Harmonikublaðið - 01.05.2011, Qupperneq 24
Harmonikumeistarinn BÉ GE
í 50 ár hafa íslenskir hlustendur Ríkisútvarpsins heyrt auglýsingar um dansleiki og mannfagnaði
þar sem einhver BÉ GE er í aðalhlutverki. BG og Ingibjörg, BG flokkurinn, BG og Margrét, BG og...
Hver er þessi BG?
Baldur Geirmundsson er fæddur að Látrum
í Aðalvík (friðlandinu á Vestfjörðum) árið
1937. Foreldrar hans bjuggu í Fljótavík, en
fluttu til Flnífsdals árið 1946.
Einn bræðra Baldurs, Gunnar, hafði eignast
harmoniku, en þegar hann fórá síld eittvorið,
greip Baldur tækifærið og hertók nikkuna.
ÞegarGunnarkom afsíldinni ogheyrði hvað
Baldur var orðinn flinkur, gaf hann honum
harmonikuna. Frá þeim tíma hefur tónlistin
fylgt Baldri og aldrei orðið lát á.
„Ég held ég hafi verið 14 ára þegar ég spilaði
á fyrsta ballinu, í afleysingum í ungmenna-
félagshúsinu í Flnífsdal. Þá voru bara harm-
onikur og þeir sem spiluðu á þessu fyrsta
balli voru Daníel Rögnvaldsson og Guðjón B.
Ólafsson, síðar forstjóri S.Í.S. Þegar ég var
16 ára var mér boðið að koma í hljómsveit
með Bæring Jónssyni harmonikuleikara og
trommara og Karli Einarssyni harmoniku-
leikara.
Karl bróðir minn kom síðar inn í hljómsveit-
ina í stað Bærings. Við spiluðum mjög mikið
á böllum á ísafirði og í nágrenninu næstu
misserin“.
Fékkst þú einhverja tilsögn
í harmonikuleiknum?
„Þegar ég var 17 eða 18 ára eignaðist ég
harmonikuskóla, Lærebok for trekkspil eftir
Ottar Akre og þá lærði ég að lesa nótur.
Einnig fékk ég lánaðan orgelskóla, en svo
fylgdist ég með þeim eldri og greip það sem
mér þótti nýtt og framandi.
Haustið 1957 fórum við Kalli bróðir suður til
Reykjavíkur. Ég fór í tónfræðinám hjá Fjölni
Stefánssyni, en Kalli fór að læra á kontra-
bassa. Það var svo 15. október 1958 sem ég
stofnaði fyrsta BG bandið. Fyrir rúmlega 50
árum. í þessari hljómsveitvoru aukmín, sem
spilaði þá á altsaxófón, Kalli bróðir með gítar,
Magnús Þórðarson píanó, Kristinn Frið-
björnsson kontrabassa og Karl Einarsson
trommur.
Þetta var upphafið að BG. Síðar kom svo
Gunnar Hólm Sumarliðason til liðs við okkur
sem söngvari og þá hét bandið BG og Gunnar
Hólm“.
Ogsvo leið tíminn?
„Það urðu nú miklar breytingar í tónlistinni
þessi árin og um 1960 var ég alveg hættur
að snerta harmonikuna og farinn að spila á
hljómborð ogsaxófón.
Frá árinu 1961 raksvo hver hljómsveitin aðra:
BG ogÁrni, BG og Ingibjörg, BG flokkurinn
og BG og Margrét".
24
Margir ísfirskir hljómlistarmenn
voru nokkuð lengi með þér?
