Harmonikublaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 19
<jjo yic -cjjo s^pc -cjjc> a*T>c 'OjO' s»^c ■cJ’jO'
cJ'jO' »T>c <Jr> »tc <Jr> »Tc
þar sem Tatu hefur kennt, auk þess íTón-
menntaskólanum í Reykjavík og Tónlistar-
skóla Kópavogs.
Tatu Kantomaa hefur haldið einleikstónleika
vítt um heim ogfarið hringferðir um ísland,
ásamt óteljandi viðburðum af ýmsum toga
svo sem uppfærslum í Þjóðleikhúsinu og
íslenska dansflokknum. Leikið inn fjölda
hljómplatna, auk þess að koma fram með
úrvals listamönnum innanlands og utan.
Hljómsveitin Rússfbanar hefur verið stór
hluti af músíklífi hans á íslandi. Vinur og
félagi í sveitinni Guðni Franzson klarinett-
leikari stofnaði Tóney, miðstöð tónlistar og
tónlistarkennslu sl. haust. Þeirfélagar hygg-
jast skipuleggja „Master Class“ fyrir
harmóníkuunnendur og áhugamenn.
Tatu sagði störfum sínum lausum við tónlist-
arskólana um sl. áramót og fluttist aftur í
heimabyggð sína Rovaniemi ÍFinnlandi, en
hyggst koma reglulega til íslands og spila
og kenna. Það er ánægjulegt og happ fyrir
íslendinga, að hinn hugprúði listamaður
skuli halda tryggð við land og þjóð.
.í. wr smuimarf vmuimm7 vwa.
Sem fyrr greinir eru 17 lögá geisladiskinum
sem Tatu leikur eftir Jóhannes G. Jóhannes-
son. Af þeim lögum sem eigi hafa heyrst
áður, eru Endurminning og Dagrenning
athyglisverð. Lag nr. 3 heitir þarna Á Sunnu-
hvoli. Árið 1978 gáfu ÁÁ hljómplötur út plöt-
una Gamalt og nýtt. Þar leika Guðjón Matth-
íasson og Harrý Jóhannesson umrætt lag,
en nefnist Að Sunnuhvoli oghyggégað það
sé hið rétta. Einnig er á diskinum snyrtilegur
mars nr. 10 og nr. 7 er ágætur tangó, sem
nefnist Kvöldskin. Tatu hefur einmitt gefið
sig undanfarið að tangótónlist og leikið á
bandóneon, sem er hljóðfæri náskylt harm-
óníku, en Finnareru þekktir fyrir slíka músík.
— Úttit og frágangur umslags er afar glæsi-
legt og öll tónlistin fagmannlega unnin eins
og vænta mátti þar sem Tatu er annars
vegar. Hann hefureinnigtekiðsaman nótna-
hefti með lögunum og er hvort tveggja hug-
Ijúf og falleg kveðja.
Hjalti Jóharwsson
12 Tónar kynna nýjan geisladisk:
Villi Valli - í Tímans Rás
Hugljúf og yndisleg plata af gamla skóla-
num frá ísfirska rakaranum Villa Valla.
Myndir af Villa Valla í stuði, texta og fleira
má nálgast á síðunni: http://homepage.
mac.com/v123/FileSharing21.html
Nánari upplýsingar gefa:
Villi Valli: 456-3040 eða Viðar Hákon:
8979105 eða netfang: v123@mac.com
12 Tónar: 511-5656
í Tímans Rás inniheldur ellefu lög, flest
eftir Villa en
þar má heyra jazz, franska harmonik-
kumúsík, tangó og bossanóva sem
honum tekst á slunginn hátt að flétta
saman í fallega heild.
Sjálfur spilar hann á harmoniku og
tenór saxófón. Megnið af plötunni var
tekið upp í félagsheimili Bolungarvfkur
þar sem hann spilaði með gömlum jazz
félögum sínum aðvestan. Nokkur lögvoru
síðan hljóðrituð í Sundlauginni í Mos-
fellsbæ en þar spilaði hljómsveitin Flís með
honum. Um sönginn sjá K.K. ogYlfa Mist
Helgadóttir.
Barnabarn Villa Valla, Viðar Hákon Gíslason
(Viddi íTrabant) stjórnaði upptökum.
Þetta er önnur plata Villa, sú fyrsta kom út
á sjötugsafmæli hans, árið 2000.
Harmonikuviðgerðir
Tek að mér viðgerðir á harmonikum
Gunnar Kvaran sími: 824-7610