Reykjavík - 19.07.2014, Qupperneq 8
8 19. júlí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Eiga stóra hluti í báðum stærstu verslunarkeðjunum
Arion banki og sjóðir í eigu bankans eiga stóra hluti í bæði Högum, stærsta
verslunarfyrirtæki landsins og Kaupási, en fyrirtækin tvö eru samanlagt
með um 80 prósenta hlutdeild á matvörmarkaði á höfuðborgarsvæðinu.
Lífeyrissjóðirnir Gildi, LSR og Festa eiga einnig stóra hluti í báðum fyr-
irtækjunum. Tryggingamiðstöðin á jafnframt hlut í báðum fyrirtækjum.
Markaðshlutdeild
Ef marka má heimasíður fyrirtækjanna
Kaupáss og Haga, reka fyrirtækin sam-
anlagt 54 verslanir á höfuðborgarsvæð-
inu og hafa samanlagt yfirgnæfandi
markaðshlutdeild.
Samkeppniseftirlitið gaf árið 2012 út
skýrslu um verðþróun og samkeppni
á dagvörumarkaði. Þar eru upplýs-
ingar um markaðshlutdeild einstakra
verslanakeðja og verslana. Ætla megi
að breytingar síðan þá séu óverulegar;
ef frá eru taldar breytingar á klukku-
búðunum svonefndu, 10-11 sem þá
voru í eigu Haga og 11-11 sem þá voru
hjá Kaupási.
Þarna kemur fram að á höfuðborgar-
svæðinu séu verslanakeðjur Haga,
Bónus og Hagkaup, með um 54-56
prósenta markaðshlutdeild. Verslana-
keðjur Kaupáss, Krónan og Nóatún,
séu með 24-26 prósenta markaðshlut-
deild.
Í áliti Samkeppniseftirlitsins vegna
viðskipta á matvörumarkaði í fyrravor
er hnykkt á þessu, en þar er samanlögð
markaðshlutdeild fyrirtækjanna talin
vera um 80 prósent; sem þó er dálitlu
minni en í skýrslunni frá árinu áður.
Eignarhald Haga
Hagar eru hlutafélag sem skráð er í
Kauphöllina. Hlutir í félaginu ganga
þannig kaupum og sölum.
Stærstu eigendur Haga eru nú lífeyr-
issjóðurinn Gildi, en sjóðir Stefnis, ÍS 5
og ÍS 15, eiga þar einnig verulegan hlut.
Stefnir er dótturfélag Arion banka.
Bankinn sjálfur á einnig verulegan
hlut í Högum. Einnig Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins og fleiri.
Stórir eigendur í Högum:
LSR 11,6%
Stefnir (ÍS 5 og 15) 10,8%
Gildi 10,4%
Arion 4,4%
Stapi lífeyrissjóður 3,7%
Festa lífeyrissjóður 3,3%
Tryggingamiðstöðin 1,2%
Arion banki og sjóðir dótturfélagsins
Stefnis fara því með ríflega 15 prósenta
hlut í Högum, auk þess sem Gildi og
LSR fara með mjög stóra hluti einnig.
Stapi lífeyrissjóður og Festa eiga þarna
einnig umtalsverðan hlut, svo nokkuð
sé nefnt og Tryggingamiðstöðin rúm-
lega prósent.
Eignarhald Kaupáss
Kaupás er óskráð félag. Eignarhaldið
er flókið, en eigandi félagsins er Festi
hf. Festi er svo aftur í eigu samlags-
hlutafélagsins SF V. Stærsti hluthafinn
þar er sjóðurinn SÍA II sem á 27 pró-
senta hlut, en Stefnir, dótturfélag Arion
banka fer með sjóðinn.
Annar sjóður Stefnis ÍS 5 á einnig
5,8 prósenta hlut í SF V. Sömuleiðis
á lífeyrissjóðurinn Gildi 5,5 prósent.
Stapi lífeyrissjóður á 4,4 prósent og
Festa lífeyrissjóður 3,3 prósent. Þá
á Tryggingamiðstöðin einnig veru-
legan hlut. Þessir aðilar eiga líka hluti
í Högum.
Nokkrir hluthafar SF V slhf.
