Reykjavík


Reykjavík - 23.02.2013, Qupperneq 2

Reykjavík - 23.02.2013, Qupperneq 2
2 23. febrúar 2013 Umboðsmaður borgarbúa ráðinn Umboðsmanni er ætlað að leiðbeina borgarbúum í samskiptum við borgaryfirvöld telji þeir á sér brotið sem og að veita upplýsingar um kæruleiðir. Ingi B. Poulsen héraðsdómslög-maður hefur verið ráðinn umboðs-maður borgarbúa og hefur hann störf um mánaðamótin. Helstu verkefni umboðsmanns borgarbúa verða að leiðbeina íbúum í samskiptum þeirra við stofnanir og embætti Reykjavíkurborgar og veita borgarbúum ráðgjöf um rétt þeirra. Einnig að leiðbeina borgarbúum og fyrirtækjum sem telja á sér brotið í samskiptum við Reykjavíkurborg um meðferð mála og sinna almennum kvörtunum og ábendingum varðandi þjónustu. Þá á umboðsmaðurinn að veita ráðgjöf um endurupptökuheim- ildir og eða kæruleiðir vegna mála sem honum berast og hafa eftirlit með stjórnsýslunni í umboði forsætis- nefndar borgarinnar. Þá hefur hann heimild til að rannsaka mál að eigin frumkvæði. Og einnig er honum ætlað að veita mannréttindaskrifstofu laga- lega aðstoð vegna erinda borgarbúa er lúta að mismunun. Alls sóttu nítján manns um stöðu umboðsmanns. Ingi B. Poulsen er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í umhverfis- og auðlindarétti. Undan- farin ár hefur hann starfað á lögmanns- stofu, en um fjögurra ára skeið vann hann hjá embætti borgarlögmanns við almenn málflutningsstörf, lögfræði- lega ráðgjöf innan borgarkerfisins og málflutning á kærustigi innan stjórn- sýslunnar. Reykjavík vikublað óskar eftir að komast í samband við borgar búa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu póst á ritstjorn@fotspor.is eða hringið í síma 698-6789. Reykjavík vikublað 8. Tbl. 4. áRganguR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími 578-1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Haukur Holm, netfang: haukur@fotspor.is. Myndir: Ýmsir, netfang: ritstjorn@fotspor.is, sími: 698-6789. Umbrot: Prentsnið. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 47.500 eintök. dreifing: Reykjavík vikublaði eR dReift í 47.500 eintökum ókeypis í allaR íbúðiR í Reykjavík. Viltu segja skoðun þína? ReykjavíkuRgetRaunin Virðing Alþingis er þingmönnum mikils virði, í það minnsta segja þeir það flestir, ekki síst ef gagnrýna á framgöngu pólitískra andstæðinga. Alþingi nýtur hins vegar vægast sagt takmarkaðrar virðingar í samfélaginu eins og marg oft hefur komið fram. Nú í vikunni varð uppákoma sem erfitt er að henda reiður á, en það má áreiðanlega draga þá ályktun að hún hafi lítið gert til að hjálpa virðingar- snauðu þjóðþinginu. Málið snerist um vantrauststillögu sem Þór Saari þingmaður Hreyf- ingarinnar kynnti síðdegis á fimmtudag vegna þess að allt stefnir í að stjórnarskrárfrumvarpið færi ekki í gegnum þingið. Samkvæmt tillögunni færi ríkisstjórnin frá, yrði vantraust samþykkt, starfstjórn tæki við og kosið yrði 13. apríl. Fjórtán dögum áður en á að kjósa hvort eð er. Að vísu þýddi þetta að önnur ríkisstjórn sæti í hálfan annan mánuð eða svo. Einhverjir höfðu á orði að formgalli væri á tillögu Þórs. Aðrir bentu á að með þessu væri þingmaðurinn að tryggja að stjórnarskrármálið væri endanlega dautt. Sjálfur sagði hann að það væri einfaldlega raunin miðað við núverandi aðstæður. Sem kunnugt er vildu þingflokksformenn stjórnarflokkanna