Harmonikublaðið - 01.05.2011, Side 8

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Side 8
Harmonikuball í Fálkaborg Þorrinn var kvaddur og góu og hækkandi sól fagnad í Fálkaborg 18. febrúar sl. með því að slá upp harmonikuballi. Þar komu saman börnin á Fálkaborg og starfsfólk ásamt foreldrum og öfum og ömmum. Þau Guðrún Guðjónsdóttir og Hjálmar Þór Jóhannesson, félagar í Harmonikufélagi Reykjavíkur léku fyrir dansi. Stiginn var dans við sígild harmonikulög einsogÓla skans. Börnin sýndu mikil tilþrif í dansinum og má vænta þess að þau verði liðtæk á dansgólfinu í framtíðinni. Höfðu allir mikið gaman af enda áttu kynslóðirnar þarna góða stund saman. Hug- myndin að ballinu kviknaði með verkefninu „Kynslóðir saman í Breiðholti“ sem Guðrún Jóns- dóttir er frumkvöðull að og félagsstarfið í Gerðubergi hefur staðið fyrir og standa vonir til þess að skemmtun sem þessi verði að árvissum viðburði á leikskólanum. Þess má geta að Harmonikufélag Reykjavíkur er samstarfsaðili félagsstarfsins í Gerðubergi. Guðrún og Hjálmarspila fyrir leikskólabörn. Harmonikufélagar spila á leikskólaböllum Leikið á harmonikur fyrir leikskólabörn. „Nei - það er ekkert erfitt að spita á harm- oniku en hún fær meira vægi eftir því sem hún er notuð til þess að leika fjölbreyttari tónlist. Hún er þekktust hér á landi sem hljóðfæri gömlu dansanna en margir nota hana til þess að leika aðra tónlist þá ekki sfst klassík," segja þau Guðrún Guðjóns- dóttir og Hjálmar Þór Jóhannesson, félagar í Harmonikufélagi Reykjavíkur. Þau segja einnig að hnappaharmonikan eigi vaxandi vinsældum að fagna á meðal harmoniku- leikara þar sem hún sé fjölbreyttara hljóð- færi og bjóði fleiri áttundir en hefðbundin hljómborðs harmonika. Harmonikufélag Reykjavíkur er búið að eiga í samstarfi við félagsstarfið í Gerðu- bergi undanfarin ár en það samstarf hófst á árinu 2009. „Við gengum eiginlega inn í verkefni sem heitir „kynslóð- irnar saman“ og er hugsað til þess að tengja börn og eldri borgara. Hlutverk okkar er að kynna krökkunum dragspilið og möguleika þess auk þess að leika tónlist fyrir þau,“ segja þau Guðrún og Hjálmar. Félagar úr Harmonikufélaginu eru búnir að leika fyrir börn í flestum leikskólum í Breið- holtinu. Þeir hafa einnig leikið fyrirbörn íleikskólanum Vina- gerði í Bústaðahverfi sem er í samstarfi við félagsstarfið í Gerðubergi um verkefnið „kynslóðirnarsaman." Nú eru harmoniku- félagarnir að hefja aðra ferð og ætla að heimsækja leikskólana í Breiðholti og leika fyrir börnin á dansleikjum sem áformað er að halda ítilefni af heimsóknum þeirra og verður fyrsta harmonikuleikskólaballið haldið í Fálkaborg við Fálkabakka nú 18. febrúar. Bændasögur að vestan L. u Sölumaður kom til bónda vestur á fjörðum ogvildi selja honum eitthvað til búskapar- ins. Bóndi var tregur til, en þó fann sölu- maður að hann var veikur fyrir skítadreif- ara. „Þú kaupir nú skftadreifarann", sagði sölumaðurinn. Eftir nokkra umhugsun þverneitar bóndi og þá fýkur í sölumann- inn. „Heldurðu kannski að þú fariryfir um með þessar krónur þínar?“ Þá svarar bóndi að bragði: „Nei, nei, en ég held að það verði nú ekki auðveldara að koma skíta- dreifaranum þangað." Bóndi einn kom til prestsins og sagði að hann væri í vanda. Hann ætti þessa ágætu 8 konu og þennan Ijómandi vinnumann. Meinið væri bara það að hann hefði oft komið að vinnumanni og eiginkonunni í ástarleik á dívaninum. Hann spurði prest hvað hann ætti að gera. „Þú lætur vinnumanninn bara fara.“ „Nei.ég má hreint ekki missa svona duglegan vinnumann." „Nú, þá skilurðu bara við konuna.“ „Nei, það geri ég aldrei, þetta er svoddan prýðis kona.“ Þá sagðist prestur ekki vita hvað gera skyldi. Nokkru seinna kemur bóndi til kirkju og lætur afar vel af sér og prestur spyr hvort hann hafi nú rekið vinnumanninn. Bóndi kvað nei við því. „Nú ætlarðu þá að skilja við konuna?" spurði klerkur. „Nei, það geri égaldrei." „Nú hvað gerðirðu þá?“ ** Þá svaraði bóndi rígmontinn: „Ég seldi bara dívaninn." Það hafði verið kalt á milli hjónanna í sveit einni svo ekki sé meira sagt. Nú deyr bónd- inn og konan hringir í Moggann til að fá birta dánartilkynningu. Hún kynnir sig og sá á Mogganum spyr um orðalag. „Ja.hann Stefán er dauður, já og svo nafnið mitt undir.“ Maðurinn ívandræðum sínum fer að spyrja um hvort hún vilji ekki hafa þetta lengra eða meira, það kosti ekkert meira. Eftir smá umhugsun segir konan: „Jú.ann- ars, bættu við: Gömul Toyota til sölu“. Kveðja Frosti Gunn.

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.