Reykjavík


Reykjavík - 31.05.2014, Qupperneq 4

Reykjavík - 31.05.2014, Qupperneq 4
4 31. maí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Til valda á vængjum þröngsýni og andúðar Niðurstöður nýafstaðinna kosninga til Evrópuþings-ins valda víða áhyggjum. Þjóðernisöfgamenn stormuðu fram og eru nú stærstu fulltrúar Frakk- lands, Danmerkur og Bretlands á Evrópuþinginu. Svipuð öfl styrktust í Grikklandi og Svíþjóð. Sumir gera lítið úr og segja kjósendur bara vera að senda getulausum og ólýðræðis- legum stjórnvöldum fingurinn. Það er töluverð einföldun. Úrslitin eru í takt við þróunina sem hefur orðið í ríkjum Evrópu, innan og utan ESB, undanfarin ár. Þróunar sem einnig hefur orðið vart hér á Íslandi – eins og dæmin úr baráttunni fyrir borgar- stjórnarkosningarnar sýna. Við megum ekki afskrifa úrslitin sem tilviljanakenndan sigur einstakra „rugludalla“ – eins og svo oft er gert. Vissulega eru hófsamari stjórnmála- flokkar enn við völd. En gleymum ekki að það má auðveldlega sveigja vel meinandi fólk inn á hættulegar brautir - sé þrýstingurinn nógu mik- ill. Það þekkjum við úr sögunni. Og við þær aðstæður eru mannréttindi minnihlutahópa fyrst til að fjúka. En hvað er svona uggvænlegt? Jú, flokkarnir sem nú storma fram undir merkjum frelsis og lýðræðis eru í raun engir aðdáendur frelsis og lýð- ræðis – hvað þá mannréttinda. Þvert á móti. Þeir dulbúa sig sem vini „litla mannsins“ en beina einatt spjótum sínum að veikari hópum samfélagsins. Innflytjendum. Múslímum. Hinsegin fólki. Umræðan er einfölduð og fólki hrúgað saman í einn hóp sem gerður er að sameiginlegum óvini „okkar“ hinna. „Þau“ gegn „okkur“. Allt eftir því hvað hentar. Svo er flogið til valda á vængjum þröngsýni og andúðar. Ein af þversögnunum í orðræðu þessara afla varðar hinsegin fólk. Á meðan barið er á okkur með annarri hendi er reynt að lokka okkur að málstaðnum með því að veifa „múslímaógninni“ í hinni. Að svokölluð „íslamvæðing“ samfélags- ins muni ræna hinsegin fólk öllum réttindum. Þannig taka þeir réttinda- baráttu okkar í gíslingu og beita með óþolandi hætti gegn öðrum minni- hlutahópum. Og margir láta glepjast. Meira að segja á landinu bláa. Það er á ábyrgð okkar allra að standa upp og mótmæla málflutningi af þessu tagi. Við vitum nefnilega aldrei hvenær spjótunum verður beint að okkur sjálfum. Nei, þessi grein er ekki um Framsóknarflokkinn og kosningabaráttu hans, eða furðulegan útúrsnúning forsætisráðherrans í þeim málum, sem er hvorki honum né okkur sem þjóð til nokkurs sóma. Enda þótt nú sé kosið í Reykjavík og freistandi væri að fjalla um góð kosn- ingamál, líkt og gjaldfrjálsan leikskóla eða áherslur í húsnæðismálum, þá langar mig að vekja máls á alvarlegri þróun. Í vikunni bárust þær fréttir að eigandi Ísfélags Vestmannaeyja, Guðbjörg Matthíasdóttir, hefði keypt heildsölufyrirtækið Íslensk-ameríska. Guðbjörg á í gegnum félög sín stóran hlut í útgáfufélagi Morgunblaðsins og Lýsi, svo dæmi séu tekin. Hún á útgerð og útflutningsfyrirtæki, og eitt stærsta innflutnings- fyrirtæki landsins; sem jafnframt rekur stærsta bakarí landsins, Mylluna, auk þess að eiga drjúgan hlut í útbreiddum og áhrifamiklum fjölmiðli. Þetta er ekki eina dæmið um stórkostleg áhrif útgerðarmanna í ýmsum óskyldum fyrirtækjarekstri hérlendis. Nefna má umsvif Kaupfélags Skag- firðinga. Félagið á eina stærstu útgerð landsins, FISK Seafood, og annars bróðurpartinn af öllum