Harmonikublaðið - 01.09.2008, Page 16

Harmonikublaðið - 01.09.2008, Page 16
Sumarhátíð Harmonikufélags Héraðsbúa Jónas og félagar leika fyrir dansi. BræðurnirAndri Snærog Bragi Fannar ásamtAðalsteini ísfiörð og Einari Guðmundssyni. Hátíðin var eins og áður haldin um versl- unarmannahelgina og fór að mestu leyti fram í Brúarási með bakland í Svarta- skógi. Hátíðin hófst með dansleik á föstudags- kvöldi þar sem harmonikumenn skiptu kvöldinu á milli sín og nutu dyggrar aðstoðar grunnhljómsveitar sem samanstóð af trommum, bassa, gítar og hljómborði. Guttormur Sigfússon með einleik. Sigfús Vilhjálmsson segirfrá. Á laugardeginum var skemmtidagskrá með fullu húsi gesta. Meðal þeirra sem fram komu voru Jóhannes Kristjánsson, eft- irherma, SigfúsVilhjálmsson, sögumaður, bræðurnir Andri Snærog Bragi Fannar Þor- steinssynir, Aðalsteinn ísfjörð og Guttormur Sigfússon sem léku á harmonikur og þrjár konursem sungu ognefndu sigVaðmálog sögðu það mótvægi við nafnið Nylon. Jóhannesi fannst annað nafn ekki síðra, eða Beðmál. Öll dagskráin tókst vel undir öruggri stjórn Jónasar Þórs Jóhannssonar sem varkynnir. EGTónar, EinarGuðmunds- son var með sölusýningu á harmonikum. Hann á heiður skilinn fyrir dugnað við að koma vítt um land með mikið úrval harm- Jðhannes Kristjánsson. onika og auðvelda þannig mörgum að velja sér rétta hlóðfærið. Um kvöldið var svo dansleikur þar sem flestir frá kvöldinu áður spiluðu og fleiri bættust f hópinn. Mótshaldarar eru nokkuð ánægðir með hvernig til tókst, aðsókn allgóð og ekki hægt að kvarta undan veðrinu. Andri Snær og Bragi Fannar Þorsteinssynir. Einar Guðmundsson með hluta af sýningunni. 16

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.