Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 10

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 10
T MINNING Jóhann Sigurðsson Fæddur 18. október 1934 - Dáinn 8. janúar 2011 L. Jóhann Sigurðsson fæddist 18. október árið 1934 í Háagerði á Sjávarbakka, sem þá var vísir að litlu sjávarþorpi á vesturströnd Eyjafjarðar, milli Hjalteyrar og Hörgárósa. Hann varð bráðkvadduráTenerife þann 8. janúar 2011. Jóhann fluttist ungur að aldri tilAkureyrarogvann þar lengstafsem verk- stjóri við Ullarverksmiðjuna Gefjun, sem var ein af verksmiðjum SÍS á Gleráreyrum á Akureyri. Jóhann var alla tíð mikitl frumkvöðull og einstaklega lipur í félagsmálum. Hann var einn af stofnendum Félags harmonikuunn- enda við Eyjafjörð, F.H.U.E. Stýrði Jóhann undirbúningsfundi að stofnun félagsins sem haldinn var ÍFélagsborg, samkomusal starfsfólks verksmiðja SÍS á Akureyri, þann 21. október 1979 og var raunar alla tíð einn af vinsælustu fundarstjórum á aðalfundum félagsins. Framhaldsstofnfundurvar síðan haldinn 5. október árið eftir og er upphaf félagsins miðað við þann dag. Tók Jóhann strax sæti í stjórn hins nýja félags og árið 1983 var hann kjörinn formaður F.H.U.E. Formennsku gegndi hann samfellt næstu 7 árin og varð síðar aftur formaður í 6 ár, frá 2000 til 2006. í nokkur ár var hann einnigfulltrúi F.H.U.E. á þingum Sambands íslenskra harmonikuunnenda, S.Í.H.U. Jói Sig. eins og hann var kallaður í hópi harmonikuunnenda, var hrókur alls fagn- aðará mannamótum. Hann vargóðurfélagi og virkur þátttakandi í öllu sem við tókum okkurfyrir hendur, bæði ídansleikjahaldi, ferðalögum, harmonikumótum, skemmti- fundum og sfðast en ekki síst í stórsveit F.H.U.E. sem hann spilaði í frá upphafi. Á tímabili sá hann einnig ásamt Einari Guð- mundssyni um harmonikuþætti í Ríkisút- varpinu með lifandi tónlist ogviðtölum við harmonikuleikara. Við sem störfuðum með honum viljum hér með nota tækifærið og þakka Jóhanni fyrir vel unnin störf í þágu félagsins okkar. ((( Nýr geisladiskur með Strákabandinu Fyrir jólin kom út hljómdiskurinn Ljúfu lögin 2, sem erafurð hins vinsæla harm- onikuorkesturs Strákabandsins sem skipað er spilurum sem allir eru komnir af léttasta skeiði, en strákarnir í bandinu eru þeir Rúnar Hannesson, Kjartan Jóhannsson, Jóel Friðbjarnarson og Krist- ján Kárason. Að sögn Rúnars eru 18 lög á þessum diski. „Allt danslög með gamla góða laginu líkt og á þeim fyrri, sem við höfum nú end- urútgefið, þannig að menn geta eignast 10 þá báða. Ljúfu lögin sem við gáfum út fyrir áratug hefur lengi verið ófáanlegur enda seldist hann í yfir 3000 eintökum sem verður að teljast svona þokkaleg poppstjörnusala," segir Rúnar. Aðspurður segir hann að Strákabandið sé að selja um allt land og ekki bara hér í Þingeyjarsýslu. „Við erum raunar með allan heiminn undir. Það var t.d. einu sinni hringt í mig, maður sem var í sigl- ingu á skútu á Miðjarðarhafinu og hann segir mér að hiusta í símann, sem ég og gerði, þábárust mértónarStrákabandins þarnaaföldum Miðjarðarhafsins, þannig að þetta hefur farið víða.“ Nýi diskurinn var tekinn upp af Knúti Jónassyni í stúdíói sem hann hefur komið sér uppá Knútsstöðum. Ogþeirsem hug hafa á að eignast hnossgætið og jafnvel báða diskana geta pantað þá hjá strák- unum sjálfum, Jóel í síma 464-1953, Kristjáni í síma 464-1954, Kjartani í síma 464-1374 og Rúnari í síma 464-1816. J's

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.