Harmonikublaðið - 01.05.2011, Qupperneq 13

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Qupperneq 13
Skemmtun Harmonikufélags Þingeyinga og Kveðanda 26. febrúar í Ljósvetningabúð Sigurður Leósson Uppboðshaldarinn Stefán Þórisson Fyrri hópur hagyrðinga Við byrjudum skemmtunina kl. 20:30 á þvf að dansa við harmonikuspii Stefáns Þóris- sonarogÁsgeirs Stefánssonar, með undir- leikarana Grím Vilhjálmsson á bassa og Hjört Hólm á trommur. Þá tóku hagyrðingar Kveðanda við og voru tveir hópar, sem skemmtu okkur góða stund. Aftur var dansað við undirleik hins síunga Stráka- bands og svo spilaði Sigurður Leósson. Undir miðnætti voru ailir orðnir svangir og gert hlé á dansleikrium og haldið böggla- uppboð, sem Stefán Þórisson stjórnaði af sinni alkunnu snilli. Var boðið vel í alla pakka, sérstaklega það sem var matarkyns, svo sem tertur, flatbrauð og pönnukökur. Dansað var svo til klukkan tvö og fóru allir saddir og sáttir heim. Sigurdur Ólafsson form. HFÞ Seinni hópur hagyrðinga Grímur, Hjörtur, Stefán Ásgeir Nýr hljómdiskur sem inniheldur fjórtán lög eftir tónlistarmanninn ástsæla, Baldur Geirmundsson, kom íverslanir um miðjan desember. „Þetta eru allt lög eftir sjáífan mig sem hafa safnast saman í gegnum árin,“ segir Baldur sem er betur þekktur sem BG. Honum til fulltingis eru Samúel Einarsson sem spilará bassa, Jón Hallfreð Engilbertsson á gítar og sonur hans Hólm- geir á trommur auk þess sem Baldur spilar sjálfur á hljómborð og harmoniku. Þá fær hann einvalalið söngvara til að flytja lögin en það eru þau Margrét Geirsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Benedikt Sigurðsson, Karl Geirmundsson ogSvanfríður Arnórsdóttir. Einnig syngur Agnes Marzellíusardóttir bakrödd í einu lagi. Á disknum er að finna fjórtán lög. 13

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.