Harmonikublaðið - 01.05.2011, Qupperneq 26

Harmonikublaðið - 01.05.2011, Qupperneq 26
Fréttirfrá Harmonikufélagi Reykjavíkur Heil og sæl Ýmislegt hefur á daga okkar drifið í Harm- onikufélagi Reykjavíkur sfðustu mánuði. Sameining Hljóms og Harmonikufélags Reykjavíkur er nú orðin að veruleika. okkur, sem kornum frá Hljómi og erum nýliðar í stjórninni, skemmtilega á óvart að vera kölluð „unga fólkið“, „ungmennin" og jafnvel á stundum „krakkarnir"!! Það segir okkur kannske eitthvað, því við erum á fimmtugsaldri og vel að merkja eitt okkar nýlega komið á sextugsaldurinn!! Stjórnin hefur eftir bestu getu sinnt föstum liðum félagsins í vetur og má þar nefna tónleika- hald í Ráðhúsinu og dansleiki íVfkinni í Sjóminjasafninu sem að jafnaði eru haldnir fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Áviðburðum sem þessum er hefð fyrir þvf að Léttsveit Harmonikufélags Reykjavíkur spili en hún heldur enn sínar reglubundnu æfingar íTónabíó undir stjórn Einars Friðgeirs. Innan HR eru einnig starfandi minni grúppur sem taka að sér tilfallandi verkefni á vegum félagsins og verður í því sambandi að minnast á kynn- Einar Fridgeir Björnsson. Samhristingurinn hefur tekist vonum framar og áætlað að halda áfram með þennan dagskrárlið. Lögð er áhersla á afslappað andrúmsloft laustvið öllform- legheit. Ungir sem aldnir, reyndir sem óreyndir mega stíga á stokk, spila, syngja, nú eða bara segja sögu, - allir velkomnir f salinn með eða án harmonikunnar. Félagar Frá vinstri: Gudrún Guðjónsdóttir, Hjálmar Þ. jóhannesson, ÓlafurÞ. Kristjánsson, Jón Kristján Brynjarsson, Björn Ólafur Hallgrímsson, jóhann Gunnarsson. Ný stjórn hins sameinaða félags er tekin við stjórnartaumunum en hún var kosin á Guðrún Guðjónsdóttir, Hjálmar Þ. Jóhannesson. síðasta aðalfundi þann 28. september 2010. Guðrún Guðjónsdóttir sem hefur unnið ötult starf í þágu félagsins lét (form- lega) af formennsku og undirrituð Guðný Kristín tókvið kyndlinum alls óreynd og blaut á bak við eyrun. Henni til halds og trausts er Jón Kristján Brynjarsson varafor- maður sem hefur áralanga reynslu af störfum innan félagsins. Aðrir stjórnar- menn eru Jón Þór Jónsson gjaldkeri, Ólafur Briem ritari ogSigurðurJ Sigurðsson með- stjórnandi. Þótt Guðrún reyni af öllum mætti að slíta sig frá stjórnarstörfum þá hefur nýi formaðurinn séð til þess að hún næði því markmiði sínu ekki enn sem komið er. Formaðurinn ónáðar fyrirrennara sinn í tíma og ótíma með spurningum og vangaveltum um ýmis stjórnarmálefni. Guðrún hefur sýnt okkur hið mesta lang- lundargeð og miðlað af dýrmætri reynslu sinni til okkar nýliðanna og færum við henni okkar bestu þakkir fyrir það með von um að öðlast kjark til að klippa á nafla- strenginn fyrr en síðar. Það hefur komið 26 ingu á harmonikunni íleikskólum Reykjavíkurog nágrennis. Guðrún og Hjálmar eiga allan heiður af þeirri kynningu, en þau sinna þessu verkefni af mikilli alúð. Nýtt af nálinni í vetur var „Sam- hristingur á sjónvarpslausu fimmtudagskvöldi “ íNemaForum gamla Slippsalnum við Mýrargötu. Tilvitnun í auglýsingu: „Harmonikufélag Reykjavíkur býður upp á óhefðbundið og afslappað harmonikukvöld og músiktilraun á „sjónvarpslausum" fimmtudegi. Innan vébanda félagsins eru einstaklingar og hópar sem hafa verið að bauka ýmislegt, gjarnan hver í sínu horni og felst tilraunin í því að laða þá fram og upp á sviðið til að skiptast á framlögum. Um leið er kvöldið kynning á hljóðfærinu og þeim félagsskap sem hljóðfærið dregur að sér. Hver veit nema stemning verði fyrir dansi .... eða söng. Það kemur í ljós.“ úr F.H.U.R. hafa heiðrað okkur með nær- veru sinni og tekið fullan þátt í tilrauninni með spili og söng, kærar þakkir fyrir það!! Framundan er landsmótið og ráðgerum við félagar HR að fjölmenna, sýna okkur og sjá aðra, njóta samverunnar og harmoniku- tónlistar til hins ýtrasta. Sjáumst, f.h Harmonikufélags Reykjavíkur Gudný Kristín Erlingsdóttir (formadur)

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.