drífa at- kvæðagreiðsluna í gegn, í stað þess að bíða með hana til þriðjudags eins og tillagan gerði ráð fyrir. Þór dró því tillögu sína til baka, en segir málinu ekki lokið, tillagan geti komið aftur síðar. Og ekki hægt að skilja öðruvísi en svo að hann ætli að nota vantrauststillögu sem þvingunarúrræði. Út af fyrir sig má hrósa Þór fyrir að virðast hafa það prinsip að styðja ekki þá sem hann telur að standi ekki við gefin fyrirheit. En allt þetta sjónarspil virkaði einfaldlega hlægilegt og ekki það sem Alþingi bráðvantaði, þvert á móti. Það er þegar of margt sem kjósendum finnst skrýtið við vinnubrögðin við Austurvöll, svo ekki sé farið í svona ferðalag. Við þetta má svo auðvitað bæta, að vantraust á ríkisstjórn er alvörumál og slíkt ber ekki að hafa í flimtingum né veifa slíkum tillögum af gamni sínu. Það er stutt í kosningar. Við kjósendur getum bara vonað að vinnubrögðin þar yfirleitt batni, varla geta þau versnað, svo oft hefur botninum verið náð. Góða helgi. Leiðari Einmitt það sem Alþingi vantaði – eða ekki Svar á bls. 14 Hvar stendur þetta hús og hvað heitir það? Mönnum skákað í Hörpu Reykjavíkurskákmótið, það 49, stendur nú yfir í Hörpu. Mótið hófst síðastliðinn þriðjudag og stendur til 27. febrúar. Jón Gnarr borgarstjóri lék fyrsta leikinn á mótinu fyrir hollenska stór- meistarann Anish Giri sem mætti Jo- han Sebastina Christiansen frá Nor- egi. Giri er stigahæsti keppandinn á mótinu. Mótið nú er hið fjölmennasta til þessa, 230 keppendur, þar af 170 útlendingar frá 40 löndum. Friðrik Ólafsson fyrsti stórmeistari Íslands er meðal keppenda, 78 ára, og hefur staðið sig af stakri prýði til þessa. Þess má geta að Friðrik var einnig með á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu. Þá eru tveir heimsmeistarar meðal keppenda, Guo Qi frá Kína sem er heimsmeistari stúlkna og Úkraínumaðurinn Alex- ander Ipatov heimsmeistari pilta, en hann keppir reyndar fyrir Tyrkland. Túbusjón- vörp vantar á HönnunarMars Hönnunarhátíðin Hönnunar-Mars verður haldin 14.-17. mars. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar tekur nú þátt í fyrsta sinn með sýningu á Hlemmi. Sviðið hefur aðkomu að mörgum af stærstu hönnunarverkefnum borgar- innar. Sem kunnugt er hefur Reykja- víkurborg keypt BSÍ húsið og stendur til að færa skiptistöðina á Hlemmi þangað. Borgarbúum stendur nú á HönnunarMars til boða að koma með hugmyndir um hvað gera eigi við húsnæðið á Hlemmi. Samkvæmt upplýsingum frá Reykja- víkurborg er í uppsiglingu mikil sýning á Hlemmi og er nú leitað að túbusjónvörpum sem virka og eru með skarttengi. Í hvað á að nota þau fæst ekki uppgefið, en að það muni koma í ljós á HönnunarMars. Að lok- inni sýningu verður sjónvörpunum svo komið til Góða hirðisins þannig að þau nýtist áfram. Þeir sem eiga slíka gripi í fórum sínum geta komið þeim í afgreiðslu Reykjavíkurborgar á Höfðastorgi Borgartúni 12-14. Framkvæmdir við hjóla- og göngubrýr yfir Elliða- árósa í fullum gangi Framkvæmdir vegna hjóla- og göngubrúa yfir ósa Elliðaáa standa nú sem hæst. Stórvirkar gröfur og vinnuvélar eru nú notaðar við að byggja undir brýrnar, sem þvera munu Elliðaárnar yfir Geirsnef. Umferð er þar af leiðandi tak- mörkuð á Geirsnefi vestanverðu. Áætlað er að verkinu verði lokið um mánaðamótin ágúst/september.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.