Harmoníkan - 01.02.2000, Síða 14
Matthías í léttum leik meðal góðrafélaga í lokaveislunni í Helsinki.
skoðanir voru viðraðar, um það sem bet-
ur mætti fara.
Heimferðadagurinn rann upp með sjö
gráðu frosti í Helsinki einni af menning-
arborgunt Evrópu árið 2000. í útsýnisferð
um borgina bar margt fyrir augu sem
eyru og á ný hoppuðum við um borð í
ferjuna til Stokkhólms seinni part sunnu-
dagsins með ferðafélögum okkar og nut-
um vinskapar og gleði næstu 16 tímana í
vöku sem svefni. Með meiri reynslu og
jafnframt ntinningar lá íslensk jörð undir
fótum aftur eftir tæplega fjögurra daga
fjarveru, og hver veit hvað gerist næsta
haust í Stokkhólmi?
Hilmar Hjartarson
HVAÐ SEGIR MATTHÍAS SJÁLFUR UM
KEPPNISÞÁTTTÖKUNA
Mér fannst það spennandi hugmynd
sem Hilmar Hjartarson fékk um að ég
tæki þátt í Frosini Grand Prix. Áður en
ég lagði upp í ferðina hélt ég að keppnin
væri talsvert stærri í sniðum en raun bar
vitni. Það kom mér því þægilega á óvart
að ganga inn í 200 sæta sal. Fyrir keppni
var okkur keppendunum vísað inn í her-
bergi baksviðs þar sem við áttum að æfa
og undirbúa okkur andlega fyrir keppn-
ina.
Svo steig ég á svið, sá fjórði í röðinni
og spilaði mín tvö verk. Sjálfstraust mitt
hafði aukist við það, að uppgötva, að
þetta var allt smærra í sniðum en ég hafði
búist við og mér tókst að komast í gegn-
um lögin stóráfallalaust. Þegar ég gekk út
af sviðinu var ég því ánægður með ár-
angurinn. Þegar á heildina er litið var
þetta stórkostleg reynsla og ég kom heim
fullur af metnaði og áhuga fyrir að halda
áfram á sömu braut. Það var mjög gaman
að hitta erlenda jafnaldra, sem eru að fást
við harmonikuleik, kynnast hæfni þeirra
og sjá hvar maður stendur miðað við þá.
Eg vil þakka Hilmari fyrir að hafa látið
sér detta þetta í hug og þó aðallega fyrir
að hafa hrint hugmyndinni í framkvæmd.
Einnig vil ég þakka styrktaraðilum kær-
lega fyrir veittann stuðning og síðast en
ekki síst Grétari Sívertsen, fyrir lán á
harmoniku.
Matthías Kormáksson
Vadim Fjodorov til ísafjarðar
Sigríður Ragnarsdóttir skólastjóri
Tónlistarskóla Isatjarðar hefur ráðið til
skólans rússneskan harmonikukennara.
Hann er enginn annar en Vadim
Fjodorov (sá sem lék með glasið á
harmonikunni), annar tvíburanna sem
spiluðu á Landsmótinu og síðar kom
til tónleikahalds hér m.a. ísafjarðar nú
fyrir skömmu. Vadim er ráðinn til
skólans í 2 mánuði eða til vors meðan
Messíana Marselíusardóttir er að ná
sér eftir veikindi. Messíana hefur haft
26 nemendur í harmonikunámi á síð-
ustu önn og má segja að koma Vadim
til Isafjarðar sé einskonar lán f óláni.
Harmonikan óskar Messíönu góðs
bata. I eigu tónlistarskóla Isafjarðar eru
15 harmonikur.Vadim kom til Isafjarð-
ar 15. febrúar og verður skemmtilegt
að fylgjast með hvernig hið rússneska
vítamín virkar á nemendur vestra. Til
hamingju Isfirðingar. // /y
Vadim Fjodorov kennir nú á Isafirði
Harmonikufélög
Skagafjarðar og
Húnavatnssýslna
Hin árlega fjölskyldu-
hátíð harmonikuunn-
enda í Húnaveri verður
að þessu sinni haldin um
Jónsmessuhelgina dagana
23.- 25. júní
næstkomandi.
Nánar auglýst í maíblaði
Harmonikunnar.
F.H.S. og F.H.H.
14