Harmonikublaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 6
Messíana Marzellíusdóttir
<%*■
Messíana Marzellíusdóttir hefur kennt á
harmoniku hjá Tónlistarskóla ísafjarðarfrá
árinu 1988. Hún erfædd á ísafirði 18. mai
1942. Tónlistin varð snemma mikið áhuga-
mál hjá henni og níu ára gömul hóf hún
píanónám í Tónlistarskóla ísafjarðar hjá
Elísabetu Kristjánsdóttur. Síðarvarhún
nemandi hjá Ragnari H. Ragnar, og vissi
þá ekki að hún ætti eftir að giftast syst-
ursyni hans. Aðeins 14 ára gömul fór hún
að kenna sínum fyrstu nemendunum undir
handleiðslu Ragnars. 16 ára fór hún til
Reykjavíkur í pfanónám hjá Jóni Nordal
með áherslu á undirleik. Hún dvaldi þar í
eitt ár og fór svo aftur vestur til ísa-
fjarðar.
Árið 1960 fór hún í húsmæðraskólann að
Laugum f Reykjadal og kynntist eiginmanni
sínum Ásgeiri S. Sigurðssyni þar. Ætlunin
hafði verið að fara í framhaldsnám í píanó-
leik eftir húsmæðraskólann, en þau áform
breyttust og þau Ásgeir hófu búskap á
ísfirði og eignuðust þrjár dætur. Messíana
kenndi við Tónlistarskólann á ísafirði til
ársins 1974, en tók þá tíu ára hlé frá kennsl-
unni á meðan hún var verslunarstjóri.
Kennslan togaði þó í hana og árið 1984
hóf hún aftur kennslu við TÍ á píanó. Hún
hefur unnið mikið með ungu fólki ogtil að
mynda var hún í einn vetur undirleikari
með ungum og upprennandi fiðlusnillingi,
sem þá var aðeins 12 ára gamall, Hjörleifi
Valssyni og áttu þau gott og farsælt sam-
starf. Ásgeir kynnti hana fyrst fyrir harm-
onikunni. Framan af var hún alls ekki hrifin
af hljóðfærinu:
“Ásgeir hafði átt
harmoniku í
gegnum árin ogég
man eftir að hafa
sent hann út í bíl-
skúr að æfa sig,
því mér fannst
þetta ekki vera
hljóðfæri”, segir
Messíana og hlær. Messíana Marzellíusdóttir
Hún átti ekki von
á að hún myndi nokkurn tíma spila sjálf á
harmoniku, en raunin varð önnur. “Við
fórum á harmonikulandsmót í Eyjafirði árið
1987 og þá vaknaði áhugi minn fyrir hljóð-
færinu”, segir Messíana. Þá spiluðu Jón
Aðalsteinsson og Sigurður Hallmarsson
saman dúett ogég heillaðist af þessu sam-
spili”. í framhaldinu fóru Messíana og
Reynir Jónasson, harmonikuleikari og
frændi Ásgeirs að spjalla saman og fékk
hún hvatningu frá Reyni um að fara að spila
á hljóðfærið. Hún tók þá nokkra tíma hjá
Hrólfi Vagnssyni í Bolungarvík og hóf
kennslu á harmoniku haustið 1988. Einnig
hlaut hún handleiðslu hjá Reyni Jón-
assyni.
Harmonikufélag Vestfjarða gaf tónlistar-
skólanum tvær harmonikur með hvatningu
um að harmonikukennsla yrði tekin upp í
skólanum. Messíana segir að það hafi
ekki síst verið fyrir velvild og áhuga Sig-
ríðar Ragnarsdóttur, skólastjóra tónlistar-
skólans að hún hóf kennslu á harmoniku
og strax fyrsta veturinn var mjög góð
aðsókn. Fljótlega þurfti Messíana að
hverfa frá píanókennslunni, þar sem hún
hafði fullt í fangi með harmonikukennsl-
una, svo mikil var aðsóknin og komust
færri að en vildu á tímabili. Aldursbil nem-
enda var mjög breitt, frá 5 ára upp í sjötugt.
Nokkrar harmonikuhljómsveitir hafa verið
stofnaðar ígegnum tfðina sem hafa spilað
víða um bæinn. Messíana segir að áhug-
inn fyrir harmonikunni hafi komið sér á
óvart, og 1 raun varð vakning fyrir hljóð-
færinu á þessum tíma. Fljótlega hvatti hún
til samræmingar á námsefni og kallaði
saman þá harmonikukennara sem hún vissi
um. Þau hittust og ræddu málin og síðan
hefur verið góð samvinna á milli harm-
onikukennara á landinu. Messíana sérekki
eftir að hafa snúið sér að harmonikunni:
“Ég hef eignast marga góða vini í gegnum
þessi ár, bæði harmonikuunnendur, nem-
endur og foreldra”. Þau hjónin státa af
eina harmonikusafni landsins en Ásgeir
hefur safnað harmonikum f hátt í tvo ára-
tugi og eru þær nú um 150 talsins. Harm-
onikan hefur þvf skipað stóran sess í lífi
þeirra hjóna. Safnið hefur verið afhent
ísafjarðarbæ til eignar og verður varðveitt
í Byggðasafni Vestfjarða. Messíana var í
sumar heiðruð af Sambandi íslenskra
harmoniku unnenda fyrirstarf íþágu harm-
onikunnar.
S.G.Á.
Minning - Karl Adolfsson
Það var sannarlega góð viðbót og þörf
þegar Karl Adolfsson bættist í raðir harm-
onikuunnenda.Með honum kom þekking
sem sárlega vantaði þó áhuginn væri nógur.
Karl hóf kennslu fyrir þá sem vildu og jafn-
framt að stjórna hljómsveit félagssins.
Fljótlega var farið að huga að hljómplötu-
gerð og þá þurfti útsetningar og sam-
æfingar sem hann annaðist af kostgæfni.
Lög sem heyrts höfðu í útvarpi eða einhver
átti á plötu voru óðar komnar á nótur úr
hans höndum.hvort sem var skandinavískur
ræll eða ave verum eftir Mozart.
Þegar kom að sjálfri hljómplötugerðinni
voru handskrifaðar útsetningar á hverju
púlti.Alls gerði hann 169 útsettningar. Allt
var þetta unnið af gleði og gjafmildi. Ljós-
ritaf þessum lögum voru gefin um allt land
þar sem harmonikuleikur er stundaður.
Sem harmoniku- og saxafónleikari var Karl
Adolfsson vel sjóaður frá síldveiðiárum fyrir
norðan, spilaði á helstu dansstöðum á
norðurlandi og hér syðra fVetrargarðinum
með hljómsveit Karls Jónatanssonar. Karl
Adolfssonvarsérlega handgenginnsvinginu
og lék þá tónlist glettilega vel.Hann spilaði
með ýmsum hópum félags harmonikuunn-
enda, þá lék hann á plötu Hjördísar Geirs
ásamt Sigurgeir Björgvinssyni.
Karl var jarðsunginn frá langholtskirkju
2ó.ágúst sl.Við útförina lék Reynir Jónasson.
Efirlifandi ástvinum senda harmonikuunn-
endur samúðarkveðjur.
H.J.
6