SÍA II slhf . 27,4%
Stefnir - ÍS 5 5,8%
Gildi Lífeyrissjóður 5,5%
Tryggingamiðstöðin 4,9%
Stapi lífeyrissjóður 4,4%
Festa Lífeyrissjóður 3,3%
Þegar eignarhald á stærsta hluthaf-
anum SÍA II, sjóði í umsjón Stefnis
dótturfélags Arion banka er skoðað,
má sjá að ýmsir aðilar eru með frekara
óbeint eignarhald í Kaupási.
Þannig eru Gildi lífeyrissjóður, Stapi,
LSR, Arion banki, og Festa með um-
talsverða hluti þar, samanlagt yfir 50
prósenta hlut.
Nokkrir hluthafar SÍA II
Gildi lífeyrissjóður 15,9%
LSR 15,2%
Stapi lífeyrissjóður 10,0%
Arion banki hf. 7,5%
Festa lífeyrissjóður 7,5%
Af þessu má merkja að sjóðir Stefnis,
dótturfélags Arion banka, bank-
inn sjálfur, nokkrir lífeyrissjóðir og
Tryggingamiðstöðin eru í hópi allra
stærstu hluthafa í báðum stærstu versl-
unarfyrirtækjum landsins; fyrirtækjum
sem eru með um eða yfir 80 prósenta
markaðshlutdeild á matvörumarkaði
á höfuðborgarsvæðinu.
Hætta á blokkamyndun
Þegar Festi eignaðist Kaupás og
önnur fyrirtæki í þeirri samstæðu, sá
Samkeppniseftirlitið ástæðu til þess að
grípa til aðgerða, og setti ýmis skilyrði
fyrir kaupunum.
Samkeppniseftirlitið taldi að ýmis
samkeppnisleg vandamál gætu falist
í þessu. Meðal annars væri hætta á
því að „eignarhlutir hluthafa SF V í
keppinautum leiði af sér óæskilega
hvata sem draga úr samkeppni á þeim
mörkuðum sem dótturfélögin starfa
á.“ Þá væri hætta á að eignatengsl
„aðila sem eru tengdir viðskiptunum
leiði af sér blokkarmyndun og útiloki
þar með keppinauta frá mikilvægum
viðskiptum eða leiði til þess að félög
innan blokkarinnar njóti viðskiptakjara
sem ætla megi að ótengdur aðili myndi
ekki njóta.“ Sömuleiðis væri hætta á
að „viðkvæmar viðskiptaupplýsingar
berist á milli aðila sem eru tengdir
viðskiptunum og fyrirtækja tengdum
þeim,“ en auk þess nefndi Samkeppn-
iseftirlitið hættu á óæskilegum stjórn-
unartengslum.
Eftirlitið fjallaði einnig, í ákvörðun
um þessi kaup, um þessi mál og einnig
um umsvif lífeyrissjóða í tengslum við
þessi mál; þ.e. „samkynja eignarhaldi
á mikilvægum keppinautum á mat-
vörumarkaði, þ.e. Högum og Kaupási.“
Lífeyrissjóðirnir
Samkeppniseftirlitið nefnir einnig áhrif
minnihlutaeigenda í keppinautum,
og fjallar sérstaklega um stóran hlut
Gildis lífeyrissjóðs í báðum félögum.
Samkeppniseftirlitið telur þó að „ekki
væri um það að ræða að sami hluthafi
færi með samkeppnislega veigamikinn
eignarhlut í tveimur keppinautum á
matvörumarkaði. Þrátt fyrir það verða
nokkrir fjárfestar sem munu eiga veiga-
minni hluti bæði í Kaupási og Högum
í kjölfar samrunans. Við skilgreiningu
á því hvað felst í samkeppnislega veiga-
miklum eignarhlut í þessu sambandi
er m.a. vísað til þess að viðkomandi
eignarhlutur gefi viðkomandi fjárfesti
möguleika á því að krefjast tilnefn-
ingar á stjórnarmanni í viðkomandi
fyrirtæki. Er þá m.a. horft til líklegrar
mætingar á hluthafafundi,“ segir
Samkeppniseftirlitið.
fréttaskýring
Þáttur Stefnis og Arion banka
Flóki Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Stefnis, segir í sam-
tali við Reykjavík vikublað að sjóðir
Stefnis séu eign sjóðfélaga. Eigum
sjóðanna sé haldið aðgreindum frá
eigum Stefnis sjálfs. Arion banki
eigi vissulega allt hlutafé í Stefni,
en félagið hafi sett sér reglur um
hvernig farið sé með atkvæði á
hluthafafundum. Atkvæðisréttur
Stefnis sé sjálfstæður frá atkvæðis-
rétti Arion banka.
