúi Rússlands og
Hilmar Hjartarson fyrir Islands hönd.
Ekki reyndist mögulegt að ljúka dagskrá
fundarins fyrir keppnina kl. 15 á laugar-
deginum og var honum framhaldið kl. 9
á sunnudagsmorguninn. Keppnin sjálf
hófst kl. 15 í Esbo-tónleikasalnum í smá-
bænum Espo nærri Helsinki. Til keppni
voru mættir Islendingurinn Matthías
Kormáksson 18 ára, Mikhael Broberg 23
ára frá Svíþjóð, Emil Johansen 23 ára
fyrir hönd Norðmann, Sampo Torttila 17
ára Finnland, og Oleg Kouznetsov 17 ára
Rússi.
Dómarar í þessari keppni voru þeir
Seppo Lankinen, Oleg Sharov og Lars
Ek, sem jafnframt var yfirdómari. Skil-
yrði í keppninni er að hver keppandi leiki
tvö lög, annað eftir Frosini en hitt að eig-
in vali, í svipuðum styrkleikaflokki.
Keppendur komu nú hver á fætur öðrum,
harðir keppnismenn og metnaðarfullir.
Ég ætla ekki að lýsa stolti mínu fyrir Is-
lands hönd er Matthías hafði lokið leik
sínum, sannkölluð hetja og síst eftirbátur
hinna. Matthías lék Rhapsody no.2 í C
moll (c minor) eftir Pietro Frosini og
Scherzo eftir John Gard.
Eikunnagjöfin kom nokkuð á óvart
eins og gengur. Vinningshafinn og þar
með Evrópumeistari í Frosinitónlist varð
hinn 23 ára gamli Svíi, Mikael Broberg
og lék hann Accordiana eftir Charles
Magnante og Fancy Twister eftir Pietro
Frosini. Mikael lék á Skandia harmoniku
A heimili Lars Ek, liér spilar hann fyrir gest sinn.
12