rekstri og þjónustu í sínum landsfjórðungi. Þá á kaupfélagið ásamt með Samherja olíufélagið Olís. Og Olís er ekki bara einhver bensínstöð. Olís er líka eitt helsta innflutningsfyrirtæki landsins. Félagið á Hátækni, Ísmar, Ellingsen og áfram mætti telja. Auk þessa eiga bæði félög hlut í útgáfufélagi Morgunblaðsins enda þótt eigendur Samherja eigi Moggan raunar í gegnum önnur félög. Annars eru umsvif Samherja langt í frá upptalin, svo því sé haldið til haga, fyrir utan margvísleg umsvif annarra auðmanna, hvort sem þeir tengjast útgerð eður ei. En hvað eru þetta annað en alvarleg merki um hringamyndun? Það er ekki nóg að aðeins örfáir aðilar séu ráðandi um megnið af kvótanum sem úthlutað er á Íslandsmiðum. Þessir fáu nýta þau forréttindi til þess að kaupa upp annað atvinnulíf, og með dyggum stuðningi ríkisstjórnar Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokksins; sem gerir þeim kleift að lækka veiðigjöld með óskyldum fjárfestingum. Nú er beðið eftir Samkeppniseftirlitinu hvað varðar kaup Guðbjargar á Íslensk- ameríska. En fyrst samkeppnislög virðast heimila Samherja og kaupfélaginu að eiga saman Olís, þá er tæplega við öðru að búast en að þetta gangi líka í gegn. Það er sterk vísbending um að eitt mikilvægasta verkefni Alþingis sé að laga samkeppnislöggjöfina. Eða er það vilji þingmanna og ríkisstjórnar að örfáir eigendur Morgunblaðsins eigi líka að eiga allt Ísland? Bæta við málsgrein: Þeir hljóta að nýta sumarið vel til að leggjast yfir þessi mál. Ingimar Karl Helgason Leiðari Óveðursský – taka tvö Reykjavík vikublað 20. Tbl. 5. áRganguR 2014 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Blaðamaður: Atli Þór Fanndal. Netfang: atli@ thorfanndal.com. Menningarblaðamaður: Hildur Björgvinsdóttir. Netfang: hildurbjorgvins@gmail.com. Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 50.000 eintök. dreifing: Fríblaðinu er dreiFt í 50.000 e intökum í allar íbúðir í reykjavík. UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN Partý á Matvælastofnun Landbúnaðarráðherrann sagði í vik- unni að ekki væri ástæða til að virða landslög þegar ólöglegar geldingar á grísum væru annars vegar. Nú er sumsé ekki hægt að fara að lögum vegna Matvælastofnunar. Enda þótt þetta sé skuggalegt viðhorf sem hlýtur að valda áhyggjum á Al- þingi og víðar, þá má vera að menn gleðjist hjá Matvælastofnun. Það var nefnilega svo í vetur að ráð- herrann mátti ekki til þess hugsa að bíða eftir stofnuninni og leyfði, þvert á álit hennar, sölu á bjór sem ekki var til mann- eldis. Þú fékkst reikning Ríkisútvarpið greindi frá því – án þess að nokkur tæki eftir – að því er virðist, að útgerðin Vísir í Grindavík ætlaði að snuða starfsfólk sitt um laun í uppsagnarfresti. Fyrirtækið setti starfsmenn sína á Húsavík, þar sem starfsstöð verður lokað, á atvinnuleysisbætur. Tvennt vekur athygli. Annars vegar að bæturnar eru lægri en launin, og hins vegar að fyrirtækið sendi almenningi reikn- inginn. Ráðamenn þegja þunnu hljóði. Arður „Við viljum að hann skili sem mestum arði,“ segir Kolbeinn Árnason fram- kvæmdastjóri LÍÚ, um sjáv- arútveginn í fréttum vikunnar. Ummælin eru lýsandi. Sjávarútvegur hefur skilað örfáaum eigendum stærstu fyrir- tækja 200 milljarða króna hreinum arði á fáum árum. Verksmiðja á mann Það virðist vera orðin regla fyrir hverjar kosningar að þá hrannast upp verksmiðjur, sérstaklega suður með sjó. Eftir að útséð var um