Reykjavík - 19.07.2014, Qupperneq 2
2 19. júlí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
ÓTRAUÐUR ÁFRAM
MEÐ OLÍU FRÁ COMMA
5
LÍ
TR
A
R
20
L
ÍT
RA
R
20
5
LÍ
TR
A
R
TransFlow SD 15W-40
TransFlow SD 15W-40
TransFlow ML 10W-30
TransFlow ML 10W-30
3.490 kr.
11.900 kr.
3.490 kr.
12.900 kr.
TransFlow SD 15W-40
109.900 kr. með vsk.
25% afsláttur*
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Sími: 535 9000
*TILBOÐ GILDIR MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
EX
PO
-
w
w
w
.e
xp
o.
is
Fullkomin afneitun
framsóknarforystunnar
Þorsteinn Magnússon, varaþing-maður Framsóknarflokksins, hefur sagt sig úr flokknum,
vegna kosningabaráttu Framsóknar-
flokksins og flugvallarvina í Reykjavík
í vor. Hann segir í fréttatilkynningu
sem send var fjölmiðlum í vikunni
að forsendur fyrir veru sinni í Fram-
sóknarflokknum hafa brostið. Með
umræðu um mosku og múslima hafi
„annað hvort meðvitað eða ómeðvitað
alið á andúð á tilteknum trúarhópi í
kosningabaráttu en slíkt sæmir engan
veginn siðuðu stjórnmálaafli.“
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, odd-
viti flokksins í Reykjavík, vakti athygli
fyrir þennan málflutning, sem sumir
aðrir tóku undir, og að ræða um hættu
á nauðungarhjónaböndum múslima í
umræðuþætti kvöldið fyrir kosningar.
Hann segir að umræðan sem fram-
boðið efndi til hafi verið tilefnislaus,
meiðandi í garð múslima og til þess
fallin að ýta undir fordóma og mis-
munum. Hún fái með engu móti
samræmst grundvallarstefnuskrá
Framsóknarflokksins.
„Formaður og flest annað lykilfólk
í forystu Framsóknarflokksins lét hjá
líða að gera opinberlega athugasemdir
við framgöngu framboðsins í Reykja-
vík meðan á kosningabaráttunni
stóð. Þá fela orð formanns flokksins
undanfarið að mínum dómi í sér
fullkomna afneitun á því að nokkuð
hafi verið athugavert við það hvernig
kosningabarátta framboðsins var háð.
Verða orð hans vart skilin öðruvísi
en hann hafi ekkert við umræddan
málflutning framboðsins að athuga.
Flokkurinn hefur að mínu áliti engan
veginn gert málið upp með viðunandi
hætti,“ segir Þorsteinn meðal annars
í tilkynningunni.
Ómar Stefánsson, sem hefur setið í
bæjarstjórn Kópavogs fyrir flokkinn
hefur líka sagt sig úr honum vegna
kosningabaráttunnar í vor. Fleiri
sem gegnt hafa trúnaðarstörfum
fyrir flokkinn hafa einnig sagt sig úr
honum af sömu ástæðu. Þá tilkynnti
einn af frambjóðendum flokksins í
vor að sér líkaði ekki málflutningur-
inn og vildi láta fjarlægja sig af öllu
kynningarefni flokksins. Óhugsandi að barnið fari í vændi
„Ótrúlegur fjöldi þessa fólks var og er beitt ofbeldi á einhverju tímabili í lífi sínu, reynsla sem
gjarna aftengir þolandann frá líkama
sínum. Einhver þeirra eru að berjast
við erfiða fíkn. Rasismi, stéttaskipting,
kvenhatur lita þennan iðnað,“ segir
Elísabet Ýr Atladóttir meðal annars í
grein hér í blaðinu þar sem hún fjallar
um viðhorf til vændis. „Og kynlífs-
iðnaðurinn gerir hvað sem er til að
slá ryki í augu fólks og viðhalda blekk-
ingarleiknum þar sem hamingjusama
hóran er normið, en kúgunin, fíknin
og ofbeldið eru frávikið. Og það versta
er að þetta virkar. Fólk étur þetta upp í
einfeldningslegri óskhyggju og klappar
sér svo á bakið fyrir að vera baráttufólk
fyrir frelsi til að velja. Þessu sama fólki
þætti hins vegar óhugsandi að barnið
þeirra stundaði vændi.“ Sjá bls. 12.
Fengu lögfræðiálit vegna launalækkunar:
Ríkisforstjóri hélt laununum
Þáverandi forstjóri Matís hélt óbreyttum launum í níu mánuði, eftir að ákveðið var
að enginn embættismaður skyldi hafa
hærri laun en forsætisráðherra. Þetta
kemur fram í svari sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn
Vilhjálms Bjarnasonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins. Svarið var birt á
vef Alþingis fyrr skömmu.
Þar kemur fram að laun forstjórans
námu tæplega einni komma fjórum
milljónum króna á mánuði, fyrir gild-
istöku laganna. Kjararáð úrskurðaði
síðar um laun forstjóranna og tók úr-
skurðurinn gildi 23. febrúar 2010. Sam-
kvæmt því áttu laun forstjóra Matís að
lækka um tæplega 461 þúsund krónur
á mánuði, eða um þriðjung.
Sjöfn Sigurgísladóttir hætti sem
forstjóri Matís, að eigin ósk, eftir því
sem fjölmiðlar greindu frá 1. desem-
ber 2010, um níu mánuðum síðar, en
Sveinn Margeirsson, núverandi for-
stjóri, tók við. „Laun þáverandi for-
stjóra Matís ohf. voru lækkuð frá og
með 1. desember 2010, að loknum
uppsagnarfresti samkvæmt ráðningar-
samningi,“ segir meðal annars í svarinu
til Vilhjálms.
