Harmonikublaðið - 01.12.2006, Qupperneq 4
Félag harmonikuunnenda
í Húnavatnssýslum 25 ára
cjtV 'CJrV »t5: -orV »t5: 'CjfV jtt« »t« 'CJt-S'- :rT« spt«
Að beiðni þeirra sem gefa út Harmoniku-
blaðið tek ég hér saman sögu H.U.H. í
grófum dráttum, vegna 25 ára afmælis
félags okkar. Verður bara stiklað á stóru.
Árið 1981 hinn 1. maí komu saman á
Hótel Blönduósi eftirtaldir aðilar til að
stofna félag harmonikuunnenda í
Húnavatnssýslum: Þórir Jóhannsson, Jón
Kristjánsson, Guðmundur Ásgeirsson,
Magnús Agnarsson, Magnús Sigurðsson,
SigfúsGuðmundsson.SveinnKjartansson
og Einar Þorláksson, fjórir gerðu boð um
þátttöku í félagið en gátu ekki mætt á
fundinn. Sumir af þessum stofnendum
eru starfandi ennþá, aðrir fluttir í burt og
aðrir komnir í staðinn.
Félagar eru nú 20, ekki nærri allir spila
á hljóðfæri, en margt er hægt að gera
fyrir félagsskapinn, þegar það er með
samkomur á sínum vegum og svo að sýna
samstöðu með mætingu.
15. nóvemöer 1981 er svo haldinn
framhaldsstofnfundur og búin til lög og
samþykkt. Hafði þá félagið orðið lög til
að starfa eftir f grófum dráttum. Félagið
hefur starfað óslitið frá stofnun þess að
mestu leyti.
Þórir Jóhannsson var fyrsti
formaður H.U.H. og var í mörg
ár, síðan tekur Svavar Jónsson
við í eitt ár. Haustið 2000 tekur
Alda Friðgeirsdóttir við for-
mennsku H.U.H. og er búin að
vera í þessu síðan.
Fyrstu samkomur félagsins
fóru fram á Hótel
Blönduósi, því þegar búið
var að stofna félagið varð
að fara að gera eitthvað,
þessar samkomur voru
dansleikir, sem nefndir
voru „fótafjör" þarna
mættu þeir sem höfðu
gaman af að dansa eftir
harmonikumúsik, einnig
voru fengnir með nikk-
urunumtromuleikari oggítarleikari
H.U.H. hafði dansleik til ágóða
fyrir landssöfnunina „Samhugur í
verki“ (Flateyrarsöfnunina).
Var það mjög góð upphæð sem
tókast að hafa upp úr því.
Hagyrðingakvöld eru orðnir
fastir liðir í starfi H.U.H. Fyrst var
þetta í samvinnu við Félagsheimilið á
Blönduósi en nokkur ár eru orðin sfðan
að H.U.H. tók þetta alveg að sér. Er þá
fenginneinhvergóðurtilaðfáhagyrðinga,
taka saman efni til að yrkja um og stjórna
þessu. Að þvf loknu er dansað fram á
nótt. Þetta er orðin mjög góð skemmtun,
hagyrðingarnir koma víða að. Einnig eru
fengnar gesta harmonikusveitir til að
spila með H.U.H. til að fá tilbreytingu í
þetta.
Einar Guðmundsson hefur komið með
sveit vestlendinga svo og Dalamenn,
ásamt fleirum.
Bolludagurinn er notaður til samkomu-
halds í samstarfi við Tónlistarskólann,
eru þá fengnir ungir tónlistarmenn til að
spila þarna ásamt tónlistarkennurum.
Þetta er búin að vera fastur liður hjá
félaginu í nokkur ár, enda gott samstarf
við skólann. H.U.H. hefur gefið
Tónlistarskólanum nokkrar æfinga-
harmonikur í gegnum árin. Við erum
einnig búin að vera í góðu samstarfi við
félagsheimilið hér á Blönduósi, höfum
fengið aðvera þarmeð margarsamkomur
okkar, og einnig æfingar fyrir félagið. Þar
af leiðandi var ekki annað hægt en að
þakka fyrir sig með einhverju sem kæmi
félagsheimilinu vel og var þvf ráðist í það
árið 2000 að gefa húsinu píanó og stól
við, þar sem það sem fyrir var, var orðið
gamallt og lúið. Einnig gaf H.U.H. árið
2003 peningaupphæð í félagsheimilið,
því þá var verið að lagfæra hljóðkerfi
hússins.
Fjölskylduhátíðin í Húnaveri um
Jónsmessu er búin að vera fastur
Á æfingu í Ósbæ árid 2005.
Á Bolludaginn árið 2005. Tveir ungir nemendur úr
Tónlistarskólanum með kennara sínum Stefáni jónassyni.
4