Harmonikublaðið - 01.12.2006, Side 3
Frá ábyrgdarmanni
Harmonikubladið
ISSN1670-200X
Ábyrgðarmaður: Hreinn Halldórsson
Faxatröd 6, 700 Egilsstöðum
Sími 4711884, 866 5582
Netfang: fax6@simnet.is
og hreinn@egilsstadir.is
Prentvinnsla:
Héradsprent, Egilsstöðum
Netfang: print@heradsprent.is
Meðal efnis:
- H.U.H. 25 ára
- Afmælishátíð H.R. og H.F.S. í Hveragerði
- Harmonikusýning EG-TÓNA í Reykjavík
- Nikkolína 25 ára
- Lag blaðsins - „Við Löginn"
- Harmonikufélag Vestfjarða 20 ára
- Sigrún Bjarnadóttir minning
- Birgir Hartmannsson minningabrot
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 19.000
1/2 síða kr. 12.000
Innsíður 1/1 síða kr. 15.000
1/2 síða kr. 9.500
1/4 síða kr. 5.500
1/8 síða kr. 3.500
Smáauglýsingar kr. 2.000
Forsíðan:
lólamynd.
Efni ínæsta blað, sem kemurútíbyrjun maí,
þarfað berastfyrins. apríl.
Komið þið sælir lesendur góðir. Þá eru
sumarið og haustið að baki, kominn
vetur og jólin á næsta leiti. Þá er þriðja
blað þessa árs orðið að veruleika og er
efnið að stórum hluta tengt afmælis-
hátfðum nokkurra aðildarfélaga SÍHU.
í lok september var aðalfundur SÍHU
haldinn í Hveragerði. Fyrir utan venjuleg
aðalfundarstörf lágu ýmis mál fyrir
fundinum, t.d. lagabreytingarogútgáfa
Harmonikubiaðsins. Ekki náðist niður-
staða um framtfð blaðsins en umræðan
gekk út á að fjölga áskrifendum með
því að aðildarfélög SÍHU keyptu blaðið
fyrir sína félagsmenn og bæru ábyrgð á
greiðslu árgjalds þess. Á móti mundi
áskriftarverð lækka all nokkuð. Niður-
staða fundarins varð sú að fara með
þessa spurningu heim í hérað til
afgreiðslu á aðalfundi hvers félags.
Áföstudagskvöldið.fyriraðalfundinn,
buðu Harmonikufélag Reykjavíkur og
Harmonikufélag Selfoss til glæsilegrar
veislu á hótel Örk
þar sem þau héldu
upp á 20 og 15 ára
afmæli sín. Þá hafa
hafa Harmoniku-
félag Vestfjarða,
Harmonikufélagið
Nikkolfna og Félag
Harmonikuunnenda
í Húnavatnssýslum
haldið veglegar
afmælisveislur.
Þessara tímamóta er
minnst í blaðinu og
Ijóst er að harm-
onikan á enn góðum
vinsældum að fagna.
Til að það góða starf sem víða er
unnið nái að blómstra enn frekar þarf
að fjölga ungu og áhugasömu fólki í
félögunum og vinna að því að fólk á
öllum aldri fái áhuga á að læra á
harmoniku, sér og öðrum til ánægju.
í síðasta blaði fór ég fram á lag í
blaðið, ekkert lag barst. í huga minn
kemur stundum lag úr einni af
lagakeppnum Harmonikufélags Héraðs-
búa, eftir Jónas Þór jóhannsson,
núverandi formann SÍHU. Þar sem þetta
lag höfðar til mín þá datt mér í hug að
leita til Jónasar og fá að birta lagið í
blaðinu. Eftir miklar fortölur fékk ég
hann á mitt band og vona ég að þið
njótiðvel. Lagið heitir „Við Löginn".
Sigrún Bjarnadóttir er látin. Þó ég
þekkti hana lítið persónulega þá komst
ég ekki hjá að sjá áhugann og dugn-
aðinn við allt það sem snerti harmon-
ikutónlist og framgang hennar. Auk
trúnaðarstarfa fyrir félagið sitt þá var
hún formaður SÍHU og fórst það vel úr
hendi. Hafi hún kæra þökk fyrir hennar
mikla framlag til tónlistarinnar sem hún
unni svo mjög.
Samkvæmtvenju átti að vera pistilfrá
Jónasi Þórjóhannssyni en þarsem hann
er fjarri nútíma tækni um sinn þá sendir
hann sínar bestu kveðjur til ykkar.
Að lokum þá vona ég að þið eigið
góða stund með blaðinu, eigið gleðileg
jól og njótið farsældar á komandi ári.
Hreinn Halldórsson.
^l/m- /eið oejf við óá/oivm ö//um
/amm&ni/cuuvineMc/iim cjf/eði/ecjfvaýó/a
oa ýamáee/c/am d /ccmvccrvc/i dmij
vé/jeom véð jía//a jíeim áem áýne/a
j//acj<inu /i/ý/uujf, d 20 dru afímce/i/veáá.
W'
,,EYKJAVÍKUfl
Harmonikublaðið
desember 2006
Góðir áskrifendur!
Vinsamlega leggið áskrift blaðsins,
kr. 1.500.- fyrirárið 2006 inn á reikning
nr. 0305 -13- 700,
&{mf/cjuvé/um
Kt. 030349-3859
Mikilvægt er að nafn og/ eða kennitala áskrifanda
blaðsins komi fram þegar greitt er.
3