Reykjavík - 19.07.2014, Side 16
FRÍSTUNDARAFGEYMAR
Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is | Ritstjórn: 659-3442 & ingimarkarlhelgason@gmail.com
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
19. júlí 2014 • 27. tölublað 5. árgangur
BaksÍðan
Hafsteinn
Thorarensen
www.igloandindi.com
- ÍGLÓ&INDÍ VERSLANIR -
0-12 ára
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 4 OG KRINGLUNNI
Hamingju-
landið
Jæja, þá eru niðurstöður nýjustu
hamingjurannsókna komnar í hús
og samkvæmt fréttum eru íbúar Ball-
arhafs 1, 042 Hvergi, næsthamingju-
samastir íbúa Evrópu. Þetta er ágætis
stökk frá úrslitum heimsmeistara-
mótsins í hamingju frá í fyrra þar
sem við luntuðumst í níunda sæti
fyrir neðan sjö Evrópuríki og eitt
Kanada.
Alltaf koma þessar niðurstöður
mér jafn mikið á óvart. Sama hvert
ég lít eða hvað ég les vellur tuðið
úr hverjum munni, af hverjum staf,
þras, þus og þref, fýlustertar hvert
sem litið er. Ef það eru ekki and-
stæðingar núverandi ríkisstjórnar
að sýta nýjasta axarskaft einhvers
ráðherrans eru það stjórnarliðar
að úthúða síðustu ríkisstjórn fyrir
hennar verstu stjórn frá uppafi
vega. Elliðar þessa lands prédika um
syndina í Sollinum, efasemdarraddir
um verksmiðjulaxeldi segja eldið
synda í sjónum, allt er ómögulegt
án ESB, allt er ómögulegt í ESB
og Framsóknarflokkurinn grætur
þegar einhver nefnir hann á nafn.
Á stundum virðist angistin svo yf-
irþyrmandi að jafnvel tíu deilingar
af jákvæðu jarmi á Fésinu duga ekki
til að aflétta drunganum.
Hvað veldur? Er gleðin talin ein-
hver erfðasynd hér sem aðeins er
hægt að viðurkenna í nafnlausum
könnunum hjá erlendum skamm-
stöfunum? Eða eru þessar kannanir
framkvæmdar klukkan átta á föstu-
dagskvöldum? Ef hér er ekki ástæða
til að stofna nefnd um málið, enn
eitt púslið í væntanlegu heimsmeti
Sigmundar og félaga í nefndaskipan
án atrennu, eða hæfasta fólksins, þá
veit ég ekki hvað. Ísland, nefndasta
land í heimi! Gleðjumst!