Þar segir að aflað hafi verið lög-
fræðiálits og að stjórn Matís hafi lagt
til að launalið ráðningarsamningsins
yrði sagt upp og tæki uppsögnin gildi
sama dag og úrskurður Kjararáðs var
dagsettur.
Þar segir einnig: „Úrskurðurinn kom
strax til framkvæmda. Framkvæmd
lækkunar var frestað í níu mánuði,
sem var uppsagnarfrestur þáverandi
forstjóra, enda var það skýr ráðlegging
lögmanna að haga málum með slíkum
hætti.“
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
fór í mál við bankann vegna launa-
lækkunarinnar á sínum tíma, en tapaði.
Fram hefur komið að bankinn greiddi
málskostnað Más vegna þessa, um sjö
milljónir króna.
Óvíst er hver kostnaður Matís hefur
verið vegna þessarar tilhögunar en
ætla má að hann hafi ekki verið undir
fjórum milljónum króna.
Forsætisráðherra á ferð og flugi:
11 utanlandsferðir á rúmu ári
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur farið af landi brott í ellefu skipti frá því að hann tók við
embætti forsætisráðherra í fyrravor.
Jóhanna Sigurðardóttir fór utan í sam-
tals þrettán skipti meðan hún gengdi
embættinu, í tæplega fjögur og hálft ár.
Ferðalög forsætisráherra eru auglýst
í Stjórnartíðindum. Tekið er fram að
forsætisráðherrann sé erlendis og hver
gegni starfinu meðan hann er fjarri.
Ekki er getið um lengd ferða, áfanga-
stað eða tilgang. Í tíð núverandi ríkis-
stjórnar hafa þeir Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra, Sig-
urður Ingi Jóhannsson, varaformaður
Framsóknarflokksins, sjávarvegs-,
landbúnaðar- og umhverfisráðherra,
og Hanna Birna Kristjánsdóttir, inn-
anríkisráðherra og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, hlaupið í skarðið
í fjarveru Sigmundar.
Það sem af er þessu ári hefur Sig-
mundur Davíð fjórum sinnum farið
úr landi, ef marka má stjórnartíðindi,
en árið er rúmlega hálfnað. Ferðirnar
voru farnar í júní, apríl, og tvær ferðir í
mars. Sigmundur tók við embætti for-
sætisráðherra í fyrravor. Á síðari hluta
ársins var hann erlendis í sjö skipti, en
fyrsta ferðin var farin í júní og tvær
hinar síðustu í október.
Til samanburðar fór Jóhanna Sig-
urðardóttir í tvær ferðir úr landi á fyrri
hluta síðasta árs, en samanlagt fór hún
í þrettán utanlandsferðir sem kölluðu á
auglýsingu í Stjórnartíðindum, frá því
að hún tók við sem forsætisráðherra í
febrúar 2009. Ef marka má stjórnartíð-
indi, fór Jóhanna ekkert úr landi fyrsta
árið sem hún gengdi embættinu, en
fyrstu ferðina fór hún í september 2010.
Athugasemd frá Elínu Hirst
Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæð-isflokksins hefur sent blaðinu athugasemd vegna ummæla
sem rétt voru eftir henni höfð í frétta-
skýringu um lekamálið í innanríkis-
ráðuneytinu í síðasta tölublaði, en hún
taldi röng af sinni hálfu. Í stað máls-
greinarinnar: „Ég tel mig ekki hafa
beint umboð til að ræða þetta á þessum
nótum. Ég er náttúrulega þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og hvort það er
miðstjórn eða eitthvað sem ákveður
þetta. Þetta er held ég ekki eitthvað
innan míns valdsviðs sem þingmanns.“
Vildi Elín sagt hafa: „Það er flokks-
ráð Sjálfstæðisflokksins hefur það
hlutverk að marka stjórnmálastefnu
flokksins ef ekki liggja fyrir ákvarð-
anir landsfundar. Alþingismenn eiga
meðal annars sæti í flokksráði sem og
miðstjórn flokksins.“
Sveinbjörg
Sveinbjörnsdóttir
Þorsteinn
Magnússon
Snowden ekki lengur með stöðu grunaðs
Bandarísk yfirvöld sinntu ekki beiðni íslenskra yfirvalda um frekari upplýsingar vegna
beiðni um framsal á uppljóstraranum
Edward Snowden. Af þeim sökum
hefur málið verið látið niður falla og
engin virk framsalsbeiðni á hendur
Snowden er í gildi hér á landi. Þrátt
fyrir að Snowden sé ekki staddur hér
á landi og óvíst sé hvaða innlendu lög
hann ætti að hafa brotið með því að
birta gögn frá Þjóðaröryggisstofnun
Bandaríkjanna, lá framsalsbeiðni fyrir
í ráðuneytinu mánuðum saman.
Sjá ítarlega fréttaskýringu á bls. 10-11.
Vilhjálmur Bjarnason.
Elín Hirst
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur á einu ári farið í næstum jafn margar
ferðir og forveri hans gerði á rúmu kjörtímabili. Bjarni Benediktsson hefur
stundum hlaupið í skarðið. Mynd: Pressphotos.biz
jóhanna Sigurðardóttir fór 13 ferðir á
rúmum fjórum árum í embætti.
Mynd: Norden.org