Fréttir - Eyjafréttir - 28.08.2008, Qupperneq 16
/ Sun
f-u-,, investments S.L
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757
Mndarosg@hotmail.com
www.suninvestmentsl.com
plús IM is ™ ÍMSÍ EyjafréttiMs - fréttir milli Frétta
ú> -JcB'J -”J "J J -tö'J -'J -ifí-D
ÍSLANDSMEISTARINN. Hallgrímur Júlíusson náði að verja titil sinn í íslandsmótinu í höggleik í flokki
13-14 ára um helgina. Hér er hann með glæsileg sigurverðlaun í mótslok.
s
Islandsmót ungmenna í höggleik:
Hallgrímur varði titilinn
- íslandsmeistari í höggleik, holukeppni og tilvonandi Stigamótsmeistari
Hallgrímur Júlíusson varði um helg-
ina Islandsmeistaratitilinn í högg-
leik í golfi þegar hann sigraði í
flokki 13-14 ára. Hallgrímur, sem
er 14 ára, sigraði einnig í sama
flokki í fyrra, þá á yngra ári.
Eyjapeyinn knái vann með sex
högga mun á kylfingana tvo sem
enduðu í öðru sæti, sannarlega
glæsilegur árangurinn hjá
Hallgrími.
Tvöfaldur íslandsmeistari
Spilaðir voru þrír hringir en Hall-
grímur lék fyrsta hringinn á 81
höggi, næsta á 76 og þriðja og
síðasta hringinn á 81 höggi og var
samtals á 25 yfir pari vallarins.
Auk þess að næla sér í íslands-
meistaratitilinn í höggleik, þá er
Hallgrímur einnig íslandsmeistari í
holukeppni og eins og staðan er
núna, getur ekkert komið í veg fyrir
að hann fagni sigri í Stigakejipn-
inni, sem er nokkurs konar Islands-
mót. I Stigakeppninni safna kylf-
ingar stigum á mótum yfir sumarið
en eitt mót er eftir og er Hallgrímur
langefstur og mun án efa fagna sigri
þar. Þar með vinnur hann þrjú
stærstu mót sumarsins.
Sveinn Sigurðsson úr GV keppti
einnig á mótinu um helgina en í
flokki 15-16 ára. Sveinn náði
prýðisgóðum árangri, endaði í ell-
efta sæti en Sveinn lék hringina þrjá
á 33 höggum yfir pari vallarins (79-
86-81).
Hugarfarið skiplir miklu
Hallgrímur var að vonum hinn
ánægðasti þegar blaðamaður Frétta
hitti á hann en Hallgrímur segir
hugarfarið skipta öllu. _„Eg fer í öll
mót til að vinna þau. Eg ætlaði að
vinna þetta mót því þetta er stærsta
mót ársins,“ sagði Islandsmeist-
arinn.
Var veðrið ekkert að trufla þig?
„Nei, ég ætlaði bara að spila mitt
golf og sjá hverju það mundi skila
mér.“
Hvernig var svo að verja titilinn?
„Það var mjög góð tilfinning."
Efþú lítur yfir sumarið, hvað er
það sem stendur upp úr?
„Að verja íslandsmeisjaratitilinn í
höggleik og bæta við íslandsmeist-
aratitlinum í holukeppni."
Er golfið hluti af þinni framtíð? Er
kannski atvinnumennska í
spilunum?
„Ég hef sett stefnuna á að einbeita
mér að golfinu næstu árin en maður
veit ekki með atvinnumennskuna.
Það kemur bara í ljós.“
Og Hallgrímur fær ekkert að slaka
á enda stórt mót um helgina,
Unglingaeinvígið í Mosfellsbæ.
Hvemig leggst mótið um helgina í
Þig?
„Unglingaeinvígið í Mosfellsbæ er
um helgina og það leggst bara mjög
vel í mig. Ég er frekar spenntur
fyrir því enda mætast efstu kylf-
ingar í öllum aldursflokkum í þessu
móti og spennandi að sjá hvar
maður stendur gagnvart þeim.“
Hvað er síðan framundan?
„Síðasta stigamótið og svo er
skólinn og æfingar í vetur,“ sagði
Hallgrímur að lokum.
Höllin:
Endurbætur á húsinu
handan við hornið
- eitt tilboð barst í verkið
Nýtt gólf á
Básaskers-
bryggju
- framkvæmdum
lýkur um miðjan
október
Að undanförnu hefur verið
unnið að endurbótum á
Básaskersbryggju. í fyrra
voru rekin niður stálþil, en á
þessu ári hefur verið unnið
við sjálft bryggjugólfið,
lagnir og yfirborð, sem
verður úr steinsteypu.
Verktaki að síðari verkhlut-
anum var fyrirtækið 2Þ. Að
sögn Ólafs M. Kristinssonar
hafnarstjóra er ráðgert að
verkinu ljúki um miðjan
október næstkomandi.
Dansleikjahald í Höllinni hefur legið
niðri um tíma þar sem Heilbrigðis-
eftirlit Suðurlands úrskurðaði að
húsið stæðist ekki kröfur vegna
hávaða sem bærist frá því. Húsið
hefur leyfi til skemmtanahalds sem
stendur ekki lengur en til klukkan
eitt eftir miðnætti.
Eigendur hússins eru Sparisjóður
Vestmannaeyja og Glitnir banki hf.
en ljóst er að fara þarf í töluverðar
breytingar og endurbætur á húsinu.
Ólafur Elísson sagði að ákveðnar
framkvæmdir við húsið hefðu verið
boðnar út og eitt tilboð hefði borist í
verkið. Nú væri unnið að því að
semja við verktakann og gott útlit
fyrir að það tækist. Ólafur sagði að
ekkert væri hægt að segja til um
framkvæmdahraða verksins eða
hvenær því yrði lokið.
Heilbrigðiseftirlitið tekur húsið út
eftir breytingarnar og úrskurðar
hvort það stenst kröfur og ekkert fast
í hendi um það fyrr en fram-
kvæmdum er lokið. Heimildir Frétta
herma að nú þegar sé hafinn
undirbúningur fyrir verkið og að
verið sé að koma þangað bygg-
ingarefni sem nota á við endur-
bæturnar.
VIKUTILBOÐ
28. ágúst - 3. sept.
Ora Grænar baunir 12 do,
verð nú kr 98,-
verð áður kr 118,-
Ora maískorn 1/2 dös
verð nú kr 198f-
verð áður kr 238,-
Florid. appelsínusafi u
verð nú kr 138,-
verð áður kr 168,-
Hortex ávaxtasafar 200 mi
verð nú kr 38,-
vcrd aður kr 48,-
Hunts BBQ grisakótilettur
verð nú kr/kg 1488,-
verð áður kr/kg 1788,-