Fréttir - Eyjafréttir - 31.01.2008, Qupperneq 20
f) Sun
investments S.L
FASTEIGNASALA Á SPÁNI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757
lindarosg@hotmail.com
www.suninvestmentsl.com
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
KLUKKUR Landakirkju hringdu til helgistundar eftir dagskrá í HöIIinni á miðvikudagskvöld. Sr. Kristján
Björnsson og sr. Guðmundur Örn Jónsson voru báðir við athöfnina þar sem þakkað var fyrir björgun og
varðveislu í gosinu á Heimaey 1973. Tónlist setti skemmtilegan svip á samkomuna en um tvöhundruð
manns komu til að eiga stund í kirkjunni þetta kvöld.
Mér fannst allur þessi
dagur standa upp úr
-segir Páll Magnússon Eyjamaður og útvarpsstjóri um
heimsókn RÚV til Eyja á Þakkargjörðina 23. janúar
PÁLL las fréttirnar í Kastljóssettinu sem var allt var tlutt til Eyja.
„Það eru einhverjar vikur frá því að
hugmyndin kom upp,“ sagði Páll
Magnússon, útvarpsstjóri, þegar
hann var spurður hvort það væri
ekki mikið fyrirtæki og krefðist
mikils undirbúnings að senda út
Fréttir og Kastljós frá Vestmanna-
eyjum eins og gert var á miðviku-
daginn í síðustu viku þegar þess var
minnst að 35 ár eru frá því að gos
hófst á Heimaey.
„Kristín Jóhannsdóttir sendi okkur
fyrirspurn um hvort við ætluðum að
gera eitthvað af þessu tilefni og
þegar við ræddum þetta var ákveðið
að fara út í Eyjar og senda út beint
þaðan. Það munaði litlu að þetta
dytti upp fyrir þegar báðar ferðir
Herjólfs féllu niður á þriðjudeg-
inum en bjargaðist þegar ákveðið
var að flýta ferðinni á miðvikudag.
Það koma margir að svona útsend-
ingu og þetta er auðvitað talsvert
mál.“
Páll tók að sér að kynna dagskrá
þakkargjörðar og að henni lokinni
hófst dagskrá Ríkissjónvarpsins þar
sem hann var í hlutverki frétta-
þularins. Það hvíldi því heilmikið á
Páli í tengslum við þakkargjörðina.
En hvað fannst honum standa upp
úr?
„Mér fannst allur þessi dagur
standa upp úr. Eg skoðaði stóra
ljósmyndasýningu sem Helga
Jónsdóttir stóð fyrir uppi í Flugstöð
og það var skemmtilegt að sjá
gömlu myndirnar frá því fyrir gos.
Það var líka gaman að heimsækja
nemendur í Hamarsskóla og fyrir
mig var skemmtilegast að hitta allt
þetta góða og skemmtilega fólk
sem ég ólst upp með í Eyjum.“
Páll segir að auðvitað hafi verið
óvenjulegt að vera með og senda út
fréttir og Kastljós fyrir fullu húsi.
Ég hef aldrei upplifað þetta áður,“
segir hann og þegar hann er
spurður hvort það hafi ekki verið
stressandi að hafa allt þetta fólk í
salnum segir hann það ekki vera.
„Það er þó alltaf svolítil spenna í
kringum þetta, sérstaklega þegar
menn eru í nýju umhverfi. Ég er
samt frekar rólegur í svona útsend-
ingum. Ég er búinn að vera lengi í
þessum bransa og þetta er bara
skemmtilegt:
Og þetta gekk allt upp?
„Já, þetta gekk allt upp, nema í
einu innskotinu frá Skansinum. Það
vantaði hljóðið en það var lagað og
skilaði sér að lokum til áhorfenda.
Þetta er auðvitað svolítið flókið í
framkvæmd en gekk að mestu leyti
upp,“ sagði Páll og tók fram að
viðbrögð við útsendingunni hafi
verið góð. „Það er í raun óvenjulegt
að fá svona mikil viðbrögð frá ein-
staklingum og ekki bara frá Vest-
mannaeyingum heldpr fólki annars
staðar af landinu. Ég hugsa að
þessi reynsla verði hvati til þess að
gera þetta oftar í framtíðinni."
Þórhallur vill styrkja
tengslin
„ Þetta var fullkomlega þess virði,“
sagði Þórhallur Gunnarsson,
dagskrárstjóri Sjónvarpsins og rit-
stjóri Kastljóss þegar hann var
spurður út í útsendinguna. „Það er
auðvitað mikið mál að vinna svona
þátt, yfir 30 manns koma að þessu
auk þess sem það þarf að vinna
þáttinn efnislega. Við þurfum að
fara oftar út á land þar sem við
erum Ríkissjónvarp og við viljum
efla tengslin við fólkið á
landsbyggðinni.
Við viljum ekki missa tengslin við
landsbyggðina og bein útsending,
eins og við stóðum fyrir í Eyjum,
er einn liður í að efla þau.
Nánar á bls. 9.
VIKUTILBOÐ
24. - 30. janúar
ALLT FYRIR SPRENGIDAGINN!
Búrf. nautahakk
verð nú kr/ 399,-
verð óður kr 525,-
SS Hakkbollur í súrsætri
veró nú kr 359,-
verð áður kr 451,-
SS Reykt folaldakjöt
verð nú kr/kg 628,-
verð áður kr/kg 731,-
k \J íslenskar
ssmem guirætur
SS Saltkjit
blandað eða valið
Búrf.saltkjöt
Búrf.bacon
Jack Rabbitt
gular baunir
Rófur, Púrra
Gulrætur..