Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Blaðsíða 2
2
Fréttir /Fimmtudagur 1. apríl 2010
S
Landeyjahöfn - Framkvæmdastjóri IBV-íþróttafélags sér kosti og galla:
Fagna styttri siglingu en syrgja flugið
Tryggvi Már Sæmundsson, fram-
kvæmdastjóri ÍBV, segir að ferða-
máti liða IBV-íþróttafélags komi til
með að breytast mikið í sumar með
tilkomu Landeyjahafnar. Löng
sigling með Herjólfí verði væntan-
lega úr sögunni en það sem verra er,
beint flug til Reykjavíkur líka.
Hann segir eðli málsins samkvæmt
muni öll lið á vegum félagsins sigla
upp í Landeyjahöfn enda verði
hugsanlega ekki annað í boði. „Þó
svo að það yrðu flugsamgöngur
héðan, þá reikna ég með því að
langflest íþróttafólk á okkar vegum
fari sjóleiðina."
Ekkert félag hefur greitt jafn riiikið í
ferðakostnað og IBV. Sjá menn ekki
fram á bjartari tíma þegar stœrsti
útgjaldaliðurinn fer minnkandi ?
„Jú, vissulega. Reyndar á félagið
eftir að klára samning við Vega-
gerðina og Eimskip, en þar sem að
IBV er stærsti viðskiptavinurinn nú
þegar á ég ekki von á öðru en við
fáum góðan samning. Einnig horf-
um við til þess að stóru fjáraflan-
irnar okkar vaxi enn með þessari
samgöngubót og við fáum fleira
fólk í bæinn á mótunum og á
Þjóðhátíð.11
Nú liggurfyrir að Flugfélag Islands
sé að hœtta að fljúga, hefur það
áhrif á starfsemi IBV?
„Eins og staðan er í dag, þá hefur
það vissulega áhrif. Meistaraflokk-
-
ÞJÓÐHÁTÍÐ í Vestmannaeyjum ÍBV-íþróttafélag á mikið undir góðum samgöngum og ræðst aðsókn á
þjóðhátíð m.a. af framboði á ferðum til Eyja.
arnir í handbolta hafa notað flugið
mikið í vetur. Þá er þetta mjög
slæmt fyrir fjáraflanir okkar. Það
hefur verið mikil eftirspum í flug.
Bæði til þess að komast á Þjóðhátíð
og á knattspymumótin. Ég reyndar
trúi ekki öðru en að Flugfélagið láti
reyna á flugið á markaðslegum for-
sendum. Stöðug aukning hefur
verið á flugleiðinni til Eyja og er
ekkert sjálfgefið að hún minnki við
það að fá höfn upp í Landeyjum.
Allavega finnst mér dapurt ef það er
búið að ákveða það fyrirfram að
hætta með flugið. Það er mikilvægt
að hafa þennan kost, að vera einung-
is 20 mínútur til höfuðborgarinnar,"
sagði Tryggvi.
Viska-Pungapróf orðið 30 metra smábátaskipanám:
Kennt í Eyjum en nemendur á fimm stöðum
Hjá Visku stendur yfir námskeið
sem til skamms tíma var kallað
pungapróf en í dag er kennt við tólf
metra réttindi og heitir smábáta-
skipanám. Eins og nafnið bendir til
er því ætlað að gefa réttindi til skip-
stjórnar á smábátum allt að tólf
metrum.
Kennt er í húsnæði Visku í Rann-
sóknasetrinu en auk Vestmannaeyja
fylgjast nemendur á fjórum stöðum
með náminu í gegnum fjarfundar-
búnað.
„Við erum með stærsta hópinn
hérna, 15 nemendur, sjö eru á
Grundarfirði, einn á Akureyri, tveir í
Húsavík og þrír í Þórshöfn,“ sagði
Valgerður Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Visku, sem hefur
umsjón með náminu.
Margir koma að kennslunni. Sigur-
geir Jónsson kennir siglingafræði
sem er stærsti hluti námsins. Friðrik
Ásmundsson kennir um stöðugleika
og siglingareglur og Gísli Eiríksson
skipahönnun og vélfræði.
„Þá eru kennd fjarskipti, veður-
fræði, umhverfísvemd, nolkun sigl-
Kristleifsdóttir og Sæbjörg Helgadóttir eru meðal nemenda.
ingatækja og samlíkir. Einnig eru
slysavamir stór þáttur í náminu og
þarf fólk að hafa skilað 15
klukkutímum hjá Slysvarnaskóla
sjómanna áður en þeir fá skírteini
afhent. Það er þó engin fyrirstaða
hjá öllum því margir hafa lokið
námi við Slysavarnaskólann,“ sagði
Valgerður að endingu.
