Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Page 15
Frcttif / Fimmtudagur 13. september 2007
15
N1 deild karla í handbolta. Sigurður Bragason fyrirliði segir takmarkið að halda sætinu
Vill sjá meiri stemmningu
LIÐ IBV sem mætir Fram í sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Sigurður Bragason leiðir ÍBV sem,
mætir Fram í sínum fyrsta leik í
úrvalsdeildinni á heimavelli á laug-
ardaginn. Eyjamenn, sem komu upp
úr fyrstu deild síðasta vor, eiga erfitt
verk fyrir höndum, að halda sæti
sínu í úrvalsdeildinni. Sigurður, sem
á langan feril að baki í hand-
boltanum, er þó bjartsýnn á tímabil-
ið og segir Eyjamenn eiga alla
möguleika á að halda fengnum hlut
í deildinni.
Sigurður er 30 vetra en segir aldur
gersamlega afstætt hugtak. „Eg
myndi segja að ég væri svona um 18
ára í kollinum. Þetta verður 25. vet-
urinn minn í handbolta. Já, þetta er
viss bilun en þetta er svo hrikalega
skemmtilegt að ég bara get ekki
hætt,“ sagði Sigurður í spjalli við
Fréttir um veturinn framundan.
„Við misstum nokkra leikmenn frá
því í fyrra. Erlingur Rikka hætti sem
og Svavar Vignis en þetta eru menn
sem hafa spilað einna flesta leiki
fyrir ÍBV í sögunni, þannig að það
var stór biti að missa þá. Þá fór Jói
Guðmunds markmaður í borgina og
við misstum leikmann sem við
höfðum frá Litháen, hann var mjög
góður. Við fengum svo þrjá
útlendinga til okkar núna fyrir þetta
tímabil þannig að þetta ætti því að
vera nokkuð svipað lið og í fyrra.“
Gerir ekki upp á milli
Ekki vill hann gera upp á milli þegar
hann er spurður að því hvort Eyja-
strákar fái næg tækifæri með liðinu.
„Þeir sem eiga skilið að fá tækifæri
fá vissulega tækifæri. Mér finnst
þessi rök, að það sé ömurlegt að það
sé verið að kaupa útlendinga sem
eru teknir fram yfir okkar stráka,
alveg út í hött. Þeir sem eru duglegir
að æfa og eru að bæta sig eru klár-
lega inni í myndinni. Handboltinn í
dag er líka breyttur frá fyrri árum.
Nú er mjög mikilvægt að hafa 12 til
14 leikmenn á skýrslu sem allir geta
spilað. Það verður þannig hjá okkur
í vetur, maður sér að það eru allir að
leggja sig 100% í leikina þannig að
vissulega mun álagið vera á okkur
heimamönnunum sem og þessum
þremur útlendingum.
Það er líka gaman að sjá að við
eigum núna tvo mjög efnilega mark-
menn sem á að treysta á í vetur.
Eg verð nú að viðurkenna að í júlí
leyst mér bara alls ekkert á þá hug-
mynd enda báðir á 18. ári og hafa
enga reynslu. Þeir eru hins vegar
búnir að vera mjög duglegir og
samviskusamir og hafa sannað fyrir
mér að minnsta kosti, að við þurf-
um ekki að hafa áhyggjur af þeim.
Svo er Sigmar Þröstur auðvitað
búinn að taka þá aðeins í gegn sem
er frábært. Enda kemst engin með
tæmar þar sem Simmi hafði hælana
í þjálfun markvarða á íslandi. Hann
á sitt í Birki Ivari, Hlyn Jó og Basta
sem allir hafa spilað landsleiki fyrir
Island."
Finnst þér þjálfarínn vera á réttri
leið? „Klárlega, ég er mjög sáttur
við störf hans. Hann leggur sig 130
prósent í þetta og það skilar sér, það
er öruggt.“
Að halda sér uppi
Takmarkið í vetur? „Að halda sér
uppi, við eigum töluvert í land að ná
þessum efstu liðum. Það yrði
frábært að ná að halda sér í efstu
deild, enda 25% af liðunum sem
fellur."
Ertu ánœgður með fyrirkomulagið á
deildinni? „Fyrirkomulagið er eins
og í fyrra. Það er nú bara ákveðin
frétt að fyrirkomulaginu sé ekki
breytt í handboltanum á Islandi. Já,
já, þetta er bara nokkuð gott, annars
sakna ég úrslitakeppninnar. Það er
gott að það er verið að reyna að
fjölga liðum í deildinni en ég veit
ekki alveg hvort þetta sé rétta leiðin.
Þá held ég líka að þetta sé nokkuð
einhæft þ.e.a.s. að við séum að spila
28 leiki en aðeins við 7 lið.“
Hvað með umgjörðina, er hún nægi-
lega öflug? „Við sköpum hana nú
sjálf. Umgjörð er svolítið víðtækt
orð og margir sem eiga hlut að máli.
