Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Blaðsíða 7
Ferð Harmonikufélags Þingeyinga og Kveðanda í Breiddalinn 8.-10. apríl Hress og skemmtilegur 40 manna hópur úr báðum félögum fór austur í Staðarborg í Breiðdal og skemmtum við okkur vel alla dagana og skemmtum Austfirðingum líka á laugardagskvöldinu. í svona ferðum er hefð fyrir því að allir sem það geta setja saman vísur um allt mögulegt og ómögulegt og hafa allir gaman af. Eftir að komið var í Staðar- borg voru hljóðfærin sett upp og létt æfing tekin um kvöldið. Á laugardeginum fórum við yfir í Berufjörð með frábærum fararstjóra, Birni Björgvinssyni frá Breiðdalsvíkog sagði hann okkur ótal sögur og lýsti staðháttum fyrir okkur. Stoppað var á bænum Berufirði, þar sem er skemmilegt byggðasafn og ein elsta kirkja landins.Ábúandinn Bragi Gunn- laugssson sýndi okkur staðinn. Er þetta alveg þess virði að skoða. Síðan var ekið á Djúpavog og auðvitað byrjað í Löngubúð, þar sem okkar beið kynning á svæðinu, ásamt kaffi og vöfflum. Bryndís Reynisdóttir ferðamálafulltrúi þeirra sýndi okkur flest það sem áhugavert er á Djúpavogi, svo sem steinasöfn, fatahönnun úrskinnum ogfisk- roði ásamt steineggjunum í Gleðivík. Þarna er greinilega mikill metnaður lagður f mót- töku ferðamanna og mikil uppbygging í þeim efnum. Þegar komið var aftur í Staðarborg var góður kvöldverður snæddur, svo við hefðum orku í það sem beið um kvöldið. Dagskrá kvöldsins hófst kl. 21 á stuttum tónleikum og Strákabandið síunga spilaði nokkur vel valin lög og svo Aðalsteinn ísfjörð af sinni alkunnu snilli. Þá komu Kveð- andafélagar og fóru með frábæran vísnaþátt ogsíðan vardansað af miklum krafti ífjóra tíma. Vart varð við smá þreytumerki þegar lagt var af stað á sunnudeginum, en það rann fljótlega af mannskapnum við stopp á Breiðdalsvík, þar sem við skoðum nýuppsett steinasafn og einnig ýmsa fallega trémuni. Allir komu heilir og sælir heim og bíðum við spennteftirnæstuferð. Sigurður Ólafsson formaður Harmonikufélags Þingeyinga Við bæinn Berufjörð Rúnar og Friðrik í Löngubúð Hópurinn við Gleðivíkina Kveðandafélagar Á Breiðdalsvík 7 Aðalsteinn ísfjörð Leiðsögumenn okkar Steinasafn á Breiðdalsvík

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.