Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Blaðsíða 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 1. aprfl 2010
Nýfceddir
Vestmannaeyingar:
Þann 15. janúar sl. eignuðust Ester
Kjartansdóttir og Viðar Huginsson
son sem hefur verið nefndur Andri.
Hann var 54 cm og vó 4.400
grömm við fæðingu. Með honum á
myndinni er stóra systir hans, Elma
Dís. Fjölskyldan býr í
Kaupmannahöfn.
Úr bloggheimum:
Þorkell Sigurjónsson bloggar:
Kattarsmölun
Jóhönnu
EM Jæja, nú er það
svart maður, en
~ ii það vissi heilaga
T Jóhanna ekki, að
''La kettir merkja ekki
JB| rautt frá svörtu.
I Svo ekki er annað
hægt eins og
staðan er núna, að kettirnir í VG
sjái samflokkskettina í ríkisstjórn-
inni alla í svörtum lit.
Nei, án grfns þá sé ég engan veg-
inn, að VG geti látið sér í léttu
rúmi liggja, að vera Ifkt við ketti,
þó sú ágæta dýrategund eigi allt
gott skilið. VG hafa hingað til verið
dregnir á asnaeyrunum af
Samfylkingunni í ríkisstjórnarsam-
starfi þeirra. Þar má til nefna ESB
aðildarumsókn. Engum dylst það
sem eitthvað vill sjá, að
Samfylkingin hefur ráðið allt og
öllu innan ríkisstjórnarinnar og
spurning hvort ekki sé hér komið
að leikslokum í þeirra samstarfi?
Sjálfsagt væri það besta fyrir
þessa þjóð, að VG splitti sér frá
Samfó núna strax og þeir, ásamt
Sjálfstæðisflokki og Framsókn
reyni að mynda stjórn.
http.V/hector. hlog. is
Gísli Hjartarson bloggar:
Malið í VG Og
önnur
dýrahljóð
Baulið í Samfó,
ýlfrið í Sjálfst.,
jarmið í Framsókn
og hneggið í
Borgó.Allt er þetla
ámóta máttlaust lið
svo ekki sé meira
sagt. Orð Ömma
um að þessi hugsunarháttur hafi
verið Akkilesarhæll íslenskrar
stjórnmála á liðnum tíma má
kannski til sanns vegar færa. En ég
er á því að helsti Akkilesarhæll
íslenskra stjórnmála um langan
tíma séu vinnubrögð þeirra, skortur
á aga og festu. En þetta með hjarð-
mennskuna er sennilega nokkuð
rétt hjá honum.
Orð Jóhönnu hljóta að vekja VG
og Samfó til umhugsunar um það
hvort eitthvað af viti sé í gangi í
stjómarsamstarfinu held að fólk
ætti að líta þetta þeim augum. Trúi
því reyndar ekki að þessir tveir
flokkar ætli að klúðra stjórnarsam-
starfmu á innan við einu ári. Aumur
er þá metnaður og samstarfshugur
þessa fólks sem telur sig vera
aðeins til vinstri í hinu íslenska
pólitíska umhverfi.
http://fosterinn. blog. is
Eyjamaður vikunnar:
Vil skvísudanstónlíst
Sjö Eyjastúlkur tóku þátt í
keppninni um ungfrú Suðurland
sem fór fram á Hótel Selfossi
síðastliðið föstudagskvöld.
Eyjastúlkumar náðu glæsilegum
árangri en fjallað er nánar um
keppnina annarsstaðar í blaðinu.
Engin fékk fleiri verðlaun en
Thelma Sigurðardóttir en hún var
valin Ljósmyndafyrirsæta og
Sportstúlka. Það kom mörgum á
óvart að Thelma skyldi ekki komast
áfram í lokakeppnina um ungfrú
Island en það kemur þó ekki í veg
fyrir að Thelma er Eyjamaður
vikunnar.
Nafn: Thelma Sigurðardóttir.
Fæðingardagur: 2. janúar 1986.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Sigurður Sveinsson og
Þóra Ólafsdóttir eru foreldrar mínir.
Eg á einn bróður, Svein og
kærastinn heitir Andri.
Draumabíllinn: Bara einhver
geðveikur skvísu-Benz.
