Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 7

Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 7
Breiðumýrarhátíd - 25. - 27. júlí 2008 Það er orðin fastur liður hjá félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð og harmonikuféiagi Þingeyinga, að halda útileguhátíð að Breiðu- mýri síðastu helgina í júlí, og hefur aðsókn verið að aukast. Var mæting mjög góð þrátt fyrir að Landsmót S. í. H.U. væri nýlega afstaðið.en það fór fram í Reykjanesbæ. Undirritaður var mættur síðdegis á fimmtudegi og voru þá þegar all nokkrir mættir. Hafist var handa við að reisa tjaldið, sem er alveg ómissandi vegna þess að húsnæðið er orðið of lítið fyrir allan þann fjölda sem kemur. Um kvöldið komu menn saman með hljóðfærin.og var mikið spilað og sungið fram eftir. Á föstudags- kvöldið var dansleikur að venju sem stóð til kl.oi.og skemmti fólk sér vel. Á laugardeginum voru haldnir tónleikar við góðar undirtektir. Þeir sem þar komu fram voru, Jón Árni Sigfússon, Aðalsteinn ísfjörð, Bragi Hlíðberg, Stórsveit F.H.U.E., Sigurður Hallmarsson og Árni Sigurbjarnarson , og fengu allir mjög mikið lof fyrir. Harmoniku- sýning Einars Guðmundssonar (E.G.Tónar.) ______________________________ _________________________________________ var á sínum stað að venju. Grillið var tilbúið kl. 6 og var þá tekið til við að grilla kvöldsteikina af miklu kappi. Dansleikur; hófust svo kl. 10:00 ogvar dansað bæði inni ogeinnig úti ítjaldinu, ogskiptust spilarará að leika úti ftjaldi og inni í sal. Dregið var f happdrættinu milli ellefu ogtólf ogfengu margir góða vinninga ogsumirtvo. Dansleiknum lauksvo kl. 03:00 Sunnudag- urinn heilsaði með blíðviðri sem hélst allan daginn. Spilarar sem sátu sunnan við húsið urðu að flýja í skuggann svo þeir og hljóð- færinn hlytu ekki skaða af. . , ‘ÞorStemberg ‘Palsson Grein um Gudmund Samúelsson Guðmundur Samúelsson var einn þeirra aðila er heiðraðurvar á síðasta landsmóti er haldið var f Reykjanesbæ. Guðmundur er fæddur að Hrafnabjörgum í Ögurhreppi, Norður ísafjarðarsýslu 4. apríl 1941. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Núpi árið 1957 og ári sfðar útskrifast Guð- mundur sem búfræðingur frá Hvanneyri. Ekki lét hann hér við sitja, því hann hóf strax nám í húsasmíði og lauk sveinsprófi í þvf fagi árið 1966. Hann starfaði sfðan sem byggingarmeistari á Akranesi til ársins 1990. Straxá sjöunda áratugnum hóf Guðmundur tónlistarnám og var klarinett fyrsta hljóð- færið sem hann tókfyrir og lékGuðmundur meðal annars í Lúðrasveit Akraness í nokkurár. Einnigsönghann íkarlakórnum Svönum og Kirkjukór Akraness. Árið 1990 flytur hann búferlum til Reykjavíkur og hefur nám íTónskóla Þjóðkirkjunnar og stundar það í tvö ár. Það var árið 1983 sem Guðmundur tók til við harmóníkuna (Guðmundur er tals- maður þess að harmónfka sé ritað með ó og í og verður því fylgt í þessari grein) og stundaði hann sjálfsnám á það hljóðfæri um tveggja ára skeið og í framhaldi af því sótti hann hóptíma hjá Gretti Björnssyni veturinn 1985 -1986 Hann hefur verið ötull að afla sér þekkingar á harmóníkuna og sótt námskeið og tíma hjá meisturum eins og Renzo Ruggieri, Tatu Kantomaa og Lars Holm, en hjá honum hefur Guðmundur sótt þrjú námskeið. Síðan hefur skóli lífsins og Lars Holm verið hans hjálparhella í harmóníkuleiknum. Guðmundur hóf að kenna harmóníkuleik við Tónlistarskólann í Keflavík árið 1994 að beiðni Kjartans Más, skólastjóra og ári seinna réði hann sig sem kennara í harm- óníkuleik við Tónlistarskóla Grafarvogs og Tónlistarskóla Eddu Borg og hefur hann kennt í þessum skólum síðan. Guðmundur hefur gengtýmsum trúnaðar- störfum, formaður iðnnemafélags Akra- ness, formaður Meistarafélags bygging- armanna á Akranesi. Hann starfaði með Harmóníkufélagi Vesturlands og með Félagi harmóníkuunnenda í Reykjavík. Hann er nú formaður Harmóníkuakadení- unar á íslandi. Guðmundur er giftur Guð- rúnu Jóhannsdóttur og eiga þau þrjá syni, og fimm barnabörn og eitt barnabarna- barn. Af ofangreindu má sjá að Guðmundi er margt til lista lagt, en þó má greina að tónlistin er honum í blóð borin og á fljót- lega á lífsleiðinni hug hans allan. Hann hefur til margra ára starfað ötullega að uppbyggingu unglingastarfs innan Félags harmóníkuunnenda f Reykjavík og stjórnað ungmennahljómsveit félagsins með glæsi- brag undanfarin ár. Guðmundur starfaði einnig um árabil að uppbyggingu ungling- astarfs innan S.Í.H.U. og fyrir allt þetta ber að þakka. G.K. 7

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.