að Bandaríkjaher yrði hér áfram, hefur fjöldinn allur af ýmiss konar verk- smiðjum og verkefnum verið boð- aður, allt frá því í aðdraganda sveit- arstjórnakosninganna 2006. Nefna má stálpípuverksmiðju, álverið í Helguvík, kísilverksmiðjur, túrista- sjúkrahús, formula 1 kappaksturs- braut og áfram mætti telja. Hálauna- störfum verið verið lofað á íslensku og pólsku og hundruðum starfa á framkvæmdatíma. Það yrði fróð- legt ef Árni Sigfússon tæki nú saman allar vinnustundirnar við allar þessar verksmiðjur allar frá 2006. Kæmi ekki á óvart þótt þær væru flestar hjá honum sjálfum, framan við myndavélar. Í fréttumUmmæli með erindi: „Það er næsta eptirtektarvert, hversu karlmenn halda öllu frelsi kvenna og rjettindum í helgreipum, og það virðist, sem þeir álíti það mikilvæg einkar-jettindi, helguð af fornri venju, að vera allt gagnvart þeim, en að þær megi ekkert vera. Að þetta sje rjett og eðlilegt þykjast þeir sanna með þeim ritningargreinum, að konan sje ekki nema eitt „rif úr síðu mannsins“, og eigi því aldrei að verða tiltölulega meira, og að „mað- urinn sje konunnar höfuð“. Síðara hluta þessarar margendurteknu setningar sleppa þeir.“ - Bríet Bjarnhéðinsdóttir, 1885. Höfund ur er Hilmar Magnússon, formaður Samtakanna ‘78 VI KU BL AÐREYKJAVÍK Auglýsingasíminn er 578 1190 Ópólitík Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ og oddviti á lista Sjálfstæð- isflokksins í bænum, skammast út í blaðamann Fréttablaðsins í grein í blaðinu í vikunni. Blaðamaðurinn hafi unnið fyrir Samfylkinguna á Akureyri fyrir mörgum árum og nú ráðist hann á Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ. Fréttablaðið, sem stýrt er af rótgrónum sjálfstæðismanni, fjallaði um tugmilljóna króna samninga bæj- arins við þekkta sjálfstæðiskonu sem gerðir voru án útboðs. Sjálfur hefur Gunnar sagst hafa verið „ópólitískur“ og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Endurmenntun Líf Magneudóttir frambjóðandi Vinstri grænna fékk óvænt símtal frá Samfylkingunni í vikunni þar sem henni var boðin fræðsla um stefnu flokksins í menntamálum. Líklega hefur sá sem hringdi ekki vitað að Líf hefur setið í menntaráði Reykjavíkurborgar undanfarin ár og þekkir sjálfsagt ágætlega til áherslna Sam- f y l k i n g a r - innar. Leiguliðar Margir hafa spurt sig um siðferði Framsóknarflokksins í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Minna hefur farið fyrir umfjöllun um út- varpsauglýsingar flokksins. Þar hefur millifærsla úr ríkissjóði til hluta heimila verið auglýst og fólki sagt að kjósa flokkinn í sveitarstjórnarkosn- ingunum. Spyrja má hvað Ómar Stefánsson úr Kópavogi, eini bæjar- fulltrúi flokksins á höfuðborgarsvæð- inu, hafi haft með þessar aðgerðir að gera? Annars er stór hluti af húsnæð- isvanda höfuð- borgarinnar út af ónýtum leigumark- aði. Millifærslan til eignafólks kemur því fólki tæplega til góða. Í takt við tímann Nostalgían tekur á sig ýmsar myndir. Þannig var á uppstigningardag haldin miklil hátíð á Ásbrú – gömlu herstöðinni við Keflavíkurflugvöll – svokallað Karnival. Þarna var meðal annars keppt í „pie“ bakstri og „chili“ eldamennsku. En þar voru líka legátar frá gamla bandaríska set- uliðinu. Rúsínan var svona: „Einnig munu þeir fljúga yfir á F-15 orrustu- þotum sínum yfir karnivalið með tilheyrandi drunum og látum, alveg eins og í gamla daga.“ héðan og þaðan …

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.