Harmonikublaðið - 01.10.2013, Blaðsíða 9
Friðrik og Rúnar Hannesson tneð létta aftngtt
Þegar í Staðarborg var komið voru hljóðfærin drifin í hús og stillt upp.
Góður kvöldverður var framreiddur af Arnóri hótelstjóra og hans liði,
svo við höfðum góða orku í kvöldskemmtunina. Hópur hressra Aust-
firðinga mætti og Kveðandafólk byrjaði dagskrána kl. 21 og fengu góð-
ar viðtökur, enda vant lið og vel fram sett. Þá kom leynigestur sem
reyndist vera kínversk kona, dúkka og langaði hana að læra eitthvað í
gömlu dönsunum. Þórgrímur Björnsson formaður HFÞ tók að sér að
kenna henni grunnsporin og gekk það vel.
Þá byrjaði ballið og var dansað af krafti í 4 tíma og vonandi hafa allir
komið hressir og heilir heim. Sumir létu sig ekki muna um að skreppa,
þó það væri ríflega 2 tíma akstur, aðra leiðina. Þetta var í ellefta sinn
sem harmonikufélagið mætir þarna og alltaf mjög vel mætt af Austfirð-
ingum og ballið ekki búið þegar það næsta er pantað. A heimleiðinni
var enn mikið ort og sagðar sögur og er þetta mjöggóð aukaskemmtun.
Hér fylgir að lokum smá brot af því.
Öflugustu aðdáendur okkar
Skálaó jyrir skemmtilegu kvöldi
Alþýðu í fylking fór
fékk þar öruggt sæti.
Krónan styrktist, kreppan fór,
ég kann mér ekki læti. - Björgvin
Bjögga á þing ég bestan tel
bregst hann fæstra vonum
því gamlar lummur geta vel
gengið í kosningonum. - Friðrik
I þessari ferð var rútan svo vel úr garði gerð að í henni var klósett. Urðu
af því tilefni nokkrar vísur til, sem ekki töldust prenthæfar, en tvær læt
ég þó flakka.
Dregur andann ótt og oft
af því vex mér grunurinn,
að þetta er ekki þingeyskt loft
það er nú allur munurinn.
A fésbók kemur mögnuð mynd
af manni í friðarhöfn
reyna að verka sína synd
við segjum engin nöfn. - Osk Þorke/sdóttir
Ýmsir hausar eru að springa
er þá drykkju hætt um skeið.
Þynnkuflokkur Þingeyinga
þokar sér nú heim á leið. - Friðrik
Þynnkan af ýmsum þessum lekur
þorstinn í kverk vill bitur svíða.
Hvort var þá sá sem okkur ekur
sem átti við mesta þraut að stríða ? - Brynjar
Verið ei með mð og tafs
tappa úr flösku dragið.
Og bílstjóranum bjóðið snafs
þá batnar ökulagið. - Friðrik
En Björgvin var ekki sáttur við þannig ökulag.
Björgvin skilur ekki enn
enda í gíri tregum
að það eru aðeins úrvalsmenn
sem aka á Drottins vegum. - Friðrik
Þetta er aðeins brot af því sem ort var í ferðinni. Við undirrituð biðjum
forláts ef eitthvað er ekki rétt eftir haft.
Sigurður Ó/afsson og HólmfríðurBjartmarsdóttir. Myndir: Sigurður Ólafsson