Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 12

Harmonikublaðið - 01.09.2008, Qupperneq 12
Þegar halda á harmonikumót þarf að huga að mörgu, ef vel á að takast. í fyrsta lagi þarf að tryggja góða aðsókn og nægan fjölda harmonika. Sá hluti er í höndum samkomuhaldara að stærstum hluta. Hvað á að vera í boði fyrir gesti? Þegar líður að mótinu er farið að spá íveðrið. Það var nú ágætt í fyrra, en hann rigndi í hitteðfyrra. í það minnsta á laugardeginum. Nú var það árið þar áður ? Hvað segir langtímaspáin? Hvað er þessi lægð að gera þarna? Átti hún ekki að fara sunnar. Varstu í Þrast- arskógi '95 ?, þegar skórnir mínir flutu út úrtjaldinu um nóttina og inn í það aftur um morguninn. Jú, við vorum farin að kalla hann Vatnaskóg. Jæja, það fer sem fer. Harmonikuunnendur á íslandi láta ekki veðrið trufla sig. Þeir mæta, hvernig sem viðrar. Hið árlega harmonikumót Félags harmonikuunn- enda f Reykjavík fór fram í fimmta skipti í Árnesi um Verslunarmannahelgina. Séu Landsmótin undanskilin, má segja að aðdragandi þessa móts, eins og allra harmonikumóta á landinu, sé sam- koma, sem ritstjórar harmonikublaðsins, þeir Hilmar Hjartarson og Þorsteinn Rúnar Þorsteinsson, efndu til f Galtalækfrá 1987. Þarvoru haldin harm- onikumót til 1992. Árið 1993 fluttu þeir sig í Þrast- arskóg og þar fóru mót harmonikublaðsins fram um Verslunarmannahelgar til ársins 1997. Þá var öldin svo sannarlega önnur. Á hvorugum þessara staða var húsnæði til samkomuhalds, aðeins guð- sgræn náttúra, með viðunandi salernisaðstöðu. í Árnesi er allt með öðrum brag. Stórt og mikið hús til hverskonar samkomuhalds, tjaldsvæði fyrir gesti, sem eins og áður hafa góða skapið og harm- onikur og söngbækur með í för. Áföstudagskvöldið voru hljómflutningstækin sett á sinn stað og hljóðprófuð fram eftir nóttu. Laug- ardagurinn heilsaði með blíðu. Eftir hádegi hófust tónleikar félagsins, en þar léku þeir Reynir Jónasson og Flemming Viðar Valmundsson auk Ottars Joh- ansen, sem kominn var frá Árnesi í Noregi, ásamt Ivari Dagenborg Thoresen, ritstjóra Ny Gammalt. Á tónleikunum notaði stjórn félagsins tækifærið og gerði Þóri Magnússon að heiðursfélaga, en hann hefur starfað 1 félaginu frá stofnun. Að tón- leikunum loknum litu menn á harmonikur sem voru til sölu hjá EG tónum. Fljótlega var þó farið að huga að grilli og góðmeti. Dansleikur stóð síðan frá hálf tíu tiltvö. Veðurguðirnirsáu um að vökva reglulega. Sunnudagurinn var blíður og vætu mjögstillt í hóf. Tónleikar Ottars Johansens og ívars, eftir hádegið tókust með miklum ágætum, en Ottareraf mörgum talinn einn besti harmonikuleikari Norðmanna. Það sem gerði tónleikana óvenjulega var, að þegar hefðbundinni dagskrá lauk, bauð Ottar nokkrum gestum að leika dúett á móti sér. Þar léku meðal annarra, Grétar Geirsson, Reynir Jónasson og Flemming Viðar Valmundsson. Var góður rómur gerður að. Um kvöldið hvíldu margir grillin, en snæddu af hlaðborði hússins. Dansleikurvar með sama sniði ogáður. Mánudagurinn heilsaði með sól og blíðu, enda komið að brottför. Fridjón H. 12 Hljómsveit Gunnars Kvaran ! fl Flemming Viðar Valmundsson Meðan dragspilid dunadi. ÞórirMagnússon e* Hvarersvo glatt Ljósmyndir tðk Lára Björg Jónsdóttir

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.