Reykjavík - 19.07.2014, Side 14
14 19. júlí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími: 590 5100 | www.klettur.is
DEKK FYRIR
VINNUVÉLAR
NÝTT
LOKSINS FÁANLEGT
AFTUR Á ÍSLANDI
VÍTAMÍN OG ORKA Í STAÐ
TÓBAKS OG NIKÓTÍNS
vÍsnastund 4. þáttur
Davíð Hjálmar Haraldsson,
Akureyri, orti þegar einn
leikmanna Argentínu skaddaði
hringvöðva í knattspyrnuleik.
Þar líðst ekki linkan og hopið,
ekki lagst eða setið og kropið
en hörðustu gumar
á HM í sumar
rífa á sér endaþarmsopið.
Björn Ingólfsson, Grenivík,
yrkir af sama tilefni
Það virtist oft vont að stöðv’ann
menn vissu þó hvar þeir höfð’ann,
en daginn sem hann
mætti Hollandi og vann
hann reif á sér rassgatsvöðvann.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir.
Bedína sem bjó á Krít
breiða vildi heyið
á hesjur, steig í hundaskít
og hálsbrotnaði, greyið.
Bjarki Karlsson yrkir
á sömu nótum
Tyrfingur í tjóni lenti og týndi síma.
Þrýtur sögu. Þó skal ríma:
Þetta var á Iwo Jima.
Enn er von!
Hjálmar Freysteinsson yrkir.
Að finnist loks hið sanna svar
sérhver maður vonar,
í hlutlausri rannsókn Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar.
Jósefína Dietrich er hefðar-
læða sem yrkir stundum
á Fésbókina.
Hún er ekki par hrifin af sumum
kveðskap semþar birtist.
Í hund má snúnu henda roði
– held það tæpast ýfa skott –
en fylla af leir og fúlu hnoði
facebókina er miður gott.
Ármann Þorgrímsson yrkir.
Entist varla orðaforðinn
ef ég segði huga minn
nú er Hannes Hólmsteinn orðinn
helsti sögu skýrandinn.
Kristján Runólfsson í Hveragerði er
ekki hrifinn af mannanafnanefnd.
Þessa mannanafnanefnd,
má niður leggja á slaginu,
illa bólgin, upp er þembd,
sem igla á þjóðfélaginu.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir.
Margt er það sem miður fer
meðal íslendinga,
En hátt á lofti halda ber
hróðri Skagfirðinga.
Pétur Stefánsson
pest@visir.is
Fjölmenningarborg
Mannréttindaskrifstofa Reykja-víkurborgar mun sækja um að-
ild að alþjóðlega verkefninu Fjölmenn-
ingarborgir, en Evrópuráðið rekur
verkefnið. Borgarráð samþykkti þetta
á dögunum, að tillögu Dags B. Eggerts-
sonar, borgarstjóra. Fram kemur á vef
borgarinnar að í því sé fólginn stuðn-
ingur til að endurskoða stefnumótun
yfirvalda út frá sjónarhorni fjölmenn-
ingar.
Þátttökurétt í verkefninu hafa
einungis borgir með að minnsta kosti
30 þúsund íbúa og þurfa minnst 5%
íbúa að vera af erlendum uppruna.
Hlutfall íbúa Reykjavíkur með erlent
ríkisfang var 8,1% í árslok 2013.
Mannréttindaskrifstofa sækir um
aðild að verkefninu til reynslu til ársins
2016 og að þeim tíma liðnum verður
reynslan metin, segir í frétt á vef borg-
arinnar.
„Ég lifði í menningu sem er hinna“
Ég held að til þess að stunda mann-réttindabaráttu þurfum við að
eiga okkur samfélag,“ segir Ásta Ósk
Hlöðversdóttir verkfræðingur í fyrsta
þætti Öfugmæla, hinsegin þáttar á
nýstofnaðri sjónvarpsstöð IsTV.
Þátturinn var sendur út á fimmtudag,
en þá hóf stöðin útsendingar.
Fjallað er um hinsegin menn-
ingu og mikilvægi hennar í mann-
réttindabaráttu og sjálfsmyndapólitík
hinsegin fólks. „Ég held að ein sters-
kasta tilfinning mín sem samkyn-
hneigðs manns, framan af ævinni,
hafi verið sú að mínum tilfinningum
og mínum hugsunum fann ég hvergi
stað í þessum heimi. Ég áttaði mig
svo, löngu löngu, síðar á því að það
er vegna þess að ég lifði í menningu
sem er hinna; gagnkynhneigð menn-
ing. Hún er normið og þar af leiðandi
hefur hún ekkert nafn,“ segir Þor-
valdur Kristinsson fyrrverandi for-
maður Samtakanna ’78 í þættinum.
„Það má segja að það hafi verið
bókasafn Menntaskólans á Ísafirði
þar sem ég tók mín fyrstu skref á
leiðinni út úr skápnum,“ er haft eftir
Hilmari Magússyni, núverandi for-
manni Samtakanna ’78, um unglings-
árin. „Þar fann ég einmitt fréttabréf
Samtakanna ’78. Ég stal því og fór
með það heim af því þess að ég þorði
ekki fyrir mitt litla líf að fara að lesa
það þarna, í einhverju opinberu rými,
ekki séns.“
Frá fjölmenniningardeginum. Mynd: Reykjavíkurborg.
Fjölbreytt mannlíf er oft í miðbæ Reykjavíkur. Þessi lék á saxófón við Banka-
stræti núll í vikunni og hlaut góðar undirtektir.
Mynd: Kolbeinn Óttarsson Proppé.