Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Page 14
Fféttir / Fimmtudagur 13. september 2007
Argangur 1963 hittist í Eyjum
Um síðustu helgi hittist árgangur
1963 í Eyjum, til að endumýja
kynnin, rifja upp skemmtilegar
minningar og eiga góða stund
saman.
Hefur árgangurinn haft það fyrir
reglu að hittast á fimm ára fresti.
Hópurinn hittist í Alþýðuhúsinu á
föstudagskvöldið þar sem snæddur
var ljúffengur kvöldverður og
skemmtiatriði framleidd af bestu
gerð. A laugardeginum buðu hjónin
Oskar Freyr Brynjarsson og Lóa
Birgisdóttir öllum hópnum heim til
sín og þar vom mættar Ólöf Mar-
grét og Samba, gömlu kennarar
árgangsins og fluttu þeim
minningabrot frá skólaárunum. Um
kvöldið var svo grillað í Skvísu-
sundi, nánar tiltekið Pipphúsinu.
Ef skoðuð er heimasíða árgangs
1963 verður ekki annað séð en fólk
hafi skemmt sér hið besta. Þar má
t.d. lesa þessar kveðjur:
„Takk fyrir frábæra helgi, við
erum að verða frekar sjóuð í þessu
þannig að þetta klikkar aldrci."
„Svea fær bara bjartsýnisverðlaunin
fyrir tillöguna um að hafa þriggja
daga árgangsmót næst.“
„Þakka öllum fyrir að vera svona
svakalega skemmtileg.“
„Þetta var einstök helgi, ég held ég
hafi aldrei nokkumtímann skemmt
mér svona vel.“
„Lóa og Óskar eiga heiður skilinn
fyrir að nenna að taka á móti okkur
öllum heim og það var sérstaklega
gaman að fá þær Ólöfu og Sömbu.
Enn og aftur, Takk.“
Ættarmót niðja
Guðfinnu og Georgs
Fyrstu helgina í september hittust niðjar Guðfinnu Sigríðar Kristjánsdóttur og
Georgs Lárusar Gíslasonar frá Stakkagerði á ættarmóti í Eyjum. Synir þeirra eru
Theodór Sigurjón Georgsson (Teddi Georgs) f. 2. febrúar 1923 og Kristján Georgsson
(Kiddi í Klöpp) f. 13. nóvemher 1928, hann er látinn fyrir mörgum árum.
Afkomendur Tedda eru nú orðnir 23 talsins og afkomendur Kidda eru 45. Georg
Gíslaon rak til fjölda ára verslunina GEORG, þar sem nú er Eyjavík. Þá var hann
einn af stofnendum Iþróttafélagsins Þórs og formaður þess til fjölda ára.
Frá vinstri: Þórður Theodórsson, Georg Theodórsson, Theodór S. Georgsson, Katrín
Theodórsdóttir, Guðfinna Theodórsdóttir og Ásta Þórðardóttir.
Frá vinstri: Björn Kristjánsson, Guðfinna S. Kristjánsdóttir, Margrét G.
Kristjánsdóttir, Mjöll Kristjánsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir og Óðinn Kristjánsson.
Outlet
markaður
í Höllinnl
Opið: Fimmtudag kl. 13-18
Föstudag kl. 13-18
laugardag kl. 11-14