Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 14.02.2008, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 14.02.2008, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 14. febrúar 2008 13 Afkoma Vinnslustöðvarinnar hf. á árinu 2007: Hagnaður ársins 636 milljónir -Jókst um 429 milljónir króna frá fyrra ári þegar hann var 207 milljónir Hver er drengurinn í miðjunni? SAMA skipið, Henry P. Lading, kemur með nýju vatnsleiðsluna í sumar eins og árin 1968 og 1971. Að verkinu koma nýr Magni og nýr Lóðs en þeir gömlu sjást hér á mynd Sigurgeirs Jónssonar Ijósmyndara frá árinu 1968. En hverjir eru eru drengirnir. Eftir því sem næst verður komist eru Magnús Rúnar Jónsson og Hermann Jónsson á sinn hvorum enda, en hver er í miðjunni? Stjóm Vinnslustöðvarinnar hf. sam- þykkti á fundi sínum uppgjör félagsins fyrir síðastliðið rekstrarár. Þar kom meðal annars fram að 636 milljóna króna hagnaður var á rekstrarárinu. Jókst hann um 429 milljónir króna frá fyrra ári þegar hann var 207 milljónir króna. Heildartekjur félagsins vom 5.618 milljónir króna og drógust saman um 175 milljónir króna frá fyrra ári. Tekjur fiskvinnslu jukust lítillega eða um 2% og tekjur útgerðar jukust einnig lítillega eða um 4%. Rekstrargjöld félagsins jukust um tæp 9%. Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 1.210 milljónum króna eða 21,5% af tekjum og dróst saman um 535 milljónir króna frá fyrra ári en þá var framlegðarhlutfall 30,1%. Veltufé frá rekstri nam 1.031 milljón króna á árinu og var 18,4% af rekstrartekjum. Veltufé frá rekstri dróst saman um 32% frá fyrra ári þegar það nam 1.512 milljónum króna. Afskriftir jukust um 350 milljónir króna frá fyrra ári og námu 694 milljónum króna. Aukningin felst fyrst og fremst í aukafyrningum vegna niðurrifs á hluta af húsnæði félagsins og virðisrýmun aflaheim- ilda sem gerð er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Niðurstaða fjármagnsliða var jákvæð um 216 milljónir króna. Gengishagnaður nam 423 millj- ónum króna en á síðasta rekstrarári var hins vegar 796 milljóna króna gengistap. Tekjur Hugins ehf., hlutdeildar- félags Vinnslustöðvarinnar, voru 836 milljónir króna. Framlegð fé- lagsins á tímabilinu var 189 millj- ónir króna og jókst um 90 milljónir króna frá fyrra ári. Hagnaður félagsins eftir skatta nam 105 millj- ónum króna, þar af nam gengis- hagnaður félagsins 77 milljónum króna. Hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í hagnaði Hugins ehf. nam tæpri 51 milljón króna á rekstrarárinu. Tekjur About Fish ehf., hlutdeildar- félags Vinnslustöðvarinnar, voru 1.786 milljónir króna og framlegð félagsins á tímabilinu var neikvæð um tæpar 11 milljónir króna. Hagnaður eftir skatta nam rúmum 9 milljónum króna á árinu og var hlut- deild Vinnslustöðvarinnar í hagnaði tæpar 5 milljónir króna. 444 milljón króna tap á fjórða ársfjórðungi A fjórða ársfjórðungi, þ.e. frá 1. október til 31. desember 2007, voru tekjur 1.061 milljón króna og rekstr- argjöld 1.038 milljónir króna. Framlegð tímabilsins var því 23 milljónir króna en 444 milljóna króna tap varð af rekstri fjórð- ungsins, sem skýrist að mestu leyti af gengistapi fjórðungsins og aukafyrningum húseigna vegna niðurrifs. Hagnaður var á rekstri félagsins á sama tímabili í fyrra að fjárhæð 144 milljónir króna. Hlut- deild félagsins í tapi hlutdeildar- félagsins Hugins ehf. nam 21 milljón króna á fjórðungnum. Rekstur Vinnslustöðvarinnar gekk ekki nógu vel á haustmánuðum, einkum var það ftskvinnsla félags- ins sem gekk illa. Afurðaverð síldar var fremur lágt og verð fiskimjöls og karfaafurða lækkaði á tímabilinu. Þá var veðurfar einkar erfítt til sjósóknar. Á haustmánuðum var haftn bygg- ing tæplega 6.000 tonna frystiklefa og lýkur þeim framkvæmdum innan tíðar. Á haustmánuðum var hafin bygging tæplega 6.000 tonna frystiklefa á Eiðinu og lýkur þeim framkvæmdum innan tíðar. Efnahagur í árslok Eignir félagsins lækkuðu um 348 milljónir króna frá byrjun árs til ársloka. Heildarskuldir og skuld- bindingar Vinnslustöðvarinnar hf. lækkuðu um 533 milljónir króna frá upphafi árs til ársloka og eru 6.229 milljónir króna. Nettóskuldir eru 4.055 milljónir króna en þær voru 4.558 milljónir króna í lok síðasta árs og lækkuðu því um 503 milljónir króna. Eigið fé hækkaði frá áramótum um 184 milljónir króna. Breytingin skýrist annars vegar af hækkun vegna hagnaðar ársins að upphæð tæplega 636 milljónir króna og hins vegar af lækkun vegna útgreiðslu arðs að upphæð 451 milljón króna. Rekstrarhorfur á yfír- standandi ári Rekstrarhorfur á yfírstandandi rekstrarári eru óvissar eins og nokkur undanfarin ár. Upphafskvóti í loðnu er lítill og loðnuleit hefur gengið illa. Þá voru aflaheimildir í þorski skomar umtalsvert niður á yfirstandandi fiskveiðiári. Þrátt fyrir verðlækkun einstakra mikilvægra afurðaflokka Vinnslustöðvarinnar er fiskverð á erlendum mörkuðum enn hátt þegar litið er til sögunnar. Þá hefur lækkandi gengi krónunnar já- kvæð áhrif á rekstrarhorfur fé- lagsins. Afskráning úr OMX Nordic Exchange Stjóm og hluthafafundur Vinnslu- stöðvarinnar hf. hafa óskað eftir því við OMX Nordic Exchange að afskrá félagið úr kauphöll. Stjóm félagsins hefur borist svar við beiðninni og verður Vinnslustöðin hf. ekki afskráð úr kauphöll fyrr en 14. nóvember 2008. Ákveðið hefur verið að halda aðal- fund félagsins föstudaginn 2. maí 2008 í Akógeshúsinu og hefst fund- urinn kl. 16:00. Stjórn félagsins gerir tillögu um að arðgreiðsla nemi 30%.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.