Það erum við leikmenn, stjórn og
svo áhorfendur. Vissulega sakna ég
stemningarinnar eins og hún var hér
á árum áður. Eg náði restinni af því
þegar það voru alltaf um 400 manns
á leikjum hér og stemmarinn
svakalegur.
Við erum bara búnir að missa þessa
stemningu og fólk fer ekki á leiki,
þetta sést einnig hjá fótboltanum.
Annars skil ég þetta ekki, ég sé bara
ekki hvers vegna fólk fer ekki á
svona viðburði eins og kappleikir
eru. Það eru allir svo rosalega
uppteknir þessa dagana en ég held
að þetta sé frekar leti. Það að fara á
íþróttaleik og taka þátt með hrópum
og köllum og láta mennina í svörtu
búningunum heyra það, er öllum
hollt. Þetta er góð útrás.
Ég veit hreinlega ekki hvað á að
gera til þess að rífa þetta upp aftur,
ég er mikið búinn að velta því fyrir
mér, því ég held að þeir sem mættu
á leiki á sfnum tfma hljóti að sakna
þessarar stemningar hún var alveg
frábær. Gaman að standa saman -
Vestmannaeyjar gegn KR, Val eða
eitthvað þess háttar.“
Hvernig farið þið í leik í vetur, flug
eða Herjólfur? „Það er nú oftast
Bakki og svo keyrt í bæinn og sömu
leið til baka. Það er mjög fínt.“
A ekki að taka Fram í bakaríið á
laugardaginn ? „Það er best að spara
stóru orðin. Fram varð Islands-
meistari 2005 og var í baráttunni í
fyrra líka. En það þýðir ekkert að
vera með neina minnimáttarkennd,
hún hjálpar ekkert. Við berjumst og
sjáum hverju það skilar... meira
getum við ekki gert.“
Golf- Fámennt á síðasta stigamótinu sem fram fór í Eyjum
Stefán og Nína Björk efst
Verðlaunahafar ásamt Helga Bragasyni formanni GV sem tilkynnti við
þetta tækifæri að Islandsmótið verði í Eyjum á næsta ári en þá verður
Golfklúbburinn 70 ára.
ÍBV á ennþá
veika von
ÍBV er í íjórða sæti 1. deildarinn-
ar eftir góðan útisigur á Njarðvík í
síðustu viku.
Ian Jeffs skoraði fyrsta markið á
55. mínútu. Ingi Rafn kom IBV í
0:3 og Andri Olafsson gulltryggði
svo sigur Eyjmanna með marki á
78. mfnútu.
ÍBV er með 35 stig þegar þtjár
umferðir eru eftir og enn er von
um að komast upp í úrvalsdeildina
þó ekki sé hún mikil. Fjölnir er
með 39 stig, einn leik til góða.
IBV og Fjölnir mætast í síðustu
umferðinni. Til þess að þá verði
um hreinan úrslitaleik að ræða
verða Eyjamenn að vinna alla sína
leiki og Fjölnir að tapa minnst
fjórum stigum.
Þrjú lið komast upp að þessu
sinni því fjölgað verður í úrvals-
deild úr tíu liðum í tólf á næsta
ári.
IBV mætir Grindavík á
heimavelli á laugardaginn og tak-
ist Eyjamönnum að sigra í þeim
leik eygja þeir enn möguleika.
Sjötta og síðasta stigamótið í
Kaupþingsmótaröð Golfsambands
Islands fór fram í Vestmannaeyjum
um síðustu helgi. Leikið var á laug-
ardag og sunnudag, alls 36 holur.
Þetta var langfámennasta stigamótið
í sumar, aðeins 36 þátttakendur sem
mættu til leiks. Níu í kvennaflokki
og 27 í karlaflokki og þriðjungurinn
í karlaflokknum kylfmgar úr GV.
Reyndar voru a.m.k. þrír þeirra sem
ekki hefðu átt rétt til að keppa á
mótinu að öllu óbreyttu, þar sem
forgjöf þeirra er í hærra lagi. En þar
sem svo fámennt var í mótinu, fengu
þeir að spreyta sig.
A stigamótunum er keppt um stig
til landsliðs og var raunin sú að
nokkuð ljóst var orðið hverjir
skipuðu efstu sætin þannig að þessi
slaka þátttaka kemur ekki á óvart.
Enda voru nokkrir af þeim sterkustu
í karlaflokknum ekki með, voru að
keppa á úrtökumótum í Evrópu og
búnir að tryggja sig í fyrri mótum.
