Harmonikublaðið - 01.09.2008, Side 17

Harmonikublaðið - 01.09.2008, Side 17
Heimsókn til Félags Harmonikuunnenda við Eyjafjörð 29. mars 2008 Það var laugardaginn 29. mars sl. sem Nik- kolínufélagar héldu af stað í skemmtiferð og var ferðinni heitið norður á Akureyri í heimsókn til harmonikuunnenda við Eyja- fjörð. Þessi harmonikufélög hafa átt mjög skemmtilegt samstarf um árabil, skipst á heimsóknum og það hafa verið ánægjulegar samverustundir í góðum félagsskap. Nú var svo komið að okkur Nikkolínufélögum að þiggja heimboð og í þetta sinn var okkur boðið á árshátíð F.H.U.E. Það var lagt af stað frá Búðardal um 9 leytið á laugardagsmorguninn. Reyndar þjófstört- uðu Gunný og Jón og fóru norður á föstu- dagskvöldiðtilað lengja helgina. Einnigfóru norður á eigin bíl um morguninn þýski trommuleikarinn okkar hann René og Eva kærastan hans. Þáeru ótaldir þessir 12 ferða- langarsemfóru í rútunni hansSveinsáStað- arfelli og höfðu það gott. Við vorum komin norður til Akureyrar um 1 leytið og þar tók á móti okkur í Stórholtinu formaður Eyfirðinga, Einar Guðmundsson og móttökunefndin góða, Filippía, Númi og Arnar. Þar beið okkar rjúkandi súpa og með- læti, sem var vel þegið og hressandi eftir ferðina. Sfðan var okkur vísað til gistingar bæði innanhúss og utan, það er að segja í nettu sumarhúsi á lóðinni. Ingimar Sigurdsson, Vilhjálmur Bragason og Sveinn Gestsson á Staðarfelli á lagernum hjá Víking Móttökunefndin var hin dularfyllsta ogvildi ekkert láta uppi um skipurit dagsins, þau sögðu að Dalamenn hefðu komið þeim svo skemmtilega á óvart í síðustu heimsókn að nú yrði það endurgoldið. Hópurinn var svo drifinn upp í rútuna og haldið af stað undir stjórn formanns og móttökunefndar. Það kom í Ijós að ferðinni var heitið fram í Eyja- fjörð, undir traustri leiðsögn Einars með aðstoð einstakra nefndarmanna þegarvið átti. Við héldum sem leið lá að Smámuna- 11 mm 1 1 0 • .! m Á árshátíð -Ásgerdur, Melkorka, Hitdurog Jðhannes o.fl.gestir safninu sem er í félagsheimilinu Sólgarði. Þar bauð nefndin okkur að ganga inn og skoða og þar kenndi nú ýmissa grasa. Það er hreinlega alveg ótrúlegt hversu mörgu smáu og stóru hefur verið haldið til haga þar, t.d. má rekja sögu hurðarhúna sfðustu aldar og sömuleiðis ótrúlegt safn af mismun- andi nöglum og skrúfum. Ýmsar minningar vöknuðu, t.d. um SpurCola, Vallash, gömlu ritvélina sem var svo frábær tækninýjung á sínum tíma en er nú löngu horfin í skugga tölvutækninnar, o.m.fl. Eftir drjúga dvöl á Smámunasafninu var ferðinni haldið áfram ogekiðtilbakatilAkureyrarhina leiðina. Þá kom í Ijós að næsti áfangastaðurvarVfking bjórverksmiðjan og það þótti mönnum ekki slæmt. Þar fengum við mjög góðar móttökur og leiðsögn um alla verksmiðjuna, það var smakkað á byggkorni á ýmsum stigum, mest á því í fljótandi formi og það fékk mjög góða dóma, enda var glatt á hjalla f hópnum. Það var því kátur hópur sem kom aftur heim í Stórholtið til að skipta um föt og koma hljóðfærum í rútuna sem flutti okkur svo á árshátíðina. Þar var okkur tekið sem þjóð- höfðingjum, leidd beint að fráteknum borðum og dekrað við okkur í mat og drykk, sannkölluð stórveisla. Skemmtiatriði voru undir borðhaldi, stórsveit F.H.U.E. spilaði undir stjórn Roar Kvam ogsvo tóktrommu- leikari okkar, hann René, smátrommueinleik. Það er samt aldrei neitt smátt við hann René, hann lifir sig algjörlega inn í tónlistina og lemur húðirnar svo um munar. Sumum þótti nóg um kraftinn en aðrir voru hrifnir. Mel- korka, formaður Nikkolfnu, þakkaði svo fyrir okkur og færði Einari forláta handprjónaða og hyrnda víkingahúfu. Síðan var slegið upp balli þar sem bæði gestir og heimamenn léku fyrir dansi og dansinn dunaði fram eftir nóttu. Þegarviðkomum heim f Stórholtið eftir dans- leikinn ífylgd heimamanna, beiðokkarveisla f sumarhúsinu. Filippía reiddi fram mynd- arlegar veitingar að vanda og menn nærðu sig, ræddu landsins gagn og nauðsynjar og svo var auðvitað spilað á nikkur. Þetta eru skemmtilegustu stundirnar að hlusta á góða tónlist í góðra vina hópi og njóta góðra veit- inga eftir skemmtilegt kvöld. Melkorka afhendir Einari Guðmundssyni víkingahúfu Um nóttina kyngdi niðursnjó, en þegarvið sumarhúsafólkið röltum í morgunverðinn var Númi búinn að moka stéttina fyrir okkur tilað léttaokkursporin. Allirgerðu matnum góð skil en síðan var farangri og hljóðfærum hlaðið í rútuna, heimamenn kvaddir með þökkumfyrirfrábærarmóttökurogskemmtun og svo var ekið úr snæviþöktu hlaði á rútunni hans Sveins á Staðarfelli og haldið af stað heimleiðis í Dalina. Heimferðin gekkvel og greiðlega og allir komu heilir og ánægðir heim. Eyfirðingar, kærar þakkir fyrir góðar mót- tökur, vináttu og skemmtun. Nikkolína 17

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.