KÖKUBASAR hjá Ægi
Fyrir skömmu hélt Ægir
íþróttafélag fatlaðra basar í
Eyjabúð þar sem aðstandendur
komu saman. Þar var myndar-
legur kökubasar og
Skólalúðrasveitin lék nokkur lög.
Notaleg stund í góðra vina hópi.
Almannavarnanefnd
ræðir viðbrögð við gosi
á Fimmvörðuhálsi:
Neysluvatn,
raforka og
öskufall
-Meðal atriða sem þarf
að huga að
Almannavamanefnd Vestmanna-
eyja hélt fund í síðustu viku þar
sem farið var yfir viðbrögð og
viðbúnað vegna eldgossins á
Fimmvörðuhálsi.
Fundinn sátu Karl Gauti
Hjaltason sýslumaður, Elliði
Vignisson bæjarstjóri, Ragnar
Þór Baldvinsson slökkviliðs-
stjóri, Karl Björnsson læknir,
Adolf Hafsteinn Þórsson for-
maður Björgunarfélagsins, Sig-
urður Þórir Jónsson frá Björg-
unarfélaginu og Jóhannes Olafs-
son yftrlögregluþjónn.
Ivar Atlason frá HS veitum
skýrði viðbúnað HS veitna. Sagði
hann vatnið mælt tvisvar á dag
hér í Eyjum og þrisvar á dag uppi
á landi. Mælt væri PH-gildi þess,
leiðni og hitastig.
Sagði hann PH gildi yfirleitt
vera á bilinu 8 til 9 sem væri
mjög gott. í janúar s.I. hafi gildið
lækkað niður í 5,5 sem væri í
súrara lagi.
Að undanfömu hefði vatnið
mælst á bilinu 8,2 til 9,7 og væri
því enga óeðlilega breytingu að
finna í vatninu hér í Eyjum í
tengslum við eldgosið.
Varðandi hugsanlegan vatns-
skort eru uppi hugmyndir um að
ná í vatn í álunum sem væru um 5
til 6 km frá ströndinni við Bakka-
fjöm.
Þá var rætt um varaafl rafmagns.
Ivar sagði vera nægilegt varaafl
fyrir venjulega notkun í bænum,
en bæta yrði við afli ef halda ætti
uppi fullri vinnslu í stöðvunum.
Rætt um hugsanlegt öskufall og
viðbrögð við því.
Rætt um möguleika á að tengja
rafmagn úr Herjólfi í land svo
unnt sé að nota landgöngubrýmar
og jafnvel til notkunar í bænum í
neyð. Samþykkt að kanna þetta
mál.
Eyja.net
Ólafur Björgvin
nýr ritstjóri
„Nýr ritstjóri
hefur tekið við
www.eyjar.net,
en það ku vera
ég sjálfur Ól-
afur Björgvin
Jóhannesson,"
segir Ólafur í
pistli þar sem
hann kynnir sig
sem nýjan rit-
stjóra Eyjar.net. Tekur hann við
af Kjartani Vídó.
„Ég stundaði nám í Tækni-
skólanum í Reykjavík, lauk þar
Upplýsinga og fjölmiðlabraut og
sérnámi í grafískri miðlun
(prentsmíð) og hef burtfararpróf
ásamt því að vera í starfsnámi
fyrir sveinspróf í prentsmíði.
Tek ég við af honum Kjartani
Vidó vini mínum sem heldur í
önnur mikilvægari störf að hans
sögn. Eyjar.net er fréttasíða sem
snýr að málum okkar Eyjamanna.
Eftir að ég tók við hefur síðan
tekið breytingum sem hafa fengið
góðar viðtökur," segir Ólafu/:
tJtgefandi Eyjasýn ehf. 4B0ÍJ78-054Í) - Vestmannaeyjiun. Ritstjóri: Ómar Garðarsson.
Blaðamonn: Gudbjiirg Sigurgeirsdóttir og Júlíus Ingason. Ábyrgdarmenn: Ómar Garðars-
son & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjiipront. Vestmannaeyjum. Aðsetnr ritstjómar: Strandvegi 47.
Simar: 481 i:i()(i & 481 3310. Myndriti: 481-1293. NetfangAafpóstnr: frettir@cyjnfrettir.is.
Veffang: bttp/Avww.eyjafrettir.is
ERÉTEER konui út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, Isjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarböfn.. ERÉ'ITIR eru prentaðar í 9000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, bljóðritun,
notknn ljósmynda og annað er óbeimilt nema heimilda sé getið.