Undanfarin ár hefur yfírleitt eitt af
stigamótunum farið fram í Eyjum ár
hvert. Það er á valdi stjómar GSI
hverju sinni hvar á landinu og
hvenær er leikið. Forsvarsmenn GV
hafa óskað eftir því að fá stigamót
snemma árs, sérstaklega með tilliti
til þess að völlurinn hér er kominn í
mjög gott ástand strax í maí, meðan
aðrir vellir eru vart leikhæfir á þeim
tíma.
T.d. vom fyrstu tvö mótin á þessu
ári haldin á völlum sem vart voru
boðlegir fyrir slík mót, meðan völl-
urinn í Eyjum var í sínu besta formi.
En ákvörðun GSI var að halda síð-
asta mótið í Eyjum þó svo að vitað
væri að það myndi draga úr aðsókn
að halda síðasta mótið hér.
Veðrið var ekki eins og það best
getur verið, reyndar í lagi á laugar-
dag en á sunnudag var hvöss
norðvestanátt sem gerði kylfingum
erfitt fyrir.
I karlaflokki urðu úrslit þessi:
l.Stefán Stefánsson GR 142 h
2. Haraldur Heimisson GR I44h
3. Sigurþór Jónsson GK 146 h
I kvennaflokki urðu þessar efstar:
1. Nína Björk Geirsd. GKJ 151 h
2. Helena Ámadóttir GR 155 h
3. Þórdís Geirsdóttir GK 159 h
Af Eyjamönnum náði Rúnar Þór
Karlsson bestum árangri, varð í 6.
sæti á 150 höggum og Örlygur
Helgi Grímsson hafnaði í 10. sæti á
153 höggum.
Eftir þetta mót lá fyrir hverjir yrðu
stigameistarar GSI að alloknum
mótunum sex. Efstur í karlaflokki
var Haraldur H. Heimisson GR með
318,5 stig, aðeins tveimur stigum
meira en næsti maður. I kvenna-
flokki sigraði Nína Björk Geirs-
dóttir GKJ með miklum yfirburðum,
788,7 stigum, næstum því tvöfalt
meira en næsti keppandi hafði.
Af Eyjamönnum náði Örlygur
Helgi Grímsson bestum árangri í
heildarkeppninni, varð í 25. sæti í
karlaflokki.
íþróttir
Gunnar Heiðar
stóð sig vel
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson,
knattspyrnumaður
sem nú leikur með
norska úrvals-
deildarliðinu
Válerenga var einn
í framlínu íslenska landsliðsins
gegn Spánverjum. Leiknum lauk
með jaintefli, 1:1 og náðu
Spánverjar að jafna á lokamínút-
unum. Gunnar stóð sig frábær-
lega í leiknum og átti stóran þátl
í marki Islendinga. Náði hann að
gefa á Jóhannes Karl eftir að hafa
spilað vörn gestanna upp úr
skónum. Jóhannes náði að gefa
fyrir og beint á kollinn á Emil
Hallfreðsson sem skilaði
boltanum í netið með glæsilegum
skalla.
ÍBV spáð falli í
handboltanum
Á laugardag leikur ÍBV í hand-
bolta fyrsta leik sinn í úrvalsdeild
eða Nl-deildinni eins og Islands-
mótið heitir í ár. Andstæðingar
ÍBV í þessum fyrsta leik, sem
hefst klukkan 17.00, eru Fram-
arar.
Á þriðjudag var kunngerð hin
árlega spá forráðamanna liðanna í
efstu deild og þar er ÍBV spáð
neðsta sæti Nl-deildarinnar og
þar með falli í I. deild. Spána má
sjá hér að neðan:
1. Stjarnan, 2. Valur, 3.-4. HK og
Haukar, 5. Fram, 6. Akureyri,
7. Afturelding og 8. ÍBV.
Hermann
kominn með
75 landsleiki
Hermann Hreiðarsson, sem var
fyrirliði íslands í leiknum gegn
Spánverjum, lék sinn 72. lands-
leik og komst með því í 5. til 6.
sætið yfir leikjahæstu landsliðs-
menn frá upphafi, að hlið Ólafs
Þórðarsonar. Hermann á
möguleika á að komast í þriðja
sætið áður en þetta ár er úti því
Birkir Kristinsson, sem er þriðji,
er með 74 leiki og Arnór
Guðjohnsen er fjórði með 73
leiki.
Bæði Gunnar Heiðar og Her-
mann voru í leikmannahópnum
gegn Norður-Irum í gærkvöldi.
Þá bætist í leikjasafnið hjá
báðum.
Öllu lengra er í Rúnar Kristins-
son, með 104 leiki, og Guðna
Bergsson, sem er annar leikja-
hæstur með 80 leiki.
Morgunblaðið greindi frá.
Framundan
Laugardagur 15. september
Kl. 14.00 IBV-Grindavíkí 1.
deildinni í fótbolta.
Kl. 17.00 fyrsti leikur ÍBV í
úrvalsdeildinni í handbolta þar
sem strákarnir mæta Fram.