Harmonikublaðið - 01.10.2013, Síða 4
| BREIÐUMYRARHATIÐ 20131
//I/ A>
['‘•IflÞt \ )' ' 'iV V' ' ^
í, • js» ' U* v. + ;>K-* • • vJ
WWgjfi
» !»**•!
í>a<J er hefi jyrirgóðu veðri á lireiðumýri
Happadrœttisliðið: Un/iurSigfúsdó/tir, EinarBjar/ii Einarsson, Pé/ur Sigurðs-
son og Riínar Hannesson
Hin árlega útileguhátíð Félags
Harmonikuunnenda við Eyjafjörð
og Harmonikufélags Þingeyinga
var haldin á Breiðumýri dagana 26.
- 28. júlí.
Töluverður hópur var mættur á mótssvæðið
þegar dagskrá byrjaði á föstudagskvöldinu og
síðan bættust fjölmargir við á ballið. Dansað
var í salnum og tjaldinu og dansað sleitulaust
frá tíu til tvö. Var fjöldi sem nýtti sér tjaldið til
að dansa í þar sem veðrið var svo gott eins og
alltaf reyndar.
Eftir hádegi á laugardegi voru tónleikar milli
tvö og hálf f)ögur og var salurinn þétt setinn.
Þar spilaði fyrsmr Óli H. Ólason frá Grímsey.
Næstir voru þeir Aðalsteinn Isfjörð og Einar
Guðmundsson, þá kom Sigurður Hallmarsson,
Reynir Jónasson og svo Aðalsteinn aftur til að
kynna útgáfu á nýjum geisladiski, sem hann er
að gefa út. Þá var Ivar Ketilsson kallaður á svið
til að afhenda honum viðurkenningu frá HFÞ
í tilefni af 70 ára afmæli sínu og að lokum spil-
aði Sigurður Leósson þrjú lög sem hann sendi
inn í samkeppni um Landsmótslagið 2014. Var
honum afhent viðurkenning fyrir sigurlagið.
Sameiginlegt grill var að venju til að undirbúa
mannskapinn með næga orku fyrir kvöldið.
Dregið var í happdrætti um níuleytið og var
mikill fjöldi vinninga (40+) og tók það tölu-
verðan tíma með tilheyrandi kossaflensi og
látum, sérstaklega þeirra sölumanna Péturs og
Rúnars og þurfti Unnur Sigfusdóttir sem stjórn-
aði þessu að hafa nokkur afskipti af þeim til
að komast að líka.
Seinna ballið byrjaði svo klukkan tíu og stóð
með stanslausu stuði til tvö. Vel var mætt á þetta
allt og fór allt afskaplega vel og prúðmannlega
fram. Þurftu dyraverðir lítið sem ekkert að hafa
fyrir sínu starfi og er það vel. Allavega skemmti
ég mér vel allan tímann og vonandi hafa allir
komist heilir heim.
Einnig voru þeir Einar Guðmundsson og
Gunnar Kvaran með harmonikusölusýningu
og sölu á diskum.
Sigurður Olafsson. Mjndir: Sigurður Ó/afsson
Siungt S/rákaband. Frá vinstri: Númi Adólfsson, Rsínar Ha/messon, Magnús
Kristinsson, Krisján Kárason og Grírnur Vi/hjálmsson
4
IngvarHólmgeirsson og bljómsveit. Söngvararnir Kristnin Sigurðardóttir og Þor-
valdur Skaftason, gítaríeikari Jóhann Möller