Harmonikublaðið - 01.10.2013, Qupperneq 16

Harmonikublaðið - 01.10.2013, Qupperneq 16
I Arbœjarkirkju Spilafélagar í Harmonikufélagi Rangæinga hafa komið saman til æfinga vikulega yfir vetrartímann. Þessar æfingar hafa flestar farið fram í safnaðarheimilinu á Hellu. Félagarnir hafa víða leikið á ýmsum samkomum og eins og venjulega við góðar undirtektir. Það er orðin föst venja að leika árlega á leikskólum og dvalarheimilum aldraðra í sýslunni svo það má segja að þessi tónlist sé vel þegin í öllum aldursflokkum. Farin var skemmdferð út í Arnessýslu haustið 2012. Komið var við á mörgum áhugaverðum stöðum svo sem í Forsæti, Strandakirkju, Draugahúsinu á Stokkseyri, Þorlákskirkju og endað á því að snæða dýrindis kvöldverð á Hajið bláa hafið þar sem hægt er að njóta stór- fenglegs útsýnis við ströndina. I Þorlákskirkju fengum við feikna góðar móttökur þar sem Rán Gísladóttir kirkjuvörður sýndi okkur kirkjuna og rakti sögu hennar og uppruna. Félagarnir tóku hljóðfærin upp og léku nokkur lög. Þá kom dl tals að Harmonikufélag Rangæinga kæmi til Þorlákshafnar ásamt kór Arbæjarkirkju og haldin væri sameiginleg guðþjónusta í Þor- lákskirkju. Söngstjórar kirknanna Hannes Birg- ir og Hannes Baldursson ásamt prestunum skipulögðu fyrirkomulag messunnar sem var svo haldin 10. mars 2013. Kirkjukórar beggja kirknanna sungu við undirleik félaga í Harmon- ikufélagi Rangæinga. Sr. Halldóra Þorvarðar- dóttir prófastur prédikaði. Um 170 manns sóttu þessa samkomu. Þessi nýbreytni þótti takast mjög vel og var rætt um að efna til slíkrar samkomu á haustdögum í Rangárvallasýslu. Haldin var harmonikumessa samkvæmt venju í Arbæjarkirkju 23. júní 2013. Þar var m.a. frumflutt lag eftir Jóhann Bjarnason formann með texta eftir Elsu Arnadóttur. Lagið heitir Obyggðin laðar og lokkar og kirkjukórinn söng. Eftír athöfnina sem var vel sótt var boðið upp á súpu og brauð. Grétar Geirsson ogjóhann Bjarnason að leika jyrir börn á leikskólanum að Lauga- I Þorlákshafnarkir/yu. Mytidir: Valur Haraldsson landi Harmonikuviðgerðir Tek að mér viðgerðir á harmonikum Gunnar Kvaran sími: 824-7610

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.