Harmonikublaðið - 01.05.2011, Side 6
Persmoen og
Svartkopptreffen
í öðru tölublaði Harmonikublaðsins 2010,
skrifaði ég um ferð okkar Friðjóns og eigin-
kvenna til Ransater f Svíþjóð sem er harm-
onikumót á stærðargráðunni 23-25.000
manns. Égminntistá aðvið hefðum heim-
sótt tvö önnur mót í þessari ferð án þess
að útlista það nánar. Gestgjafi okkar og
hjálparhella IvarThoresen, mælti eindregið
með þvf að upplifa umrædd mót úr þvívið
værum í landinu. Ekki þurfti að jarma mikið
í okkur til að kveikja áhugann, en um var
að ræða mót norðausturafÓsló sem heitir
Persmoen en mótið ber nafn af því svæði
og eru mótsgestir nú á milli 1-2000. Síð-
asta mótið og jafnframt það sérstakasta
Svartkopptreffen, var í um íyí tíma akstri
frá útjaðri Óslóar sem kalla má einkamót,
með uþb. 115 gesti og af þessum eina og
hálfa tfma ókum við í um 45 mínútur um
hlykkjóttan götuslóða gegnum þéttan
skóg. Reyndar tók ferðin mun lengri tíma
þarsem leiðsögumaðurokkarvilltist, enda
afleggjarinn inn á mótsstaðinn illa merktur.
Hér á eftir reyni ég að útlista það helsta
sem við upplifðum á þessum tveimur
mótum.
Persmoen
Mótið var nú haldið f 4. sinn. Á leiðinni á
mótssvæðið rigndi þó nokkuð, en ervið
beygðum inn á afleggjarann að svæðinu
var sem skrúfað væri fyrir krana, ekki dropi
úr lofti eftir það. Það voru hjónin Jan Nygárd
og Kari Bráten sem hófu þetta mótshald og
eru þarna í fullu starfi meðan á þvf stendur,
ásamt fleira starfsfólki. Að þeirra sögn var
það fyrst og fremst áhugi á harmonikunni
sem dró þau af stað oghefurstöðugaukn-
Frá vinstri, Ivar Th. Dagenborg, SigríðurSigurðar-
dóttir, Hilmar Hjartarson, Guðný Sigurðardóttir, Frið-
jón Hallgrímsson, Sigurður Helgi jóhannsson og
kona hans Kristín Hlín Gestsdóttir
ing orðið á aðsókn þessi ár sem liðin eru.
Hægt er að kaupa sér hina fjölbreyttustu
næringu og drykki þarna. Mótið sækir fjöldi
hljóðfæraleikara, dansara og áhugamanna.
Margir þekktustu harmonikuleikarar Nor-
egs gieðja gesti með nærveru sinni. Mann-
legi þátturinn og lífsgleðin er allsráðandi,
á morgnana og fram eftir degi er tími fyrir
spjall og vinafundi úti á svæðinu ítjöldum
og húsvögnum eða taka lagið með ein-
hverjum. Húsakostur er líklega gamalt
sveitasetur, útihúsum breytt og nýtt fyrir
starfsemina, dansgólf undir þaki og hús
með opnar hliðar þar sem fólk getur setið
nálægt dansgótfinu og senunni og notið
þess sem fram fer. Okkur var ákaflega vel
tekið, fólk forvitið um ísland enda eldgos
nýafstaðið og þarna urðum við Friðjón að
sýna hvað við hefðum að bjóða fyrir dans-
unnandi Norðmenn með norskum bassa-
og gítarleikara. Danshljómsveitirnar er
komu þarna fram voru hver annarri betri,
Hérerveriðáfullu að baka sérstakar pönnukökur ofan
í gestina. Astrid Löken sember við mitt hjólhýsið hrærir
ídeiginu. Fyrirmiðju ereldavélin og kaffikannan með
svarta kaffinu en til hægri við litla ofninn ermjöðurinn
íkútnum fyrirkaffið
varla mátti á milli sjá nema hvað hljóð-
færaskipan breyttist og fjöldi á senu. Dagur
var kominn að kveldi og vel það er við ókum
frá gleði og gamni, með norskan takt hljóm-
andi í eyrunum.
Svartkopptreffen
Eins og kom fram í innkomu þessarar frá-
sagnar lentum við í villum á leið á síðasta
og jafnframt það sérstakasta af umræddum
mótum. En nú vorum við loks komin á
staðinn. Okkur hafði verið tjáð að á mótinu
myndum við hitta íslending sem heitir
Sigurður Helgi Jóhannsson frá Akureyri er
flutt hefði til Noregs fyrir einhverjum árum
og væri flinkur tónlistarmaður, bassa-
leikari ásamt því að reka hljóðver og allt
mögulegt annað sem þvf fylgir. Mótið var
fyrst haldið árið 2000, þá mættu einungis
15 manns. Það eru hjónin Ivar Löken 63 ára
og kona hans Astrid Löken 60 ára sem
standa að þessu móti. Næsta ár komu 100
manns og um 115 árið 2010 semsagt mótið
sem við Friðjón og föruneyti upplifðum.
Þau hjónin eiga myndbandsupptökur af
ötlum mótunum til þessa ásamt skráðri
gestabók frá upphafi. Mótssvæðið er
umlukt skógi frá öllum hliðum og er nú
meiningin að stækka það um helming,
Hilmar Hjartarson
vegna aukinnar aðsóknar. En af hverju
þetta skringilega nafn Svartkopptreffen
(Svartbollamótið)? Jú eitthvað þurfa mót
að heita, en þarna leita þau hjónin í gamla
menningarhefð sem sótt er f þegar Norð-
menn komu saman á góðri stund og hellt
var uppá sterkt kaffi. Helltvaríhvítan boll-
ann þartilþú sást ekki lengurtil botns, svo
var hellt brennivínf út í þar til þú sást aftur
til botns. Þessum sið er að sjálfsögðu við-
haldið þarna, Astrid lagar kaffi f risastórum
katli á gamalli eldavél sem stendur úti undir
berum himni. Okkur var boðið til langborðs
hlaðið veitingum og skammt var f að Iff-
legar umræður hæfust. Sigurður Helgi var
með konu sinni og dóttur ásamt 4
íslenskum vinum sínum og að vonum mjög
gaman að hitta þessa landa sína á þessum
stað. Það var unun að heyra í mörgum
góðum nikkurum er þarna voru bæði snill-
ingum með diatónískar og krómatfskar, þá
var stiginn dans undir kvöld, líklega í
gamalli hlöðu og var okkur Friðjóni boðin
þátttaka meðal spilaranna. Með söknuði
kvöddum við eftir þessar vinsamlegu og
gestrisnu móttökur gestgjafanna. í raun var
að koma þarna eins ogað hitta fjölskyldu-
meðlimi sem maður hefur saknað lengi.
Ungur maður ókokkur heim, eftir að hann
fann loks staðinn eftir mikla leit, og við
þökkuðum mjög að hann náði að ráfa rétta
leið til baka gegnum þennan frumskóg á
svefnstað hjá gestgjafa okkar Ivari.
6