Uppáhaldsmatur: Kjúklingur. Ég
er sjúk í kjúkling, nánast alveg
sama hvernig hann er matreiddur.
Versti matur: Enginn matur
verstur, get borðað hvað sem er.
Uppáhalds vefsíða: Ætli það sé
ekki helv. facebook.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Islensk- og skvísudanstónlist.
Aðaláhugamál: Fótbolti, íþróttir,
tíska, hönnun, skemmta mér, ferð-
ast og margt fleira.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Ég væri til í að hitta og eiga gott
Eyjamaður vikunnar er
Thehna Sigurðardóttir.
spjall við Beckham hjónin.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar að sumri
til. Alveg yndislegar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Mín félög eru IBV og
Liverpool. Uppáhaldsíþrótta-
mennimir mínir eru Andri og
Sveinn.
Ertu hjátrúarfull: Nei, get ekki
sagt það.
Stundar þú einhverja íþrótt: Já,
fótbolta en er enn að kljást við
meiðsli.
Uppáhaldssjónvarpscfni: Gossip
girl, Despirate housewifes og
Friends og góðir gamanþættir.
Hvernig var að taka þátt í ungfrú
Suðurland: Það var bara geðveikt
og ógeðslega gaman. Ég hefði
aldrei trúað þvf að þetta hefði getað
verið svona gaman. Æfmgarnar
voru skemmtilegar og lokakvöldið
var þvflfk upplifun að ég hefði
aldrei viljað sleppa því. Stelpumar
vom frábærar sem gerði þetta
ennþá skemmtilegra.
Var lokakvöldið eitthvað í líkingu
við það sem þú áttir von á: Ég var
í raun ekkert farin að pæla í því en
það stóð svo sannarlega undir
mínum væntingum.
Varstu ánægð með kvöldið og tit-
lana tvo sem þú vannst: Já, mjög
ánægð og mjög sátt enda ekki
annað hægt.
Hefðir þú viljað komast áfram í
aðalkeppnina: Já, að sjálfsögðu!
Eitthvað að lokum: Þakka fyrir
allan stuðninginn og yndislegu
kveðjumar sem ég er búin að fá
eftir keppnina. Þakka stelpunum
líka fyrir frábæran tíma og snilldar
lokakvöld.
Matgazðingur vikunnar:
Uppskrift sem ekki
Ég þakka Sœma kœrlega fyrir
áskorunina en ég œtla að hjóða
upp á heldur óvenjulega uppskrift.
Uppskriftina má enginn prufa því
Álftin er friðuð, en hljómar svo í
matgœðings nafni.
fllft fyrir fjóra
Tveir vel stálpaðir og fleygir álf-
tarungar. Bringurnar skornar úr og
léttreyktar, t.d. í reykofni sem fæst í
Olís.
Eldun:
Bringurnar eru þá beikondregnar og
léttsteiktar á vel heitri pönnu, með
smá olíu, í um það bil 1,5-2 mínú-
tur. Bringurnar eru settar til hliðar,
ekkert krydd er notað. Þetta má
gerast snemma dags en þá má ekki
Matgœðingur vikunnar er
Erlendur G. Gunnarsson.
má prófa
hreinsa pönnuna því nota þarf skó-
firnar. Rétt áður en snætt er, er set-
tur rjómi á pönnuna og beðið eftir
að hann sjóði. Þá er panna tekin af
eldavélinni, bringurnar settar út í
og látið standa í sjö til átta mínútur.
Með þessu er skylda að hafa sykur-
brúnaðar kartöflur og villt salat.
Eftirréttur:
Uppvask, yfirleitt hjálparlaust.
Síðan er sett singlemalt whiskey í
glas og þá hjálpa allir.
Takkfyrir mig. Ég skora á Adda
Palla, fluggreifa og sjókokk sem
nœsta matgœðing en hann á sök á
vaxtalagi áhajhar Isleifs í vetur.
Gamla myndin:
Siggi í Húsavík kom á dögunum
inn á ritstjórn Frétta við Strand-
veg með nokkrar úrklippur úr
gömlum blöðum. Siggi hefur í
gegnum árin fylgst afar vel með
íþróttalífi Eyjanna en meðal
mynda sem hann hafði klippt út
er þessi mynd hér til hliðar af
fimleikafólki. Siggi segir að
þarna sé kvennaliðið hans Karls
Jónssonar frá Hól, fimleika-
dömur þar voru m.a. Guðný á
Gjábakka og fleiri góðar. Þarna
er greinileg mikið líf og fjör en
Siggi gat ekki sagt með vissu
hvenær myndirnar væru teknar
en fannst líklegt að það hefði
verið upp úr 1950.
