Harmonikublaðið - 01.09.2008, Page 13

Harmonikublaðið - 01.09.2008, Page 13
Pistill frá félagi Harmonikuunnenda í Skagafirði Félagið leigir húsnæði til æfinga ogaðstöðu hér á Sauðárkróki, æfingar eru oftast einu sinni í viku. Tvær hljómsveitir eru starfandi ífélaginuogerhvorhljómsveitskipuð harm- óniku, gítar, bassa, trommum og söngvara. Engin félagsgjöld eru greidd til félagsins, en gefin eru út félagskort til þeirra sem óska eftir að gerast félagar. Út á þau kort fá þeir lægri aðgangseyri að dansteikjum aukþess sem þau eru númeruð og eru notuð sem happdrættismiðar á hverjum dansleik. Hver sem er getur gerst félagi, þess vegna strax við innganginn, gilda þá þessi fríðindi á þann dansleik og svo frv. Kortafélagar eru núna um 60. Haldnir voru fjórir dansleikir sfðastliðinn vetur í félagsheimilinu Ljósheimum. Þar var m.a. stiginn Mars að gömlum sið ogýmsir leikirtengdirhonum. Einnigvardansleikur á skemmtistaðnum Mælifelli á Harmóniku- daginn. Á harmónikudaginn var opið hús með tónleikjadagskrá frá kl 13 - 17, Þar komu fram harmónikuleikararfélagsins með einleiki og dúetta. Einnig léku hljómsveitir félagsins, söngvarar með þeim voru Þor- bergur Skagfjörð Jósepsson og Ingunn Krist- jánsdóttiren húnvarð íöðru sætirísöngva- keppni framhaldsskólanna sem haldin var á Akureyri 2008. Ekki má gleyma sveiflu- kóngnum honum GeirmundiValtýssyni, það er ekki að spyrja að stuðinu þegar hann er annars vegar. Geirmundur er eins og við vitum einn af stórsnillingum í tónlistar geir- anum, semur lög, spilar .syngur og leikur við hvern sinn fingur. Hann kom sem gesta- spilari með harmónikuna, ásamt Jóhanni Jóhannssyni trommuleikara og Rögnvaldi Valbergssyni sem er organisti við Sauð- árkrókskirkju með meiru og spilaði hann á bassagítar. Þarna komu um 100 manns og létu vel af. Þess má geta að tónlistardagskráin frá harmónikudeginum 2007 vartekin upp og eigum við enn nokkra diska ef einhverjir hefðu áhauga á að eignast þá. (Hafið sam- band við Gunnar Ágústsson) Fjölskyldu hátíð harmónikuunnenda varað venju haldin íHúnaveri um Jónsmessuhelg- ina í samstarfi við H.U.H. Eins og mörg und- anfarin ár tókst hún Ijómandi vel og lék veðrið við okkur. Heldur færri gestir voru nú en ífyrra, en það gerist ævinlega á þeim árum sem landsmót eru haldin. Á hátíðinni komu fram harmónikusnillingar eins og Bragi Hlíðberg og Jón Þorstein Reynisson semfóru ákostum. Þá spiluðu Aðalsteinn ísfjörð og Jón St. Gíslason, systkinin frá Öxl, Sigurjón og Dagmar Ósk Guðmundsbörn, Óskar Óskarsson frá Steiná spilaði ásamt kennara sínum Benedikt Blöndal. Einnig kom fram hljómsveit afyngri kynslóðinni sem heitir Baggabandið, eru það fjórir ungir strákar úr Húnavatnssýslu og tókst þeim vel upp. Við eigum örugglega eftir að heyra meira í þeim. Sfðast á prógramminu voru Rjúpurnar, þar eru á ferðinni fjórarkonur sem spila á fiðlur og ein dönsk kona sem kennir gestum danska þjóðdansa, Jón St. Gíslason spilaði með þeim á harmónikuna. Rýmdurvarparturafsalnumoghópurgesta tók þátt í dansinum sem tókst alveg merki- lega vet svona í fyrsta skiptið. Tónleikadag- skráin stóð frá kl. 14 -17 með kaffihléi sem kvenfélagskonur stóðu fyrir af myndarskap samkvæmt venju. Kynnirvar Heiðar Kristj- ánsson og fórst honum þetta vel úr hendi og munni, þökkum við honum kærlega fyrir hans framlag. Áföstudagskvöldinu gerðum við tilraun með að halda unglingadansleikfrá kl. 20 - 22 . Hljómsveitin Baggabandið spilaði og var aðgangur ókeypis. Ekki virðist grundvöllur fyrir svona uppákomu í tengslum við fjöl- skyldu hátíðina en aðeins örfáir mættu. Það er spurning hvort ekki væri hægt að koma svona unglingadansleik á í sambandi við unglingamótið. Fá þá einhverjar hljóm- sveitir sem skipaðar eru unglingum undir 18 ára aldri til þess að spila ? Félagið tók þátt í landsmótinu 2008 þar spiluðum við sex lög, þar af tvö eftir Aðal- stein ísfjörð sem er aðal spilarinn í annarri hljómsveitinni hjá okkur. Með Aðalsteini spiluðu þarna bræðurnir Jón og Stefán Gíslasynir, Jón Þorsteinn Reynisson og svo Kristján Þór Hansen á slagverk. Jón Þor- steinn tók Ifka þátt í einleikstónleikum og Aðalsteinn og Kristján tóku þátt í spili á dansleik. Aðalfundur S.Í.H.U er á næsta leyti, eftir hann förum við að skoða framhaldið hjá okkur. Hverjir verða með á næsta tímabili af hljóðfæraleikurunum og svo frv. Söng- konan hún Ingunn Kristjánsdóttir er farin til náms í Noregi og verður því ekki með næsta tímabil. Við horfum björtum augum fram í tímann þrátt fyrir ýmsar þrengingar í þjóðfélaginu Með kveðju úr Skagafirði, GunnarÁgústsson. i \ y/‘( yeys/tu/i.s/in/1 /ncri // /yó/n.s o cif t íoír/i/tfYc/íf/1 cí ^ {/uif*euf+i NÝ OC ELDRI DANS OC DÆGURLÖG. Harmonika, SÖNCUR, OC ÞEIRI HUÓFÆRI Hress oc skemtilecur diskur Fæst aðeins hjá útgefanda í síma 891 6277 oc 4671277

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.