Um sjóðinn SÍA II segir Flóki
að hann sé ekki sjóðdeild undir
Stefni, „heldur samlagshlutafélag
með rekstrarsamning við Stefni“.
Eins og fram hefur komið sé félagið
að miklu leyti í eigu lífeyrissjóða
og annarra. Þá hafi Samkeppnis-
eftirlitið sett ýmis skilyrði fyrir
þessari tilhögun mála sem farið sé
eftir; eins og um mögulega hags-
munaárekstra. Auk SÍA II séu
aðrir fjárfestar meðal eigenda Festi
(móðurfélags Kaupáss), m.a. lífeyr-
issjóðir, tryggingafélög og nokkrir
einstaklingar. Þar fari fremstur í
flokki Hreggviður Jónsson, sem er
jafnframt stjórnarformaður Festi.
Eftir því sem best verður séð er
Hreggviður ekki hluthafi í Högum,
en slíkt myndi brjóta í bága við skil-
yrði sáttarinnar við Samkeppnis-
eftirlitið sem nefnd er hér á síðunni.
Gagnrýndi hringamyndun
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, gagnrýndi
þessa gjörninga harðlega í ræðu á
Alþingi 8. apríl síðast liðinn. Hann
rakti kaupin á Kaupási og sagði svo:
„Nú eigum við Matvöruverslun
Íslands hf. Það vill þannig til að ég
var á fundi hjá SA núna á fimmtu-
daginn þar sem ágæt ung kona
lýsti því hversu mikið ríkið seild-
ist til áhrifa á því sem hún kallaði
heilsumarkaðnum. Hún setti upp
kökurit sem sýndi að ríkið réði 68%
af því sem er kallað heilsumarkað-
urinn, þ.e. Landspítalinn og önnur
sjúkrahús sem ríkið rekur. En það
hefði verið hægt að taka ríkið út úr
þessu kökuriti og setja Haga/Kaupás
í staðinn og þá hefðum við verið
komin með ástandið á smásölu-
markaðnum á Íslandi. Nú efast ég
ekki um að það góða starfsfólk sem
er í Samkeppniseftirlitinu hafi byggt
úrskurð sinn á gildandi lögum, ég
efast ekki um það. Það bendir hins
vegar til þess í mínum huga að
breyta þurfi gildandi lögum. Það
þarf að breyta samkeppnislögum
þannig að svona hringamyndun
verði ekki til á Íslandi.“
Ekki er að sjá í stjórnarsáttmála
Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins að til standi að fara í að-
gerðir gegn hringamyndun. Þar
segir raunar að koma eigi í veg fyrir
að fjármálastofnanir „stjórni rekstr-
arfélögum til langs tíma“. En þar
segir raunar einnig: „Ríkisstjórnin
mun beita sér fyrir endurskoðun
regluverks atvinnulífsins með ein-
földun og aukna skilvirkni þess að
leiðarljósi. Markmið hennar verður
að minnka skrifræði og einfalda
samskipti við opinbera aðila um
leið og kostnaði er haldið niðri.“ og
áfram er haldið: „Sérstakt markmið
er að engar nýjar íþyngjandi reglur
verði innleiddar fyrir atvinnulífið
án þess að um leið falli brott jafn-
veigamiklar kvaðir.“
Markaðshlutdeild verslana á höfuðborgarsvæðinu 2011 & 2012*
* Fyrir einhverjar smærri verslananna hafa tölur verið áætlaðar út frá fyrri árum ef nákvæmar tölur liggja ekki fyrir.
Þessi skjámynd úr skýrslu Samkeppniseftirlitsins sýnir markaðshlutdeild
verslanakeðja á höfuðborgarsvæðinu.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins.
Hagar og Kaupás eru samanlagt með um 80 prósenta markaðshlutdeild á
höfuðborgarsvæðinu. Ýmis fjármálafyrirtæki og sjóðir eiga stóra hluti í báðum
félögunum. Mynd: Hagar.is
„Það þarf að breyta samkeppn-
islögum þannig að svona hringa-
myndun verði ekki á íslandi,“ segir
Þorsteinn Sæmundsson.