Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Page 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 13. september 2007
Úr bloggheimum:
Andri Hugo:
Holland á
Eyjamaður vikunnar:
Hefði viljað hina Cantona
döfinni
Þá er bara alveg að
koma að þessu, tveir
tímar þar til ég fer í
Herjólf og svo er
flogið út til Eindhov-
en kl. 7 í fyrramálið.
Þetta er frekar skrýtin
upplifun; ég er búinn að vera ætla að
gera þetta í fimm ár, með öllum
þeim áhyggjum og efasemdum sem
svo langur tími hefur í för með sér,
en núna er stundin bara allt í einu að
renna upp. Ég held ég átti mig ekki
fullkomlega á þessu fyrr en ég er
kominn út og kominn í einhverja
smá rútínu.
Síðustu dagar hafa líka verið
undarlegir hjá mér. Ég er búinn að
ganga í gegnum mikinn tilfmninga
skala, frá því að vera áhyggjufullur
og kvíðinn og upp í að vera fullur
tilhlökkunar og bjartsýnn. En er það
ekki bara gangur málsins í þessu?
Það sem olli mestum kvíða hjá mér
voru húsnæðismál en það er víst
búið að redda því til bráðabirgða.
Fáum að leigja hús sem er til sölu og
er mjög nálægt skólanum, en ef það
selst allt í einu þá verðum við líka að
vera fljótir að koma okkur út. Svo
við verðum að leita að einhverju
varanlegra á meðan við erum í þessu
húsi.
Ég er svo alltaf samur við mig
þegar ég þarf að fara pakka niður.
Bíð alltaf með þetta fram á allra
síðustu stundu og er fyrir vikið alltaf
með það aftan í hausnum að ég sé að
gleyma einhverju mikilvægu. En ég
held að pökkunin hafi samt gengið
alveg bærilega í nótt, var að til að
verða hálf fimm að pakka.
Ég frétti það líka í gær að við fáum
tvær vikur í jólafrí og tvær vikur í
sumarfrí. Það er ekki meira en það,
4 vikur í frí á ári, enda hlýtur pró-
gramið að vera stíft þegar maður er
að taka BA gráðu á tveimur árum.
En það vill svo skemmtilega til að
sumarfríið hittir akkúrat á síðustu
vikuna í júlí og fyrstu vikuna í
ágúst, svo maður nær allavega næstu
þjóðhátíð. Sem er gríðarlega gott!
Jæja, nóg af þessu í bili. Ætla fara
drulla mér að leggja lokahönd á
pökkunina og skunda um húsið í leit
að einhverju sem ég gæti mögulega
verið að gleyma. Ég læt svo heyra í
mér frá Amsterdam um leið og ég
get.
Annars sjáumst við bara um jólin.
Bless á meðan!
Fosterinn:
Kom byrjun
skólaársins í
opna skjöldu?
Athyglisvert finnst
mér að nú þegar búið
er að breyta skipulagi
grunnskólana héma í
Eyjum, til hins betra
ef þið spyrjið mig.
Hvemig í ósköðunum
stendur þá á því að
aðkeyrslur við Hamarsskólann em
ekki klárar? Það er eins og þetta hafí
komið yftrvöldum og framkvæmda-
valdi bæjarins í opna skjöldu að
skólinn skyldi byrja í lok ágúst -
svona hlutir eiga að vera klárir -
takk fyrir. Það er ekki eins og þessar
brytingar hafi verið ákveðnar 1.
ágúst 2007.
Sama á náttúrulega við um lyftuna
í Barnaskólanum og þær fram-
kvæmdir sem því tilheyra, hvemig
stendur á því að ekki er hægt að
byrja svona framkvæmdir bara um
leið og skólinn er búinn á vorin, svo
allt verði nú klárt fyrir upphaf næsta
skólaárs? Ég verð bara að segja að
mér frnnst þetta mjög spes, nei
fyrirgeftð, mér finnst þetta bara
mjög dapurt.
Kolbeinn Aron Arnarson, verður
einn þriggja markvarða meist-
araflokks IBV í handboltanum í
vetur. Hann er aðeins sautján ára
gamall og því mikil ábyrgð iögð á
ungar herðar. IBV mætir Fram í
fyrstu umferð á laugardaginn. Af
því tilefni er Kolbeinn Aron
Eyjamaður vikunnar.
Nafn: Kolbeinn Aron Arnarson
Fæðingardagur: 30. nóvember
1989.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Móðir mín er Inga
Kolbeinsdóttir og bróðir Einar
Birgir.
Draumabíllinn: Einhver risastór
jeppi-
Uppáhaldsmatur: Allt, ekki til
vondur matur.
Versti matur: Ekki til.
Uppáhalds vefsíða: Fótbolti.net og
Eyjafréttir.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Flest öll stuðtónlist og þessa
stundina eru The Rapture í miklu
uppáhaldi.