Kirkjur bazjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 1. apríl
Kl. 20. Kvöldmessa með altaris-
göngu. Ahersla á síðustu kvöld-
máltíð Jesú með lærisveinunum.
Sóknamefndarfólk afskrýðir altarið
í lok messu og sveipar það svörtu.
Prestar Landakirkju.
Föstudagur 2. apríl
Kl. II. Guðsþjónusta. Félagar úr
Leikfélagi Vestm. lesa píslasögu
guðspjallanna og erindi úr Passí-
usálmum sr. Hallgríms Péturssonar.
Síðustu orð Krists á krossinum.
Tignun krossins. Kór Landakirkju
flytur kórverk og Védís Guðmunds-
dóttir leikur á þverflautu. Organisti
Guðmundur H. Guðjónsson. Ath.
að guðsþjónustan er fyrir hádegi!
Laugardagur 3. aprfl
KI. 14. Útför Friðrikku
Þorbjömsdóttur.
Sunnudagur 4. aprfl
Kl. 8. Hátíðarguðsþjónusta.
Páskahlátur! Kór Landakirkju.
Organisti Guðmundur H. Guðjóns-
son. Landakirkja býður til morgun-
verðar í Safnaðarheimilinu eftir
hátíðarguðsþjónustuna. Allir
velkomnir.
Kl. 10.30. Hátíðarguðsþjónusta á
Hraunbúðum. Kór Landakirkju,
organisti og prestur. Allir velkomnir.
Máudagur 5. aprfl
Kl. II. Bama- og fjölskylduguðs-
þjónusta. Páskaeggjaleit í lok
guðsþjónustunnar. Litlir lærisveinar
syngja undir stjórn Védísar
Guðmundsdóttur, kórstjóra. Leikur,
sögur og mikill söngur.
Þriðjudagur 6. aprfl
Kl. 11 - 12. Viðtalstímar presta í
Landakirkju þriðjud. til föstud.
Kl. 17. Æfing fyrir fermingarböm
10. aprfl og foreldra.
Kl. 18. Æfmg fyrir fermingarböm
11. aprfl og foreldra.
Kl. 20. Fundur í Gideon-félagi
Vestmannaeyja í Safnaðarheimilinu.
Miðvikudagur 7. aprfl
Kl. 10. Helgistund á Hraunbúðum.
Kl. 15. NTT - kirkjustarf nfu til tíu
ára krakka. Gísli Stefáns.
Kl. 20. Páskafundur í Aglow, félagi
kvenna í öllum kirkjudeildum, í
Safnaðarheimilinu. Stjórn Aglow.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 1. aprfl
Kl. 20:00 ræðumaður Theodor
Petersen frá Færeyjum, Rakel
syngur.
Föstudagur 2. aprfl
Kl. 10:00 Upplestur Passíusálma,
Gídeonmenn og fleiri lesa valda
sálma.
KI. 14.00 Hátíðarsamkoma
Theodor Petersen frá Færeyjum
prédikar og syngur ásamt Rakel
dóttur sinni. Ath. Krakkafjör fellur
niður þennan dag.
Sunnudagur 4. aprfl
Kl. 14.00 Hátíðarsamkoma.
Theodor og Rakel verða með okkur
í söng og gleði.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 6. mars
Kl. 11.00 Samkoman hefst með
Biblíufræðslu fyrir böm og fullorð-
na. Bama og ungmennastarf í
höndum Ericu Do Carmo. Einnig
verður Biblfu lexía fyrir fullorðna.
Efnið er aðgengilegt öllum á vef
kirkjunnar á www.adventistar.is
undir fræðsluefni/Biblíulexia.
Kl. 12.00 Guðsþjónusta. Bein
útsending frá aðventkirkjunni í
Reykjavík, Björgvin Snorrasson
predikar. Sími hjá safnaðarpresti er
8662800, netfang thora@adventis-
tar.is