Harmonikublaðið - 01.05.2011, Síða 21
Fréttir úr Skagafirði
Starfsemi Félags harmonikuunnenda í
Skagafirði haustið 2010 hófst með
almennum dansleik fyrsta vetrardag. Þá
var og ákveðið að gefa út geisladisk fyrir
komandi jól með sex frumsömdum jóla- og
áramótalögum. Á honum syngja þau Dag-
björt Jóhannesdóttir og Stefán Jökull Jóns-
son af mikilli snilld ásamtstúlknakórhéðan
fráSauðárkróki en allur hljóðfæraleikurer
f höndum hljómsveitar félagsins sem nú
kallar sig Manstu gamla daga.
Öll tónlist á diskinum er eftir félaga í hljóm-
sveitinni en textasmíð að mestu úr öðrum
áttum.
Svo sem fram kom í Harmonikublaðinu,
september 2010, setti félagið upp sýningu
á vordögum 2010 sem bar heitið Manstu
gamla daga og fjallaði um fréttir og sögur
úr Skagafirði á árunum 1959 og 1960 ásamt
vinsælum dægurlögum þess tíma sem
hljómsveit félagsins lék. Þessar sýningar
gengu mjögvelog hefur þvíverið ákveðið
að setja upp framhaldssýningu sem mun
r
Yfirklór og kattarþvottur
Einn af lesendum blaðsins, Guðmundur
Samúelsson, skrifar grein í síðasta Harm-
onikublað, þarsendirhann mérhamingju-
óskir. Tilefnið er heimsóknir félaga í
Harmonikufélagi Reykjavíkur í leikskóla,
en það höfum við gert árum saman, eini
munurinn á heimsóknum okkar að þessu
sinni er að þær fara fram á skipulagðan
hátt, reyndar að mínu frumkvæði en
stjórnað frá Félagsmiðstöðinni Gerðubergi.
Mín skoðun er sú að leikskólarnir séu
óplægður akur sem plægja þarf og sá í, ef
fara á f kynningu á harmonikunni af ein-
hverju viti, þarna er vettvangurinn og þarna
þarf að hefjast handa og uppskeran mun
ekki láta á sér standa. í þessa kynningu á
harmonikunni var farið að beiðni S.Í.H.U.
Ég hvet öll harmonikufélög í landinu að
hefjast nú þegar handa og heimsækja leik-
skóla hvert á sínu svæði það mun skila
árangri ogvæntanlega nýrri kynslóð harm-
onikuleikara. Við erum byrjuð á annarri
umferð í þessa sömu leikskóla og nú er
það harmonikuball með börnunum og
aðstandendum. í grein Guðmundar sem
mér finnst nú vera hálfgert yfirklór og
kattarþvottur, segir hann að alls ekki eigi
að rigsa áfram með hornin úti ísamskiptum
við foreldra. Ég veit að Guðmundur er
hokinn af reynslu íþessum efnum ogtalar
auðvitað út frá henni, en ekki er ég nú eins
viss um að G.S. sé rétti maðurinn til þess
að kenna mér eða öðrum eitthvað um
mannleg samskipti. En hvað er það sem er
að angra Guðmund í sambandi við Ung-
mennalandsmót 2009, hann segir að allir
þurfi að læra af mistökum. Það er alveg
rétt og erum við Guðmundur þar ekki
undanskilin. Umfjöllun Guðmundar um
Ungmennalandsmót sem aldrei var haldið,
er orðin þvílík þráhyggja að það minnir
helst á gamlan trukk sem er alltaf að spóla
í sama forarpyttinum. Mér finnst nú meira
en nóg komið af þessari þvælu. Ættir þú
ekki Guðmundurfrekarað snúa þérað því
að fjalla um þá atburði sem haldnir hafa
verið á vegum sambandsins eins og t.d.
Harmonikukeppnina, það er verðugt
umfjöllunarefni. Þú nefnir mikla sjálfboða-
vinnu kennara í svona mótum, „öllvinna
við svona mót er unnin í sjálfboðavinnu“
hvort sem um ér að ræða kennara eða aðra,
það er óhemju mikil sjálfboðavinna unnin
íöllum harmonikufélögum ílandinu einnig
afstjórn Landssambandsins ogveit égekki
til þess að fólksé neitt að kvarta eða kveina
undan því.
Keppni f harmonikuleik sem haldin var á
sfðasta ári tókst mjögvel og geta allirverið
sáttir með útkomuna. Að vera þátttakandi
í svona keppni hefur mikil áhrif á kepp-
endur það hlýtur að vera bæði hvetjandi
og þroskandi að því ógleymdu að þegar
frá Ifður verður þetta alltaf einn dropi í
brunni minninganna. Mikil undirbúnings-
vinna ervið svona keppni, Friðjón Hall-
grímsson sá um skipulagningu keppninnar
sem var til fyrirmyndar og ætti því að vera
auðveldara með framkvæmd næstu keppni
ef ekki líðurof langt á milli. Friðjón bar upp
þá tillögu á síðasta aðalfundi S.Í.H.U. að
heita Manstu gamla daga 2. Sú sýning
mun verða með svipuðu sniði og fyrri
sýningin nema hvað nú verður fjallað um
tímabilið 1962 - 64. Æfingar eru hafnar og
er stefnt að fyrstu sýningu í Bifröst á
Sauðárkróki þriðjudaginn 17. maí n.k.
Sögumaðurverðursem áður Björn Björns-
son fv. skólastjóri á Sauðárkróki.
Önnur verkefni sem framundan eru hjá
félaginu eru harmonikudansleikur sem
haldinn verður í Ljósheimum 5. maí n.k.
sem er fimmtudagurfsæluviku en héráður
fyrr voru fimmtudagskvöldin f sæluviku
gömludansakvöld. Þá mun hin árlega Jóns-
messuhátíð verða haldin f Húnaveri eins
og sjá má á auglýsingu á öðrum stað í
blaðinu.
halda harmonikukeppni árlega, fram kom
önnurtillaga frá varaformanni S.Í.H.U. um
að halda þessar keppnir á þriggja ára fresti
og var sú tillaga samþykkt, ég var í sann-
leika sagt mjög undrandi á þessu, því í
ósköpunum var stjórn S.Í.H.U. ekki búin að
gera faglega könnun meðal harmoniku-
kennara á málinu og fá þeirra álit. Tveir
kennarar voru á fundinum og létu í Ijós
sínar skoðanir, en þeirra rök fannst mér
ekki vera nógu sannfærandi, mér finnst
þetta vera svo mikitvægt mál bæði fyrir
keppendur og kennara að það sé varla
ásættanlegt að ætlast til þess að ég og
aðrir fundarmenn sem engan veginn geta
lagt faglegt mat á málið séu að greiða um
það atkvæði. Þetta ætti að vera sá atburður
sem stjórn Landssambandsins og samtök
kennara stæðu sameiginlega að.
Að lokum vil ég beina þeim tilmælum til
fundarmanna aðalfundarS.Í.H.U. að reyna
einsogkosturerað koma fvegfyrirað það
séu tveir eða fleiri úr sama harmoniku-
félaginu samtímis í stjórn S.Í.H.U., þetta
eru landssamtök með 14 harmoniku-
félögum og nauðsynlegt er að gæta jafn-
ræðis.
Ég óska lesendum blaðsins gleðilegs sum-
ars. Sjáumst á Landsmótinu á Hellu.
Guðrún Gudjónsdóttir,
Harmonikufélagi Reykjavíkur.
21