Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 18

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 18
Starf Félags harmonikuunnenda Reykjavík 2010 - 2011 Menningarnótt. íjúli sendi formaðurFHUR beiðni um þátttöku f menningarnótt Reykjavíkurborgar í samráði við þá frábæru ungu spilara, FlemmingViðar Valmundsson og Jónas Ásgeir Ásgeirsson. Þeir léku í Iðnó við góðar undirtektir og fengu jafnvel of skamman tíma. Nokkrir félagar spiluðu líka íHallargarðinum og fleiri bættust í hópinn. Veðrið setti smástrik í reikninginn en spilarar og áheyrendur áttu skemmtilega stund. Vindbelgirnir léku svo eldgömlu dans- ana um kvöldið á Þjóðminjasafninu og var góð þátttaka f dansinum. Undirrituð var spurð hvort utanaðkomandi mætti ekki taka þátt í dansinum með þessum danshópi? Svona leit þetta út gagnvart útlendum ferða- mönnum, að hérværi samhæfðurdanshópur á ferð. Harmonikur til tónlistarskóla. Stjórn félagsins ákvað að kaupa tvær harm- onikur til að lána í tónlistarskóla á Reykja- víkursvæðinu. Við sendum eftirfarandi bréf til tveggja tónlistarskóla: Okkur í Félagi harmonikuunnenda Reykjavíklangar að lána harmoniku til kennslu við skólann þinn ef áhugi er fyrir því. Um er að ræða harmoniku Vetrarstarf FHUR hófst með dansleik í Breiðfirðingabúð þann 3. október. Á þessum fyrsta dansleik vetrarins léku þrjár hljómsveitir. Sveinn Sigurjónsson ogfleiri hófu leikinn ogfylltist gólfið strax af dansþyrstum. Þá kom hljóm- sveit Þorleifs Finnsonar með Láru Björgu í fararbroddi. Enn var gólfið fullt. Vindbelgirnir, þeir Friðjón og Hilmar léku síðustu lotuna ásamt gestaspilaranum Elínu Jörgensen frá Noregi, en hún leikur m.a. með tveimur dans- hljómsveitum ÍDrammen. Elín mun einnig mæta á Landsmótið f sumar. Dansáhugafólk og harmonikuunnendur stigu dansinn af krafti og oft var Iftið pláss á gólfinu. Skemmtifundur í Iðnó þann 24. október. Við fengum góða gesti frá Suðurnesjum en það var léttleikandi hljómsveit Félags harmonikuunnenda á Suðurnesjum undir stjórn Þórólfs Þorsteins- sonar. NemendurGuðmundarSamúelssonar komu og léku af snilld. Þau spiluðu ein sér og svo í Reykjavíkurkvintettinum en hann skipa Jónas Ásgeir Ásgeirsson, Flemming ViðarValmundsson, HaukurHlíðberg, Halldór Davíðsson ogÁlfheiður Gló Einarsdóttir. Það mætt til vina- og dansfundar. Að vanda stigu þrjár hljómsveitir á stokk. Hljómsveit undir stjórn Ingvars Hólmgeirssonar ásamt söngv- urunum Rúnu og Þorvaldi. Hljómsveit Gunn- ars Kvaran og hann sá einnig um sönginn og hljómsveit Þorsteins R. Þorsteinssonar sem söng sjálfur líka. Fólk var dugtegt að stíga dansinn að vanda við góða og fjölbreytta danstónlist. Allir fóru sælir heim, fagnandi nýju ári. Skemmtifundur í Iðnó 6. nóvember. Fólkstreymdi að og húsið fylltist enda spennandi dagskrá í boði. Hljóm- sveit félagsins steig á stokk undir stjórn Reynis Sigurðssonar og með rythmasveit sem skipuð varjóni Páli Bjarnasyni á gítar, Gunn- ari Hrafnssyni á bassa og Magnus Trygvason Eliassen átrommur. Formaðurinn kynnti lögin með laglínum úr hverju lagi. Þá lékjón Heiðar frá Akranesi eigin lög eins og honum einum er lagið. Nú var komið að ungu kynslóðinni. Tveir nemendur Vadims Fjodorov, þeir Hjörtur Jarl og Bergmann Óli, léku sitthvort lagið, einn polka og Two guitars og gaman var að hlusta og horfa á þá. Nú var komið að atriði sem margir biðu spenntir eftir en það var Gísli Einarsson ígóðum gír Frá vinstri Garðar Einarsson, Ómar Skarphéðinsson, Guðmundur Steingrímsson og lón Ingi JCIíusson fyrir byrjendur. Við viljum hafa þennan hátt á frekar en að gefa, því þá getum við fylgst með hvort hljóðfærið sé í notkun og jafnvel fengið að senda fulltrúa félagsins á tónleika hjá skólanum. Svör bárust frá þeim. Tónskóli Sigursveins ætlaði að láta okkur vita ef til þessa kæmi en FHUR var í samstarfi við þann skóla um kennslu á árum áður. Stefán Edelstein svar- aði fyrirTónmenntaskólann og kvað hann þá eiga nógafharmonikum.Tónlistarskóli Eddu Borgar óskaði eftir harmoniku fyrir nemanda og við keyptum eina góða sem nýtist nem- anda Guðmundar Samúelssonar. Við athugum svo málið áður en skólarnir byrja næsta haust. AðalfundurSÍHU. Félagið annaðist aðalfund SÍHU að Hótel Örk, sem heppnaðist vel og má lesa um það í síðasta tölublaði Harmonikublaðsins. var skemmtilegt að hlusta líka á þeirra eigin útsetningar þá nutu þau sín svo sannarlega. Þá léku einnig Gunnar Kvaran og Hreinn Vil- hjálmsson fallega syrpu af íslenskum lögum svo unun var á að hlýða. Maður fyllist ætt- jarðarást að eiga svona fallega lög og ekki skemmir þegar þau eru vel flutt. Árshátíð í Breiðfirðingabúð þann 20. nóvember. Árshátíðin var vel sótt að vanda. Friðjón og Pétur Bjarna fóru með gamanmál og for- maðurinn ræddi um karlmenn sem eru m.a. eins og bílar, ef maður passar sig ekki á þeim lendir maður undir þeim. Reynir Jónasson og Agnes Löve léku undir fjöldasöng að hefð- bundnum hætti. Dansinn varstiginn afhjart- ans list við frábæra tónlist Einars Guðmunds- sonar og félaga frá Akureyri. Nýársdansleikur í Breiðfirðingabúð þann 8. janúar. Vel var leikur Jóns Þorsteins Reynissonar. Fólk varð ekki fyrir vonbrigðum því hann spilaði af mikilli Ijúfmennsku og þokka. Það mátti heyra saumnál detta meðan hann lék. Hann bauð diskinn sinn til sölu og seldi hann þá diska sem hann kom með. Það hefur löngum verið reynst auðvelt fyrir félagið að leita til Þorleifs Finnssonar á ögurstundum.. Hann hljóp f skarðið fyrir Svenna Sigurjóns, sem forfall- aðist og spilaði ásamt Þóri Magnússyni á trommur, Gunnari Pálssyni á bassa og Ragn- ari Páli á gítar. Lára Björg söng með og kall- aði þá Gullfiskana. Þau léku gamalkunnug lög og nokkrir stigu dans. Allir fóru með gleði í sinni heim. Þorrablót 19. febrúar í Breiðfirðingabúð. Nú barsvo viðað uppseltvarfyrirmatargesti. Varð þetta hin besta skemmtun. Friðjón var veislustjóri að vanda og sagði nokkra góða 18

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.