Aðaláhugamál: Allar íþróttir og
mest fótbolti og handbolti.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Hefði ekkert á móti að hitta eitt-
Kolbeinn Aron Arnarson
er Eyjamaður vikunnar.
hvert goð úr íþróttasögunni, t.d.
Eric Cantona.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV og þessir gömlu
refir í félaginu, Sigurður Bragason,
Sindri Haraldsson og Sigurlás
Þorleifsson hefur verið einn af
mínum uppáhalds íþróttamönnum
lengi.
Ertu hjátrúarfullur: Ég var mikið
hjátrúarfullur en það er farið að
eldast af manni. Ég var vanur að
spila í ullarsokkum en mér er alveg
sama hvemig sokkum ég er í núna.
Stundar þú einhverja aðra íþrótt:
Stunda mikið fótbolta á sumrin.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Flest allt
sem kemur manni til að hlæja.
Ertu búinn að kortleggja helstu
skytturnar í deildinni: Já, að
mestu leyti. Ég vinn með vöminni
og vonandi skilar það árangri.
Hverjir verða hættulegastir: Ég
hef aldrei spilað á móti þessum
skyttum áður og það kemur bara í
Ijós.
Hvaða takmark setur þú þér sem
leikmaður: Ég ætla að reyna að
komast í landslið og ná sem lengst.
Það væri gaman að komast út.
Hvar endar IBV í vor: Þetta
verður strembinn vetur en ég býst
alveg við að okkur takist að halda
okkur uppi.
Er Siggi Braga góður fyrirliði:
Hann er bara einn sá besti.
Eitthvað að lokum: Endilega
mætið á völlinn í vetur og hvetjið
okkur áfram. Ekki veitir af.
Matgozðingur vikunnar:
Það vinsælasta í saumaklúbbnum
Takk, elsku Helen mín fyrir þessa
áskorun! Þar sem kjúklingur er
vinsælasta hráefnið í saumó hjá
okkur þá ákvað ég að bjóða upp
á svínakjötsrétt sem er vinsæll á
heimilinu.
Ungverskur svínakjötsréttur:
8 sneiðar svínasnitsel
2 msk. hveiti
salt og pipar
30 gr. smjör
Kjötið skorið til og barið létt og
velt upp úr hveiti sem er kryddað
m. salti og pipar. Brúna kjötið í
smjörinu og raða í eldfast mót.
Sósan:
'á dl saxaður laukur
75 gr söxuð reykt skinka
2-3 msk. tómatmauk + smá sykur
1 paprika (smátt skorin)
150 gr saxaðir sveppir
2 msk. söxuð steinselja
1 'A msk. saxaður graslaukur
2-3 marðir hvítlauksgeirar
1 -2 dl sýrður rjómi
4-5 dl soð
1 msk. paprikukrydd
salt og nýmalaður pipar
smá hveiti
Aðferð: Laukurinn brúnaður í
smjöri, skinku, papriku og svepp-
um bætt í og látið krauma.
Hveitinu stráð yftr, soðinu bætt i og
þeytt vel á meðan. Tómatmauki,
hvítlauk, graslauk, paprikukryddi
og salti og pipar bætt í og soðið í 2
mínútur. Að síðustu er steinselju
og sýrðum rjóma bætt út í og sósan
smökkuð til (Hef stundum sett
lárviðarlauf í). Sósunni hellt yfir
Vilborg Sigurðardóttir
er matgœðingur vikunnar
kjötið og fatinu lokað m. álpappír.
Sett í miðjan ofn og bakað í 20-30
mínútur við 225°C. Borið fram
með kartöflum, salati og
smábrauðum.
Ostakaka með Baileys og
Toblerone
(stór uppskrift)
Botn:
110 gr brætt smjör
1 pakki Homeblest hafrakex (má
líka nota Haust kex)
Ostakrem:
170 gr flórsykur
500 gr rjómaostur
1 stk. stórt Daim
2 stk. lítil Toblerone
5 blöð matarlím
6 cl Baileys
'á lítri rjómi (Þeyttur)
Súkkulaðikrem:
60 gr súkkulaði
1 eggjarauða
2 dl hálfþeyttur rjómi
Aðferð:
Botn: Haífakexi og bræddu smjöri
blandað saman og sett í botn á
formi (ég set sjálf í eldfast mót).
Sett í kæli þar til harðnar.
Ostakrem: Flórsykri og rjómaosti
er hrært saman í hrærivél þar til
þetta nær stofúhita. Daim og
Toblerone brytjað ffekar smátt og
bætt út í ostahræruna. Matarlímið
leyst upp í Baileys og bætt út í og
svo er tjómanum blandað að síð-
ustu varlega saman við. Hellt yfir
kexið og látið stífna í kæli.
