Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 10
Hefur spilað á harmoniku frá 15 ára aldri
Halldór Þorgils Þórðarson er í hópi þeirra
sem heiðraðir voru á Landsmóti S.í .H.U. í
Reykjanesbæ, fyrir störf í þágu harmonik-
unnar. Harmonikublaðið langaði að vita
nánari deili á manninum ogafþvítilefni hitti
undirrituð hann fyrir skömmu og spjallaði
við hann um harmonikuspil o.fl.
Hefur þú alltaf búið í Dölunum?
Já, ég er fæddur á Breiðabólsstað á Fells-
strönd 5. janúar 1938 og hef alltaf búið þar,
að undanteknum þeim vetrum sem ég var í
skóla á Hvanneyri og f Reykjavík. Ég tók við
búi af föður mínum og hef svo búið í félagi
við Þórð son minn sem er að mestu tekinn
við búinu. Kona mín er Ólafía Ólafsdóttir og
við eigum 5 börn.
Heimili okkar hefur verið í Búðardal sfðan
ég tók við skólastjórn Tónlistarskóla Dala-
sýslu árið 1994 en ég lét af því starfi s.l.
vor.
Við ætluðum að ræða um harmonikuna og
hvernig hún hefur verið samferða þér.
Égvarisára þegarégfékklánaða harmoniku
og prófaði að spila og fannst það gaman og
svo keypti ég fyrstu harmonikuna árið eftir
og fór þá f nokkra tíma hjá Magnúsi Þéturs-
syni. Ég var í orgelnámi 2 vetur, 1953-1954
og 1956-1957 í Söngskóla þjóðkirkjunnar
eins og hann hét þá og var í tímum hjá Páli
Kr. Pálssyni og Mána Sigurjónssyni. Spilaði
fyrst í kirkju árið 1957 og hef verið organisti
síðan, en þó ekki samfellt. Égfór að kenna
á harmoniku og orgel við Tóntistarskóla
Dalasýslu þegar hann var stofnaður árið 1976
og nemendum á harmoniku hefur fjölgað
seinni árin og ef til vill er það Harmoniku-
félaginu Nikkólínu dálítið að þakka líka,
starfið þar hefur vakið áhuga á harmonik-
unni.
Harmonikufélagið Nikkólína var stofnað
1981, hefur þú verið með í félaginu frá upp-
hafi?
Já ég hef verið með frá byrjun og þetta hefur
veitt mér ómælda ánægju að spila með
Nikkólínu og þetta er góður félagsskapur.
Ég hef atltaf verið með í hljómsveitunum í
Nikkólínu og þar hefur oft verið spilað á
margar harmonikur og lögin stundum útsett
í 2-3 röddum, og svo eru oftast með
tromma, gítar og bassi eins og nauðsyn-
legt er í hljómsveitum. Á fyrstu árum
félagsins voru haldnar árshátíðir og þá
voru stundum 3 grúbbur sem spiluðu
hverá eftirannari, þá voru fleiri ífélaginu
sem spiluðu en nú er. Svo breytist
gegnum árin, fólk kemur og fer eins og
gengur.
Hefur þú alltaf farið á harmoniku-
landsmótin?
Ég hef farið á flest þeirra, við
fórum 3 saman, þegar það var
haldið á Varmalandi, ég,
Guðbjartur Björgvinsson
og Lárus Jóhannesson
og þá spiluðum við eitt-
hvaðfyrirdansi. Nikkól-
ína hefur tekið þátt í
öllum landsmótum sfðan
árið 1989 og ég hef alltaf verið
með íþeim hópum, sem stundum
hafa verið nokkuð fjölmennir
jafnvel 15-20 manns f hljómsveit-
inni. Oft hafa verið með okkur
á landsmótum, unglingar sem ég
hefverið að kenna á harmoniku
og mörg þeirra hafa haldið áfram í námi.
Ballspilamennska hvernig var hún ogvarstu
einn að spila eða varstu með öðrum?
Stundum var ég einn en stundum með
öðrum, spilaði dálítið með Birgi Kristjáns-
syni og svo man ég eftir að ég spilaði á Hér-
aðsmóti sjálfstæðismanna, held að það hafi
verið 1958 og þá með Steinari Guðmunds-
syni frá Hamraendum, sem spilaði á harm-
oniku og Sigvalda bróður hans sem spilaði
á trommur. Það var heilmikið að gera á
árunum 1958-1961 að spila á böllum og
margir sem tóku þátt í því.
Hefurðu haft harmonikuna meðferðis til
útlanda?
Já við fórum íbændaferðmeð Agnari Guðna-
syni 1988 og þá fékk ég allar aukaferðirfríar
út á það að spila á kvöldvökum og undir
fjöldasöng. Svo var harmonikan auðvitað
með f júní árið 2000 þegar Nik-
kólína, Harmonikufélag Rang-
æinga og Þorrakórinn
tóku sig saman og fóru til
Færeyja.
Svo hefurðu stjórnað fleiri
kórum en kirkjukór-
unum.
Jú, ég
byrjaði með Þorrakórinn 1963 og Söng-
félagið Vorboðann 1994 þeir eru báðir
blandaðir kórar og ég hef farið í mörg
skemmtileg söngferðalög og haldið marga
tónleika með báðum þessum kórum.
Verður meiri tími núna til að sinna áhuga-
málunum eftirað þú ert hætturskólastjórn,
eða eru þau einhver önnur en tónlist og
búskapur?
Ég hef verið svo heppinn að hafa alltaf haft
gaman af þvísem ég hefverið að gera hverju
sinni og það hefur nú verið gaman að vera
bóndi og heyja í sumar í þessu ffna veðri,
segir lífsglaði bóndinn, harmonikuleikarinn
og organistinn
Halldór Þ. Þórðarson að lokum.
Melkorka Ben.
Leidrétting
Þau leiðu mistök urðu í maí blaði Harmonikublaðsins 2008 á bls. 11, þar sem nokkur ungmenni voru tekin tali á
Ungmennalandsmóti 2007, að myndir af Jónasi Á. Ásgeirssyni og Hauk Hlíðberg vixluðust. Hér með eru þeir beðnir velvirðingar
á þessum leiðu mistökum. Ritstj.
V
10
J