„Já, en án þess að ég geri upp á milli þessa
ágæta fólks þá voru þeir Karl Geirmundsson
gítarleikari, Samúel Einarsson bassaleikari,
Rúnar Vilbergsson trommuleikari og svo
Gunnar Hólm trommuleikari og söngvari, sem
BG og Ingibjörg. Frá vinstri: Samúel Einarsson.lngibjörg
Guðmundsdóttir.KarlGeirmundsson, ÓlafurGuðmunds-
son.Rúnar Vilbergsson og Baldur Geirmundsson.
léstfyrir skömmu, sem spiluðu einna lengst
með mér. Þá voru margir söngvarar, konur
og karlar, m.a.Árni Sigurðssonog Svanfríður
Arnórsdóttir og tveir söngvarar, sem létust
langt um aldur fram, þeir Kristinn Sigurjóns-
son og Ólafur Guðmundsson. Margir, margir
fleiri, sem of langt yrði upp að telja".
En BG og Ingibjörg gleymast
nú seint?
„Það var árið 1967 sem BG og Ingibjörg byrj-
uðu og 1970 kom fyrsta BG platan út, Þín
innsta þrá. Næsta plata, Fyrsta ástin kom svo
1971 og 1974 spiluðum við inn á plötuna Hrif
I, en þar er m.a . að finna lagið „Góða ferð“.
Loks kom platan Sólskinsdagarút árin 1976“.
Þið ferðuðust víða
hér áður fyrr?
„Já, við spiluðum mjög víða, vafalaust í
flestum félagsheimilum landsins og sumir
Frá vinstri: Karl Geirmundsson, Baldur Geirmundson
og Karl Einarsson
túrarnir voru langir. Við vorum einu sinni í
þrjár vikur samfellt og enduðum í Austur-
bæjarbfói. Það voru BG og Gunnar Hólm og
við vorum með töframanninn Jón Aðalbjörn
Bjarnason, sem gerði ótrúlegustu töfrabrögð.
Viðfórum svo nokkrar ferðir til Ameríku titað
spila á þorrablótum íslendingafélaga, fyrir
gamla aðdáendur. Það er margs að minnast".
Mörg lög með BG og Ingibjörgu
urðu landsþekkt, hvenær
byrjaðir þú að semja?
„Það var nú ekki mikið um það að hljóm-
sveitir væru að semja sfna eigin músik hér
áður fyrr, aðallega voru það erlend lög sem
fengu síðan ístenska texta. Ég samdi nokkur
lög í gamla daga til að hafa á B hliðinni, en
íseinni tíð hef ég samið dálftið. Á nýju plöt-
unni minni, sem kom útfyrir jólin, eru 14 lög
ogá ég þau öll nema eitt.
Á landsmótum harmoniku-
unnenda hafið þið Villi Valli vakið
athygli fyrir góð lög, sem
HarmonikufélagVestfjarða hefur
spilað. Ég minnist sérstaklega
landsmótslagsins 2002,
sem ereftirþig
„Já, það erskemmtilegt lagsem alltaf er jafn
vinsælt á dansleikjum og öðrum uppákomum,
en einnig höfum við Villi verið að semja
svolítið fyrir harmonikufélagið“.
Þú ogVilli Valli eruð nú mótorarnir
í harmonikufélaginu, en hafið þið
aldrei verið saman í hljómsveit?
„Nei, eiginlega ekki, Villi var með sína eigin
hljómsveit áratugum saman og oft var sam-
keppni á milli hljómsveitanna. Við höfum þó
spilað saman í lúðrasveit og hér í Harmon-
ikufélagi Vestfjarða. Villi er magnaður. Við
Vestfirðingarnir höfum alltaf spilað á böllum
á landsmótunum og náð nokkuð vel saman".
Baldur, nú hefur þú spilað á fjölda
hljóðfæra um ævina, hvaða hljóð-
færi finnst þér skemmtilegast?
„Fyrst var það harmonikan, síðan saxófónn,
sem ég spilaði á f öllum hljómsveitunum
ásamt hljómborði, en nú finnst mér mest
gaman að leika mér á nikkuna".
Við kveðjum Baldur Geirmundsson, BÉ GE og
konu hans, Karitas Pálsdóttur, sem nú er for-
maður Harmonikufélags Vestfjarða og er að
undirbúa landsmótið, sem haldið verður á
Hellu í sumar. mrg
\