Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 22

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Page 22
 Hvað vakti áhuga minn á harmonikunni og hver var hvatinn að því að ég fór að leika á harmoniku? Þorsteinn Þorsteinsson Ég er uppalinn með harmoniku, pabbi átti alla tíð hnappanikku og tók hana oft upp, þannig að ég fékk þessa tóna í eyrun með móðurmjólkinni. Þá var ég einn af stofnendum Ásatríósins ásamt Baidvini E. Arasyni og Hafsteini Snæ- land. Þá spilaði ég í nokkur ár með Guðjóni Matthíassyni og seinna með Jóni Sigurðs (íbankanum) ogsvoýmsum öðrum harm- onikuleikurum, í u.þ.b. 30 ár. Það var svo heimsókn Svíans Lars Ek sem kveikti auka áhuga - ekki bara hjá mér, heldur mörgum öðrum líka. Koma hans varð algör vítamínsprauta fyrir harmonik- una á íslandi. Það var hann sem hvatti okkur Hilmar til að gefa út harmonikublað og eins að koma upp harmonikumóti/úti- legu, sem við stóðum fyrir í mörg ár. Við fengum góðan meðbyr, og ekki má gleyma eiginkonum okkar - án þeirra miklu aðstoðar, hefði þetta alls ekki geta gengið upp. Þetta er sem sé einskonar „baktería" sem þú verður með áfram, eins og margt annað smit- á meðan þú lifir. Hilmar Hjartarson Ég er fæddur og uppalinn í afskekktri sveit, Árneshreppi á Ströndum, Steinstúni f Norðurfirði árið 1940. Ég er bókstaflega alinn upp við harmonikuleik, þar sem fóstri minn og bóndi á Steinstúni, Gísli Guðlaugsson móðurbróðir minn, hafði ungur keypt sér harmoniku og náð svo góðum árangri að hann varð fljótlega aðal harmonikuleikari sveitarinnar, allt frá þvf er dans- Útileguhelgi H.U.V. í Fannahlíð verður haldin dagana 8.-9. og 10. júlí 2011 Spilað, spjallað og dansað föstudag og laugardag. Upplýsingar: Jón Heiðar í síma 431-2038 Valdimarí síma 431-2396 Þórðurí síma 431-1547 Harmonikukveðjur, HarmonikuunnendurVesturlands. 2 Jti leikir fóru fram í heimahúsum þar sem rými fannst og síðar í samkomu- húsi sveitarinnar í Trékyllisvfk, ára- tugum saman. Hann spilaði alltaf á tvö- falda diatóníska nikku og sagði mér að éghafi snemma sýnt áhuga oglét migfara að prófa hljóðfærið. Fóstri endurnýjar harmonikuna um 1950, en þá á ég greiðari aðgang að þeirri gömlu. Árið 1952 flutti ég úr sveitinni suður á Kjalarnes, þar sem móðir mín festi ráð sitt með Bjarna Jónssyni bónda í Dalsmynni sem þá var orðinn ekkill. Er ég flutti gaf fóstri mér þá gömlu í vegarnesti því hann vildi endilega að ég héldi áfram að þróa spilamennskuna. Þessa gömlu nikku á ég enn. Að flytja breytti miklu, ég hætti fljótlega að æfa, man heldur ekki eftir neinum harmonikuáhuga á Kjalarnesinu, fyrir utan það að hinn nýi fóstri minn sýndi þessu nokkurn áhuga, hann hafði eitthvað leikið á einfalda nikku á yngri árum í Kjósinni, en hann rak þarna stórt kúabú og því frítími af skornum skammti fyrir unga sem eldri. Svo um 20 ára aldurinn flyt ég á höfuðborgarsvæðið og fer að detta inn á gömludansaböll þar sem harmonikuleikararnir blöstu við. Þá blossaði virðing mín aftur upp fyrir þessum magnaða tóni harmonikunnar. Nú var ekki til baka snúið og mér tókst loks að vinna mér inn fyrir píanóharmoniku um 25 ára, byrjaði að fikta og fikta, en náði engum vitrænum tökum fyrr en ég fór f nám til Karls Jónatanssonar, síðartil Emils Adolfssonar, Grettis Björnssonarog Guðna Guðnasonar, með brauðstritinu. Þá hefurSigurður Alfons- son mikið hjálpað mér. Áhuginn hefur síst minnkað 70 árum síðar, en auðvitað er ég opinn fyrir ýmsum tónlistarformum hvort um harmoniku eða önnur hljóðfæri erað ræða. Félagharmonikuunn- enda íReykjavíkhefurverið mittfélagfrá upphafi stofnunarþess, framanaf þar ístjórnkerfinu og hljómsveitinni en nú einn meðlima hljómsveitarinnar Vindbelgirnir ásamt að leika fyrir þjóðdans- ahópinn Sporið frá árinu 2002. Aðkoma að ýmsu tengdu harm- onikunni hefur svo fylgt í kjölfarið s.s. blaðamennska, harmon- ikumót, ásamt að skrifa ínorskt harmonikublað. Auðvitað er best að byrja ítónlistarnámi sem yngstur, en til sveita kom slíkt sjaldan til greina hér á árum áður, en samt er best að þakka fyrir það litla sem maður kann. 22

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.