Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Page 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535 34. árg. I 37. tbl. I Vestmannaeyjum 13. september 2007 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is Haustar að. Ljósmynd Sigurjón Andrésson. Sjúkrahúsið tæknivætt Bjarni Sighvatsson fer fyrir hópi sem lagt hefur tugi milljóna í verkefnið Bjami Sighvatsson frá Ási hefur undanfarin ár farið fyrir hópi sem fjármagnað hefur tækjakaup fyrir Sjúkrahúsið. Nú síðast var það sneiðmyndatæki sem tilbúið verður til notkunar í vikunni. Flest tækin eiga það sameiginlegt að þau spara sjúklingum ferðir til Reykjavíkur enda segir Bjami að það sé næg byrði að berjast við sjúkdóm þó ekki bætist við óþægindi og kostnaður sem fylgja ferðalögum. „Við erum ellefu sem stöndum í þessu,“ sagði Bjami þegar hann var spurður út í söfnunina. Þau eru Leifur Ársælsson fyrrum útgerðar- maður, Gunnar Jónsson fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður, Sigur- jón Oskarsson útgerðarmaður, Matthías Oskarsson útgerðarmaður, Magnús Kristinsson útgerðarmaður, Bjami sjálfur og Dóra kona hans, Kristín Gísladóttir og dóttir hennar Ellý Rannveig Gunnlaugsdóttir, Bergvin Oddsson útgerðarmaður og skipstjóri, Isfélagið, Vinnslustöðin og Sparisjóður Vestmannaeyja. Bjami segir þetta fólk allt hafa sýnt málum Sjúkrahússins mikinn skiln- ing og sennilega væri það fokhelt ef ekki hefði notið við félaga eins og Líknar og Eykyndils. „Sneiðmynda- tækið átti að kosta yfir 20 milljónir króna og lagði ég upp með það þegar ég byrjaði að safna fyrir því. Þegar til átti að taka kostaði það ekki nema 15,8 milljónir en ég var ekkert að skila peningunum og ákvað að eyða þeim fyrir Sjúkra- húsið. Keyptum við lyfjaskömmt- unartæki sem er tilbúið en það vant- ar að senda manneskju til Reykja- víkur til að læra á það. Það verður gert síðar í þessum mánuði og sérstakir bekkir fyrir sjúklinga koma fljótlega. Kemur þetta sér vel, ekki síst fyrir krabbameinssjúklinga sem ekki þurfa að fara til Reykjavíkur á meðan á lyfjameðferð stendur. Líka keyptum við speglunartæki fyrir liðamót og nú kemur sérfræðingur einu sinni í mánuði til að sinna sjúk- lingum. Við keyptum líka súr- efnistæki og og búnað til að dæla súrefni á kútana. Þá má ekki gleyma ljósum á skurðstofuna sem við keyptum en þau gömlu fóru beint á fomminjasafn. Loks get ég nefnt að Pétur Jóhannsson í Geisla gaf sjón- varp til Sjúkrahússins. Þá er verið að kanna verð á tæki til að blása upp kvið sjúklinga fyrir magaspeglum. Það er ekkert ákveðið með þetta tæki en það gæti komið í góðar þarfir.“ Bjami segir að margir hafi komið að þessu með einum eða öðrum hætti og nefnir sem dæmi að Eim- skip gaf flutninginn með Herjólfi og Tryggingamiðstöðin gaf tryggingar. „Þá má ekki gleyma læknunum Hirti Kristjánssyni og Erni Thorst- ensen, tæknimönnum sem tóku sér einn og hálfan dag í að koma sneið- myndatækinu upp og svona gæti ég haldið lengi áfram. Þar á ég ekki síst við starfsfólk Sjúkrahúss sem alltaf er tilbúið, jákvætt og lipurt,“ sagði Bjarni en er hann hættur? „Eg hafði lofað að draga mig í hlé en ellefumenningarnir hafa hvatt mig til að halda áfram og það er efitt að skorast undan því.“ Utskrifaðist með láði frá leiklistarskóla í London Ástþór Ágústsson er heidur betur að gera það gott því hann útskrifaðist með 1. flokks einkunn frá leiklistarskólanum Rose Bruford í London á laugardag. Ástþór var staddur ásamt fjöl- skyldu sinni í London þegar náðist í hann og var spurður hvað tæki við hjá honum í framhald- inu. „Ég verð að vinna á Herjólfi fram að áramótum en fer svo aftur til London og verð þar um óákveðinn tíma. Ég er að stofna lítið leikfélag með tveimur skólafélögum mínum og síðan eru tveir aðrir félagar mínir af leikstjómarsviði sem vilja fá mig í ákveðið verkefni. Það er ekki alveg komið á hreint en ef af verður þá kem ég til með að vinna með þeim í Frankfurt og Noregi. Þetta er erfiður bransi og maður veit ekki hvernig þetta þróast en ég er líka með það bak við eyrað að koma heim og vinna að leik- list í Eyjum og með þeim áhugafélögum sem ég starfaði með áður en ég fór út í námið." Ástþór var eini Islendingurinn sem útskrifaðist með BA próf frá skólanum að þessu sinni en fleiri Islendingar stunda nám við skól- ann. „Það hafa verið íslendingar á undan mér en það byrjuðu nokkrir síðasta haust í ýmsum kúrsum. Draumurinn hjá mér er að fara í masterinn en það fer auðvitað eftir verkefnum og hvernig málin þróast." Kemur þú til með að starfa eitt- hvað með Leikfélaginu hér í vetur? „Það er búið að tala við mig en það gengur ekki upp með vinnu á Herjólfi. Leikfélagið er að undir- búa verkefni og það hefði verið spennandi að vera með en það er bara ekki hægt,“ sagði Ástþór og bætti því við að peningar og leik- list færu ekkert sérlega vel saman. VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI.J 11 SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM mar VELA- OG BILAVERKSTÆÐI FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616 VÆNGIRÁ BAKKA ENGIN LÁGMARKS- FJÖLDI FARÞEGA. BÓKUNARSÍMI: 481-1100 ■oSr

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.