Fréttir - Eyjafréttir - 27.02.2008, Blaðsíða 16
fsun 'V investmenCs s.L plús 141 ™ ÍM
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757 lindarosg@hotmail.com www.suninvestmentsl.com A'föjlrjfjJJj' jtíJirjÍLxijSixDjJ J-döS)
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
AFHENTU eina milljón. Hafdís Kristjánsdóttir, Herdís Tegeder, Ester Ólafsdóttir og Anna Dóra
Jóhannsdóttir.
Krabbavörn Vestmannaeyjum:
Styrkir sjúklinga sem þurfa
að fara til Reykjavíkur
-Hafdís Kristjánsdóttir og Hressó stóðu fyrir áheitahlaupi og göngu á
gamlársdag og afhentu félaginu nýlega tæpa milljón króna
Krabbavörn Vestmannaeyjum var
stofnað 1949 og endurvakið 1990.
Ester Ólafsdóttir, formaður félags-
ins segir Krabbavörn vera sjálfstætt
starfandi félag en í nánu samstarfi
við Krabbameinsfélag íslands.
Krabbameinsfélagið stendur fyrir
pennasölu á hverju ári og Krabba-
vörn fær 75% af hverjum seldum
penna í Eyjum. Aðrar tekjur félags-
ins eru af minningarkortum og
styrkjum og allt starf Krabbavamar
er unnið í sjálfboðavinnu.
„Krabbavöm styrkir sjúklinga sem
þurfa að fara tii Reykjavíkur og við
greiðum leigu á fbúðum sem þeir
gista í, á meðan skoðun og meðferð
fer fram. Trausti heitinn Marinós-
son var hvatamaður að því að
íbúðir yrðu keyptar í Reykjavík þar
sem sjúklingar utan af landi gætu
dvalið þegar þeir leituðu sér
lækninga. Krabbameinsfélag Is-
lands sér um þessar íbúðir og við
greiðum leigu fyrir okkar fólk.“
Ester segir aðstæður hjá fólki oft
vera mjög erfiðar og vill hvetja þá
sem þurfa á aðstoð að halda að hafa
samband. Sumir vilja ekki þiggja
styrki en við reynum að aðstoða
eftir þörfum. Eg get tekið dæmi af
konu sem hét á okkur, tók alltaf við
styrk þegar hún fór til Reykjavíkur
en borgaði til baka þegar hún var
orðin heil. Félagsmenn eru mjög
þakklátir fyrir stuðninginn og sýna
félaginu mikla tryggð. Við styrkjum
líka stundum fjölskyldur en eins og
við vitum þá hvílir mikið á að-
standendum sjúklinga við þessar
aðstæður.“
Ester segist eiga þann draum að
koma upp félagsaðstöðu í Eyjum
fyrir sjúklinga og aðstandendur
þeirra. „Fólk leitar til okkar með
ráðgjöf og til okkar kemur fólk og
ræðir sín mál. Mig dreymir um að
hafa stað til að hittast á, a.m.k. einu
sinni í viku. Nú hefur til dæmis
verið sett upp frábær aðstaða í
Skógarhlíðinni í Reykjavík og þar
hjálpa sálfræðingar fólki því álag
við þessar aðstæður er oft mjög
mikið. Ég held að sérstök aðstaða
fyrir okkur gæti haft mikla þýðingu
fyrir sjúklinga og fjölskyldur
þeirra. Þó ekki væri nema til að
geta farið og hitt einhvern sem er í
svipaðri stöðu og er að takast á við
svipuð mál.“
^ Drífandi stéttarfélag:
Ánægja með nýja samninga
-Samþykktir með með 88% atkvæða
Félagsmenn Drífanda stéttarfélags
samþykktu nýgerðan aðalkjara-
samning með 88% atkvæða sl.
fimmtudag og föstudag. I fyrstu stóð
til að kjósa aðeins á fimmtudegi en
þar sem hluti félagsmanna var á
loðnuvöktum var kjörfundur fram-
lengdur fram á föstudag þannig að
allir gátu kosið sem vildu.
Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda,
sagðist aldrei hafa orðið var við eins
mikla ánægju með kjarasamning
eins og núna. „Guðný Óskarsdóttir,
varaformaður félagsins, hefur sömu
sögu að segja og virðist vera almenn
ánægja með samninginn meðal
félagsmanna. Kona ein sem hefur
unnið lengi í fiski sagði við mig að
það væru margir kjarasamningar
síðan hana hafi langað til að mæta
og merkja við já í atkvæðagreiðslu."
Amar segir félagsmenn fyrst og
fremst ánægða með launahækkanir
sem verða á samningstímanum.
„Upphafshækkunin er 18.000 krón-
ur eða um 14% en í samningunum
2004 var samið um tæplega 14%
hækkun á öllum samningstímanum.
Til viðbótar fær fólkið núna 13.500
króna hækkun og svo 6.500 krónur
síðar á samningstímanum. Svo má
ekki gleyma því að sértaxti sem
hefur gilt í fiskvinnslu í Vest-
mannaeyjum síðan 1988 fékkst í
fyrsta skipti staðfestur skriflega í
þessum samningi. Fólk kvaðst líka
ánægt með aukinn veikindarétt
vegna bama og aukinn orlofsrétt en
félagsmenn öðlast tvo daga til
viðbótar í veikindarétt barna og
einnig tvo í orlofsrétt,“ sagði Amar.
Diskurinn loksins kominn
Sólódiskur Guðlaugar Drafnar Ólafsdóttur, söngkonu, kemur út
næstu daga og útgáfutónleikar verða 6. mars. Diskurinn átti að koma
út fyrir síðustu jól en allt upplagið kom gallað og þar af leiðandi var
útgáfunni frestað.
Stórsveit Suðurlands verður með tónleika í Vestmannaeyjum 28.
mars og þar munu þær Guðlaug Dröfn og Kristjana Stefánsdóttur
syngja með sveitinni. Guðlaug syngur nokkur lög af diskinum góða
og kynnir hann fyrir Eyjamönnum.
VIKUTILBOÐ
28. feb. - 5. mars
Finish uppþv.duft 1 kg
verð nú kr 299/"
verð óður kr 399,-
Prince kex
verð nú kr 179,-
verá éður kr 239,-
Egils Kristall 11
veri nú kr 99,-
verð áður kr 175,-
Búrf. nautahakk
verð nú kr/kg 899/"
verð áður kr/kg 1143,-
Hvítlauksbrauð sneiðar
verð nú kr 189/-
verð áður kr 238,-