Súkkulaðikrem: Súkkulaðið brætt
yftr vatnsbaði, eggjarauðu hrært
saman við og síðast tjómanum.
Kreminu hellt yfir kökuna og hún
síðan skreytt eftir smekk hvers og
eins.
Ég vil að lokum skora á annan
meðlim saumaklúbbsins Hraðar
hendur, Agústu Kjartansdóttur, en
hún er hvað þekktust fyrir það að
„drulla“ einhveiju saman svo úr
verður öndvegis góðgæti!!! Svo
verður myndin ekkert vanda-
mál....ég á heilan helling af mynd-
um sem við getum birt!!
Umhverfisviðurkenningar Umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar og Rotaryklúbbsins voru veitt-
ar á fimmtudag í Kaffi Kró. Um var að ræða þrjár viðurkenningar, snyrtilegustu götuna, snyrtilegasta
fyrirtækið og snyrtilegasta húseignin. Húsið við Hólagötu 35 var valið snyrtilegasta húseignin en þar búa
þau Ingibjörg Ólafsdóttir og Sigurður Þór Ögmundsson. Snyrtilegasta fyrirtækið eða stofnunin var valin
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og snyrtilegasta gatan er Sóleyjargata.
Kirkjur bosjarins:
Landakirkla
Fimmtudagur 13. september
Kl. 10.00. Mömmumorgunn. Kl.
14.30. Helgistund á Sjúkrahúsinu,
dagstofu 2. hæð. Heimsóknargestir
velkomnir.
Kl. 20.00. Æfíng hjá Kór
Landakirkju.
Laugardagur 15. september
Kl. 14.00. Útför Þórönnu
Guðmundsdóttur.
Sunnudagur 16. september
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta með
miklum söng og lofgjörð og sögu.
Samvera 7-8 ára krakka hefst með
bamaguðsþjónustunni en heldur
áfram í fræðslustofunni í Safn-
aðarheimilinu hjá Svanhildi
Gísladóttur um kl. 11.30 - 12.00.
Kaffisopi í Safnaðarsalnum eftir
barnaguðsþjónustu og litastund
fyrir yngstu bömin. Bamafræðarar
og prestar Landakirkju.
Kl. 14.00. Guðsþjónusta.
Fermingarböm lesa úr Ritningunni.
Kór Landakirkju syngur, sr.
Guðmundur Öm Jónsson, þjónar
fyrir altari og prédikar. Kaffisopi og
spjall á eftir í Safnaðarheimilinu í
boði sóknarnefndar.
Mánudagur 17. september
Kl. 19.30. Opinn fundur í 12 spora
verkefninu.
Kl. 20.00. Fundur hjá Kvenfélagi
Landakirkju í Safnaðarsalnum.
Þriðjudagur 18. september
Kl. 14.20 og 15.10. Fræðslutímar
hjá fermingarbömunum.
Kl. 19.30. Sóknarnefndarfundur.
Kl. 20.00. Haustfundur starfs-
manna, leiðtoga í safnaðarstarfi,
sóknamefndar og presta í Safnaðar-
heimilinu. Kynning á safnaðarstarfi
vetrarins.
Miðvikudagur 19. september
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum. Allir hjartanlega velkomnir.
Kl. 13.40 og 14.40. Fermingar-
fræðsla í Fræðslustofunni.
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur. Allir
velkomnir.
Föstudagur
Kl. 20.00 Unglingasamvera.
Laugardagur
Kl. 20.30 Brauðsbrotning.
Sunnudagur
Kl. 13.00 Samkoma.
Komið fagnandi. Allir velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Qrcin vikunnar á
Mcimaslóð:
Framhalds-
skólinn
Framhaldsskólinn í Vestmanna-
eyjum er í stöðugri sókn, meðal
annars er reynt að lokka náms-
menn annars staðar af landinu til
Eyja en tilraunir hafa staðið vfir
með að bjóða námsmönnum af
Suðurlandi til staðarins.
Háskóli Islands og Háskólinn á
Akureyri hafa komið sér upp úti-
búum á Heimaey og er öflugt starf
unnið f fjarnámi, þar sem boðið er
upp á kennaranám, viðskipta-
fræði og margt fleira.
Grunnskólarnir eru tveir, Barna-
skólinn í Vestmannaeyjum og
Hamarsskóli Vestmannaeyja.
Grunnskólarnir voru nýlega sam-
einaðir undir einni yfirstjórn, og
ber nafnið Grunnskóli Vest-
mannaeyja og skólastjóri er
Fanney Asgeirsdóttir.
Tveir leikskólar sinna yngstu
kynslóðinni; Kirkjugerði og Sóli.
Arið 2007 voru Rauðagerði og
Sóli sameinaðir undir nafni Sóla í
nýju glæsilega húsnæði.