Harmonikublaðið - 01.12.2006, Page 7
Harmonikusýning EG-TÓNA í Reykjavík
7. október 2006
Laugardaginn 7. október s.l. var blásið
til samkomu hjá harmonikuleikurum á
Reykjavíkursvæðinu.
Ekki svo að skilja, að þarna hafi verið
um tónleika eða keppni í harmonikuleik
aðræða.Neifjarriþví.EinarGuðmundsson
í EG tónum á Akureyri lagði til atlögu á
svæðinu og hélt harmonikusýningu. Þess
háttar fyrirbæri eru vel þekkt á
harmonikumótum á sumrum, en þarna
bar nýrravið.Tilsýningarnnarleigði Einar
sal Lyonshreyfingarinnar í Sóltúni 20 f
Reykjavík og var ekki laust við að honum
og Gunnari Kvaran, umboðsmanni EG -
TÓNA á Suð-vestur horninu, fyndist
jafnvel f fullmikið lagt. Það voru óþarfa
áhyggjur.
Strax við opnunina var kominn
dálaglegur hópur áhugasamra
harmonikuleikara, þar sem gömul kynni
voru endurnýjuð og undir lokin má segja
að flestir hafi verið orðnir þokkalega
málkunnugir, enda harmonikuleikarar
aldrei málglaðari, en þegar ný hljóðfæri
ber á góma. Það myndast alltaf ákveðin
stemming þegar margir harmonikuleik-
ararhittastá hljóðfærakynnningu. Maður
er jú manns gaman.
Þessi stóri salur varð sem sagt
troðfullur fljótlega og var til loka
sýningarinnarogekki að undra, þvf margt
nýstárlegt bar fyrir augu og eyru. Þarna
var mikið úrval af allskyns harmonikum,
stórum, smáum, hnappa- og píanó,
ódýrum, dýrum og ennþá dýrari. Svo
sannarlega eitthvað við allra hæfi. Þá má
ekki gleyma allskyns fylgihlutum, s.s
axlaólum o.fl. Þá var ágætis úrval af
geisladiskum, víðsvegar að úr heiminum
Til skrauts hafði Einar fengið fjóra
safngripi frá þeim magnaða safnstjóra á
ísafirði, Ásgeiri S.Sigurðssyni og gerðu
þeir mikla lukku.
Til enn frekara skrauts voru mættir
góðir stuðningsaðilar málefnisins, sem
settust með hljóðfæri og léku af fingrum
fram hina „þægilegustu" tónlist. Þarvoru
m.a. Bragi Hlíðberg, Reynir Jónasson, Jón
Aðalsteinsson, Ingvar Hólmgeirsson og
Guðmundur Samúelsson og urðu þeir
aðeins til að gera gott andrúmsloft ennþá
betra.
Einar Guðmundsson hafði að
sjálfsögðu í mörg horn að líta þennan
eftirminnilega dag, eins og gefur að
skilja. Hann leysti allra vanda á sinn
hægláta hátt, sem ætíð hefur einkennt
hans framgang. Undirritaður minnist
Sýnd var
sundurtekin
harmonika
- mikið úrvalvar
af geisladiskum.
Harmonikur úr
harmonikusafni
Ásgeirs Sigurdssonar
á fsaprdi, elsta
harmonikan frá 1830.
þess að minnsta kosti ekki, að hafa séð
Einar leysa vandamál með óðagoti.
Miðað við þessa fyrstu sýningu Einars
Guðmundssonar, EG - TÓNA, í Reykjavík,
er auðsætt að hann verður að fá meiri
aðstoð við kynningar þegar næsta sýning
verður, sem fyrst vonandi. Kærar
þakkir fyrir komuna til höfuð-
staðarins.
Friðjón Hallgrímsson
7